EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Bætt afkoma á öðrum ársfjórðungi og uppfærð afkomuspá

Eik fasteignafélag hf.: Bætt afkoma á öðrum ársfjórðungi og uppfærð afkomuspá

Samkvæmt stjórnendauppgjöri lítur út fyrir að EBITDA af rekstri á öðrum ársfjórðungi 2021 verði á bilinu 2.670 - 2.730 m.kr. og afkoma fyrstu sex mánaða ársins því um það bil 5% umfram áætlanir stjórnenda.

Afkoma á tímabilinu batnar einkum vegna þess að stjórnendur ráðgera að neikvæð áhrif faraldursins á viðskiptavini félagsins í ferðaþjónustu verði takmarkaðri en áætlað var. Dregið hefur úr áhrifum virðisrýrnunar viðskiptakrafna þar sem staða þeirra hefur hækkað minna en félagið hafði gert ráð fyrir og horfur á heimtum eru álitnar betri. Sömu ástæður standa til þess að stjórnendur álíta rétt að uppfæra afkomuspá.

Aðlöguð EBITDA afkomuspá fyrir árið 2021 er nú á bilinu 5.400 - 5.700 m.kr. miðað við fast verðlag frá júlí 2021 samanborið við 5.050 - 5.350 m.kr. spá þá sem félagið birti í febrúar 2021, en hún miðaði við 2,5% jafna verðbólgu á árinu. Ný afkomuspá er líkt og áður háð áhættu- og óvissuþáttum, einkum áhrifa faraldursins, sem geta þýtt að afkoman verði frábrugðin því sem greint er frá í þessari spá.

Í samræmi við upplýsingastefnu sína stefnir félagið meðal annars að því að birta opinberlega upplýsingar um það ef stjórnendur vænta áhrifa sem nema 3% eða meira á rekstrarhagnað (EBITDA), að teknu tilliti til áður birtra upplýsinga.

Uppgjörsferlinu og könnun endurskoðenda félagsins er ólokið. Afkoman kann að taka breytingum af þeim sökum. Félagið birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða miðvikudaginn 25. ágúst.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, s. 590-2200

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,  s. 820-8980



EN
10/08/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Úthlutun kauprétta

Eik fasteignafélag hf.: Úthlutun kauprétta Í framhaldi af samþykki aðalfundar Eikar fasteignafélags hf. (Eik) á kaupréttaráætlun um kauprétt stjórnenda og lykilstarfsmanna hefur stjórn veitt tilteknum aðilum kauprétti á 36.600.000 hlutum í félaginu, sem samsvarar um 1,08% af heildarhlutafé félagsins miðað við útistandandi hlutafé á þeim tíma sem kaupréttaráætlunin var samþykkt. Samningar um kaupréttina hafa verið gerðir. Markmið kaupréttaráætlunar er að tengja hagsmuni kaupréttarhafa annars vegar, við afkomu og langtímamarkmið félagsins, og hins vegar hagsmuni hluthafa þess um ávöxtun eign...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstöður aðalfundar 2026

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstöður aðalfundar 2026 Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf., sem haldinn var í dag fimmtudaginn 16. apríl 2026, kaus eftirtalda einstaklinga í stjórn félagsins: - Bjarni Kristján Þorvarðarson - Eyjólfur Árni Rafnsson - Gunnar Þór Gíslason - Katrín Jakobsdóttir - Ragnheiður Harðar Harðardóttir Nýkjörin stjórn hefur haldið fund og skipt með sér verkum. Bjarni Kristján Þorvarðarson er formaður stjórnar. Á aðalfundinum voru samþykktar tillögur stjórnar eins og nánar greinir í viðhengi. Að auki fylgja með samþykktir félagsins og starfskjarastefna með þeim brey...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 21. apríl 2026. Boðinn verður til sölu nýr skuldabréfaflokkur EIK 29 1. Helstu skilmálar EIK 29 1: Tegund: Óverðtryggt almennt skuldabréfVextir: Breytilegir, 1 mánaðar REIBOR + 85 punktarLíftími: 35 mánuðirLokagjalddagi: 28. mars 2029Áætlaður uppgjörsdagur: 28. apríl 2026 Innlausnarheimild skuldabréfaeigenda (söluréttur) Skuldabréfaeigandi hefur rétt til að fara fram á innlausn skuldabréfs fyrir lokagjalddaga. Heimilt er að nýta innlausnarheimildina hvenær sem er á líftí...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Forskráning á aðalfund félagsins lýkur í dag

Eik fasteignafélag hf.: Forskráning á aðalfund félagsins lýkur í dag Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 á morgun, fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi. Til áréttingar verður fundurinn ekki haldinn rafrænt í streymi en atkvæðagreiðslur á fundinum verða rafrænar og því eru hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að taka þátt í fundinum minntir á að forskrá sig tímanlega á eftirfarandi vefslóð:  og ekki seinna en kl. 15:00 í dag, miðvikudaginn 15. apríl 2026. Atkvæðisréttur fylgir eingöngu þeim hluthöfum sem mæta í p...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Framboð til stjórnar 2026

Eik fasteignafélag hf.: Framboð til stjórnar 2026 Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi. Framboðsfrestur til stjórnar félagsins rann út í dag, 9. apríl kl. 15:00. Eftirtalin hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins: - Bjarni Kristján Þorvarðarson - Eyjólfur Árni Rafnsson - Gunnar Þór Gíslason - Katrín Jakobsdóttir - Ragnheiður Harðar Harðardóttir Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal st...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch