Eik fasteignafélag hf.: Niðurstöður aðalfundar 2020
Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf., sem haldinn var miðvikudaginn 10. júní 2020 kaus eftirtalda einstaklinga í stjórn félagsins:
- Arna Harðardóttir
- Bjarni Kristján Þorvarðarson
- Eyjólfur Árni Rafnsson
- Guðrún Bergsteinsdóttir
- Hersir Sigurgeirsson
Nýkjörin stjórn hefur haldið fund og skipt með sér verkum. Eyjólfur Árni Rafnsson er formaður stjórnar og Guðrún Bergsteinsdóttir varaformaður.
Á aðalfundinum voru kjörnir tveir fulltrúar í tilnefningarnefnd og samþykktar tillögur eins og nánar greinir í viðhengi.
Viðhengi