Eimskip birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2020
Kynningarfundur 20. maí 2020
Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2020 eftir lokun markaða þriðjudaginn 19. maí.
Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri mun kynna uppgjör fjórðungsins.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 20. maí 2020 kl. 8:30 og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður hann eingöngu sendur út gegnum fjárfestasíðu félagsins . Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir kl. 8:00 á miðvikudagsmorgun á netfangið merkt fjárfestafundur.
Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.
Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips,
Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á .