A1KBCM Eimskipafelag Islands hf

EIM: Lakari EBITDA afkoma árið 2019 en spáð var

EIM: Lakari EBITDA afkoma árið 2019 en spáð var

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir fjórða ársfjórðung 2019 lítur út fyrir að EBITDA afkoma Eimskips fyrir árið 2019 verði lakari en stjórnendur gerðu ráð fyrir. Áætlað er að afkoman verði um 49 - 50 milljónir evra en til samanburðar var uppfærð EBITDA spá félagsins fyrir árið 2019 52 - 55 milljónir evra.

Helstu ástæður fyrir lægri EBITDA afkomu eru minna magn í gámasiglingakerfi félagsins sem var um 10% lægra á fjórða ársfjórðungi miðað við sama tíma árið á undan og varð sú minnkun að megninu til á síðustu vikum ársins. Skýringar má helst rekja til minni innflutnings til Íslands en búist var við og minni veiða við Ísland á tímabilinu sem leiddi til mun minni útflutnings auk neikvæðra áhrifa á umsvif í akstri innanlands. Þannig má nefna að landaður afli í október og nóvember samkvæmt gögnum Fiskistofu var um 19% og 29% lægri en í sömu mánuðum árið áður sem hafði neikvæð áhrif á útflutning í nóvember og desember.

Þar að auki reyndist einskiptis kostnaður vegna lokunar skrifstofu félagsins í Belgíu hærri en gert var ráð fyrir og þá féll til töluverður kostnaður þegar að Eimskip færði viðkomur til nýs þjónustuaðila í Rotterdam fyrr en áætlað var vegna lokunar og verkfalla hjá þáverandi þjónustuaðila. Tilfærslan var áður áætluð á fyrsta ársfjórðungi 2020.

Félagið hefur staðið í ýmsum hagræðingaraðgerðum undanfarið ár og m.a. breytt gámasiglingakerfinu með það fyrir augum að bregðast við minna innflutningsmagni. Þær aðgerðir eru að skila sér en vega ekki nægilega á móti sveiflum í magni eins og raunin varð á síðustu vikum ársins.

Ofangreindar tölur taka ekki tillit til áhrifa reikningsskila staðals IFRS16 á EBITDA afkomu.

Félagið vinnur enn að uppgjöri ársfjórðungsins og ársins 2019 og afkoman getur tekið breytingum í uppgjörsferlinu.

Afkoma félagsins fyrir fjórða ársfjórðung og árið 2019 verður kynnt þann 27. febrúar.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir,  markaðs- og samskiptastjóri í síma 825-3399 eða

EN
30/01/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eimskipafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

Correction: Eimskip: Management Financial Report - Fourth quarter and ...

Correction: Eimskip: Management Financial Report - Fourth quarter and full year 2025 results Headline from previous release corrected Highlights of Q4 2025 results The quarter results were shaped by challenging external conditions. Revenue amounted to EUR 201.4 million, decreasing by EUR 25.8 million or 11.4% compared with the fourth quarter of 2024. Volume in Liner decreased by 6.1% during the quarter. There was a significant year-over-year increase in imports to Iceland, driven primarily by a sharp rise in vehicle imports. This was offset by a decline in exports from Iceland due to su...

 PRESS RELEASE

Leiðrétting: Eimskip: Stjórnendauppgjör - Afkoma fjórða ársfjórðungs o...

Leiðrétting: Eimskip: Stjórnendauppgjör - Afkoma fjórða ársfjórðungs og ársins 2025 Fyrirsögn fyrri fréttar leiðrétt. Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs   Rekstur félagsins litaðist af krefjandi ytri aðstæðum. Tekjur námu 201,4 milljónum evra og lækkuðu um 25,8 milljónir evra eða 11,4% samanborið við fjórða ársfjórðung 2024. Magn í siglingakerfinu lækkaði um 6,1% á fjórðungnum. Töluverð aukning varð á innflutningi til Íslands á milli ára sem var keyrð áfram af mikilli aukningu í innflutningi á bifreiðum, en á móti var lækkun í útflutningi frá Íslandi vegna framleiðsluminnkunar h...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Management Financial Report - Fourth quarter and full year 20...

Eimskip: Management Financial Report - Fourth quarter and full year 2024 results Highlights of Q4 2025 resultsThe quarter results were shaped by challenging external conditions. Revenue amounted to EUR 201.4 million, decreasing by EUR 25.8 million or 11.4% compared with the fourth quarter of 2024. Volume in Liner decreased by 6.1% during the quarter. There was a significant year-over-year increase in imports to Iceland, driven primarily by a sharp rise in vehicle imports. This was offset by a decline in exports from Iceland due to substantially lower volume of industrial cargo.Volume in T...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Stjórnendauppgjör - Afkoma fjórða ársfjórðungs og ársins 2024

Eimskip: Stjórnendauppgjör - Afkoma fjórða ársfjórðungs og ársins 2024 Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs  Rekstur félagsins litaðist af krefjandi ytri aðstæðum.Tekjur námu 201,4 milljónum evra og lækkuðu um 25,8 milljónir evra eða 11,4% samanborið við fjórða ársfjórðung 2024. Magn í siglingakerfinu lækkaði um 6,1% á fjórðungnum. Töluverð aukning varð á innflutningi til Íslands á milli ára sem var keyrð áfram af mikilli aukningu í innflutningi á bifreiðum, en á móti var lækkun í útflutningi frá Íslandi vegna framleiðsluminnkunar hjá Norðuráli og áframhaldandi stöðvunar PCC. Magn í ...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Transaction in relation to a share buy-back program

Eimskip: Transaction in relation to a share buy-back program In week 4 2026 Eimskip purchased 40,000 of its own shares, at a purchase price of ISK 10,580,000 as further stipulated below: DateTimeNo. of sharesShare pricePurchase price19.01.202614:3735,0002649,240,00021.01.202612:505,0002681,340,000 The repurchase according to the share buy-back program is completed. Under current buy-back program, Eimskip has purchased a total of 2,249,680 shares in the company, corresponding to 99.99% of the maximum number of shares to be purchased under this program. Total purchase price is ISK 670,423,000...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch