SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Úthlutun kauprétta

Síminn hf. - Úthlutun kauprétta

Þann 7. nóvember 2025 var tveimur framkvæmdastjórum veittir kaupréttir að samtals 13.125.000 hlutum í félaginu, eða sem samsvarar um 0,53% af útgefnu hlutafé Símans. Úthlutunin byggir á samþykkt aðalfundar frá 9. mars 2023.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar þeirra eru í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Símans þann 13. mars 2025.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu kr. 13,87 fyrir hvern hlut sem er vegið meðalverð með hluti félagins síðustu 10 heilu viðskiptadaga á aðalmarkaði Nasdaq Ísland með hluti félagsins fyrir úthlutun kauprétta. Við grunnverð bætast vextir sem skulu samsvara stýrivöxtum Seðlabanka Íslands á tímabilinu frá dagsetningu kaupréttarsamnings fram til nýtingardags, að lágmarki 4% á ári. Verðið skal leiðrétt m.a. fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða greiddar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Kauprétturinn ávinnst á þremur árum frá úthlutun (e. vesting time). Að ávinnslutímabili loknu verða kaupréttir nýtanlegir í þremur áföngum, sem hefjast í kjölfar birtingar ársuppgjörs félagsins ár hvert á árunum 2029 - 2031. Kaupréttarhafi getur nýtt þriðjung kaupréttar í kjölfar birtingar ársuppgjörs eða hálfsársuppgjörs félagsins innan hvers tímabils, og getur frestað nýtingu áunnins kaupréttar til næsta nýtingartímabils.
  • Kaupréttarhafar eru skuldbundnir til að eiga fram að starfslokum hluti sem nema andvirði hagnaðar, að frádregnum sköttum, af innleystum kaupréttum samsvarandi 6-földum grunnmánaðarlaunum kaupréttarhafa, mælt í virði hlutafjáreignar í félaginu.
  • Almennt skulu kaupréttir falla niður ef ráðningarsambandi kaupréttarhafa við félagið er slitið fyrir lok ávinnslutíma.
  • Komi starfslok kaupréttarhafa til að loknum ávinnslutíma vegna atvika sem kaupréttarhafa verður ekki um kennt skal hann þó halda kauprétti sínum að hlutunum og verður þá heimilt að nýta allan áunninn kauprétt í kjölfar starfsloka.
  • Verði breyting á yfirráðum í Símanum er kaupréttarhöfum heimilt að nýta allan kauprétt sinn í kjölfar birtingar næsta ársfjórðungsuppgjörs félagsins frá því yfirtökutilboð er gert eða tilboðsskylda myndast í félaginu.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Síminn hefur veitt stjórnendum og tilteknum lykilstarfsmönnum sínum nemur nú 69.375.000 hluta, eða um 2,8% hlutafjár í félaginu. Alls er um að ræða 21 starfsmann.

Upplýsingar um kauprétti sem veittir voru meðlimum framkvæmdastjórnar Símans eru í viðhengi.

Viðhengi



EN
11/11/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir Í dag, 26. mars 2026, var hlutafé Símans hf. lækkað um 75.000.000 hluti í samræmi við ákvörðun aðalfundar frá 12. mars sl. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Með breytingunni fór hlutfall eigin bréfa Símans hf. undir 5% af heildarfjölda hluta. Síminn hf. átti 148.868.692 eigin hluti fyrir þessar aðgerðir en á að þeim loknum 73.868.692 hluti eða sem nemur 3,08% af útgefnum hlutum í félaginu. Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé Í 19. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann við fyrsta tækifæri og í síðasta lagi á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða. Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um kr. 75.000.000 að nafnverði en eftir lækkun yrði hlutafé samtals kr. 2.400.000.000. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með k...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Lækkun hlutafjár

Síminn hf. - Lækkun hlutafjár Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars 2026 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins. Lækkunin nemur kr. 75.000.000 að nafnverði og tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Eftir lækkun verður hlutafé samtals kr. 2.400.000.000. Beiðni hefur verið send til Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd fimmtudaginn 26. mars 2026. Vísað er til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 12. mars sl. þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026

Síminn hf. - Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 Meðfylgjandi eru niðurstöður frá aðalfundi Símans hf. sem haldinn var í dag. Sjálfkjörið var í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár. Stjórnin hefur skipt með sér verkum og er Jón Sigurðsson formaður stjórnar og Sigrún Ragna Ólafsdóttir varaformaður stjórnar.Stjórnin er þannig skipuð: Jón Sigurðsson, formaður stjórnarSigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður stjórnarArnar Þór MássonBjarni ÞorvarðarsonValgerður Halldórsdóttir Sjálfkjörið var í tilnefningarnefnd félagsins fyrir næsta starfsár en nefndina skipa: Eyjólfur Árni RafnssonJensína B...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á ve...

Síminn hf. - Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Síminn hf. (Síminn) og Sýn hf. (Sýn) hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála vegna mögulegra kaupa Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Í skilmálaskjalinu er fjallað um helstu forsendur viðskiptanna og gert er ráð fyrir að heildarvirði (e. enterprise value) einingarinnar sé 5.250 milljónir króna og tekju...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch