KALD KALDALON HF.

Kaldalón hf.: Árshlutareikningur fyrstu sex mánuði ársins 2025

Kaldalón hf.: Árshlutareikningur fyrstu sex mánuði ársins 2025

Samandreginn árshlutareikningur Kaldalóns hf. var samþykktur af stjórn félagsins 21. ágúst 2025.

Umtalsverð tekjuaukning byggð á fjárfestingu fyrri ára

  • Leigutekjur vaxa um 24% milli ára.
  • Rekstrarhagnaðarhlutfall er 78% á tímabilinu og helst hátt
  • Félagið fjárfesti fyrir 3,5 ma.kr. á tímabilinu
  • Félagið skilar 1.753 m.kr. í hagnað fyrir skatta
  • Arðsemi eiginfjár er 11,3% á ársgrundvelli
  • Félagið hækkar afkomuspá ársins

Mikilvægir áfangar á tímabilinu

  • Handbært fé frá rekstri eykst um 74% milli ára, leiðrétt fyrir breytingu á rekstrartengdum eignum og skuldum  
  • Fjárfest í um 10.000 m2 af fasteignum á tímabilinu
  • Undirritaðir hafa verið kaupsamningar um fasteignirnar Krókháls 16, Skúlagötu 15 og Kletthálsa 1a í Reykjavík háð fyrirvörum
  • Framkvæmdir hafnar á nýju iðnaðarhúsnæði við Fossaleyni 19-23 fyrir viðskiptavin
  • Markaðsfjármögnun jókst í 35% af vaxtaberandi skuldum félagsins úr 21% í samræmi við langtímastefnu. 82% af fasteignum félagsins eru nú veðsettar undir almenna tryggingafyrirkomulaginu
  • Umhverfisvottun fasteigna gengur vel. Áætlað er að 30% eignasafnsins verði vottað fyrir árslok

Helstu atriði uppgjörs eru:

 H1 2025H1 2024
Rekstrartekjur 2.638 2.132
Tekjuvegið útleiguhlutfall afhentra eigna 96 % 97 %
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu    2.056 1.672
Rekstrarhagnaðarhlutfall    78 % 79 %
Matsbreyting á tímabilinu    1.833 2.777
Heildarhagnaður fyrir skatta 1.753 2.454
Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli 11,3 % 17,3 %
Handbært fé í lok tímabils    1.244 3.531
   
 H1 20252024
Fjárfestingareignir    78.848 73.444
Heildareignir    80.916 75.823
Vaxtaberandi skuldir    45.432 42.117
Eigið fé    27.344 25.938
Veðsetningarhlutfall    57,6 % 57,3 %
Eiginfjárhlutfall    33,8 % 34,2 %
   

Allar fjárhæðir eru í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

Uppfærðar rekstrarhorfur

Félagið uppfærir rekstrarhorfur fyrir árið 2025. Félagið væntir þess að rekstrartekjur ársins verði á bilinu 5.500 – 5.670 m.kr. og miðar spáin við 4,1% meðalverðbólgu á seinni hluta ársins. Þá væntir félagið að rekstrarhagnaður ársins verði á bilinu 4.270 – 4.430 m.kr. Spáin gerir ráð fyrir því að kynnt viðskipti um tekjuberandi fasteignir ljúki á þriðja ársfjórðung 2025. 

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri

Traustur rekstur og áframhaldandi vöxtur einkenna fyrri árshelmings ársins. Við sjáum fjárfestingar undanfarinna ára skila sér í auknum vexti tekna sem nemur 24% og sterkari stöðu félagsins.  Ég er ánægður með að á sama tíma tekst að viðhalda 78% rekstrarhagnaðarhlutfalli (NOI), sem er mjög gott.

Á tímabilinu fjárfesti Kaldalón fyrir 3,5 milljarða króna. Þar sem þær fjárfestingar áttu sér stað undir lok fyrri árshelmings munu tekjur af þeim koma fram á seinni hluta ársins.  Þessar fjárfestingar eru  Suðurhraun 4-6, Garðabæ og Grjóthálsi 2 í Reykjavík. Þá var afhent ný þjónustustöð við Lambhagaveg.  Kaldalón hefur á skömmum tíma byggt um þétt net bílaþvottastöðva fyrir viðskiptavin og hafa viðtökurnar sýnt fram á gæði og framtíðarmöguleika stofnbrautarlóða í eigu Kaldalóns. Þá voru nýlega samþykkt byggingaráform fyrir 3.400 m2 iðnaðarhúsnæði að Fossaleyni 19-23 í Reykjavík, en þar verður starfrækt matvælaframleiðsla. Gert er ráð fyrir að fasteignin verði afhent seinni helming næsta árs.

Félagið hefur undirritað kaupsamninga og mun að óbreyttu eignast Krókháls 16, Skúlagötu 15 og Klettháls 1A í Reykjavík. Viðskiptin eru háð hefðbundnum fyrirvörum. Félagið áætlar að tekjur á ársgrundvelli aukist um 203 m.kr. frá og með afhendingu þessara fasteigna.

Heildareignir Kaldalóns við mitt ár námu tæplega 81 milljarði króna. Vaxtaberandi skuldir námu rúmlega 45 milljörðum króna og helst veðsetningarhlutfall nær óbreytt eða 57,6 %. Félagið gaf á tímabilinu út skuldabréf og víxla á markaði fyrir 6.720 milljónir króna og nema nú skuldabréf á markaði 31 % af vaxtaberandi skuldum félagsins, sem er í samræmi við stefnu um að auka vægi verðtryggingar og markaðsfjármögnunar í skuldum félagsins. Kjör markaðsfjármögnunar félagsins sýna að það eru umtalsverð tækifæri í endurfjármögnun Kaldalóns.

Eftirspurn eftir leiguhúsnæði er stöðug og virðist viðnámsþróttur í hagkerfinu gagnvart háu vaxtastigi. Ekki eru merki um breytingar á því en langtímaáhrif eiga eftir að koma í ljós. Áhættulausir vextir hækkuðu á tímabilinu sem hefur neikvæð áhrif á gangvirðismat fasteigna. Kaldalón er sem fyrr  með sterkt tekjustreymi þar sem tekjuvegin meðallengd samninga er tæp 10 ár.

Kaldalón er vel í stakk búið til að mæta þörfum viðskiptavina sinna og nýta þau fjölmörgu tækifæri sem félagið telur að séu til staðar á fasteignamarkaði.

Kaupsamningar um nýjar fasteignir

Gengið hefur verið frá kaupsamningum með fyrirvörum um fasteignir að Krókhálsi 16, Skúlagötu 15 og Kletthálsi 1A. Heildarkaupverð fasteignanna er 2.335 m.kr. og greiðist að fullu með reiðufé og/eða yfirtöku skulda. Þá er gert ráð fyrir að kaupin auki rekstrarhagnað Kaldalóns um 171 m.kr. á ársgrundvelli. Gert er ráð fyrir að viðskiptin gangi í gegn á þriðja ársfjórðungi.

Árshlutareikningur 2025

Skýrsla stjórnar og forstjóra félagsins er að finna í samandregnum árshlutareikningi félagsins. Samandreginn árshlutareikningur er gerður í samræmi við reikningsskilastaðla (IFRS).

Kynning ár árshlutauppgjöri

Samhliða uppgjörinu er boðað til kynningarfundar föstudaginn 22. ágúst kl. 08:30 á Grand Hótel, Sigtúni 28. Húsið opnar 08:15. Á fundinum munu stjórnendur fara yfir starfsemina á árinu, árshlutauppgjör og framtíðarhorfur. Við upphaf fundar verður kynningarefnið jafnframt aðgengilegt á vefsíðu Kaldalóns.

Hægt er nálgast ársreikninginn á .

Frekari upplýsingar

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri,

Viðhengi



EN
21/08/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on KALDALON HF.

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Annual General Meeting 26 March 2026

Kaldalón hf.: Annual General Meeting 26 March 2026 The Board of Directors of Kaldalón hf. hereby announces that the Annual General Meeting of the company will be held on Thursday, March 26, 2026, at 16:00 GMT. The meeting will be held at Reykjavík Natura, Nauthólsvegur 52, 101 Reykjavík. Enclosed is the agenda for the Annual General Meeting.  Meeting documents and further information concerning the meeting is available on the website . Attachment

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Aðalfundur 26. mars 2026

Kaldalón hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 Stjórn Kaldalóns hf. boðar til aðalfundar í félaginu fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 16:00. Fundurinn verður haldinn á á Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík. Meðfylgjandi er fundarboð aðalfundar og dagskrá.  Gögn fundar má jafnframt finna á  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Financial Statements 2025

Kaldalón hf.: Financial Statements 2025 The annual accounts of Kaldalón hf. for the year 2025 were approved by the company's board of directors on 4 March 2026. Key highlights of the 2025 Annual Accounts: Target of a ISK 100 billion property portfolio within reach based on existing agreementsOperating profit and rental income increased by 24% year-on-yearProfit before tax amounted to ISK 3,525 millionCash generated from operations amounted to ISK 2,711 millionThe Board of Directors proposes a dividend payment of ISK 1,000 million  2025 2024Operating revenues5,598 4,508Revenue Weighted occ...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Ársreikningur 2025

Kaldalón hf.: Ársreikningur 2025 Ársreikningur Kaldalóns hf. fyrir árið 2025 var samþykktur af stjórn félagsins 4. mars 2026  Helstu niðurstöður ársins 2025:  Markmið um 100 milljarða króna eignasafn í sjónmáli á grundvelli gildandi samninga  Rekstrarhagnaður og leigutekjur aukast um 24% milli ára  Hagnaður er 3.525 m.kr. fyrir skatta  Handbært fé frá rekstri 2.711 m.kr.  Stjórn leggur til arðgreiðslu sem nemur 1.000 milljónum króna   2025 2024Rekstrartekjur5.598 4.508Tekjuvegið útleiguhlutfall afhentra eigna97,6% 97,1%Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu   4.387 3.548Rekstrarhagnaðar...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Routine Announcement Regarding Share Buybacks Pursuant t...

Kaldalón hf.: Routine Announcement Regarding Share Buybacks Pursuant to Buyback Program – End of Buyback In week 10 of 2026, Kaldalón hf. purchased 200,000 of its own shares for a total consideration of ISK 5.480,000 as detailed below:  DateTimePurchased sharesShare pricePurchase priceOwn shares after transaction 2.3.202614:11:58189,16327.45,183,06624,280,9812.3.202614:41:3710,83727.4296,93424,291,818  200,000 15,480,000  The transactions are carried out under Kaldalón hf.’s share repurchase programme, which was announced on Nasdaq Iceland on 6 January 2026. The buyback program has now been...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch