REITIR: Gengið hefur verið frá kaupum í Hvörfunum Kópavogi
Með vísan til fyrri tilkynningar um kaup Reita á fasteignum í atvinnuhúsnæði að Tónahvarfi 3 í Kópavogi, sem sjá má , tilkynnist að öllum fyrirvörum vegna kaupanna hefur verið aflétt. Kaupsamningar hafa verið undirritaðir og afhending farið fram. Fasteignirnar eru um 3.750 fm. að stærð og hýsa fjölbreyttan rekstur nokkurra leigutaka.
Fasteignirnar eru í útleigu að fullu og eru áætlaðar leigutekjur á ársgrunni um 150 m.kr. og leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 120 m.kr. á ársgrundvelli.
Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 og á og Kristófer Þór Pálsson, framkv.stj. fjárfestinga og greiningar í síma 659 1700 og á .