Kaldalón hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – lok endurkaupa
Í viku 10 árið 2026 keypti Kaldalón hf. 200.000 eigin hluti að kaupvirði kr. 5.480.000 í endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í kauphöll þann 6. janúar 2026.
| Dagsetning | Tími | Magn | Verð | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 2.3.2026 | 14:11:58 | 189.163 | 27,4 | 5.183.066 | 24.280.981 |
| 2.3.2026 | 14:41:37 | 10.837 | 27,4 | 296.934 | 24.291.818 |
| 200.000 | 5.480.000 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Kaldalóns hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. janúar 2026. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið.
Kaldalón hf. átti 24.091.818 eigin hluti fyrir viðskiptin en að þeim loknum 24.291.818 eða sem nemur 2,24% af útgefnum hlutum í félaginu.
Kaldalón hefur keypt samtals 3.089.097 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,30% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra kr. 89.177.460.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir,
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
