Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í 4. viku 2026 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 40.000 eigin hluti fyrir ISK 10.580.000 eins og hér segir:
| Dagsetning | Tími | Magn | Verð | Kaupverð |
| 19.01.2026 | 14:37 | 35.000 | 264 | 9.240.000 |
| 21.01.2026 | 12:50 | 5.000 | 268 | 1.340.000 |
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið.
Eimskip hefur nú keypt samtals 2.249.680 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 99,99% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 670.423.000 sem nemur 89,39% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 29. September 2025. Endurkaupin munu að hámarki nema 2.250.000 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei hærri en 750 milljónir króna. Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 27. mars 2025, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Eimskip átti 3.935.000 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 3.975.000 hluti sem nemur 2,40% af heildarhlutafé félagsins.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052 sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang:
