Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í 42. viku 2023 keypti Eimskip 165.000 eigin hluti fyrir kr. 78.606.000 samkvæmt neðangreindu:
Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
16.10.2023 | 09:34 | 33.000 | 482,00 | 15.906.000 |
17.10.2023 | 09:37 | 33.000 | 478,00 | 15.774.000 |
18.10.2023 | 09:33 | 33.000 | 474,50 | 15.658.500 |
19.10.2023 | 09:39 | 33.000 | 474,50 | 15.658.500 |
20.10.2023 | 13:32 | 33.000 | 473 | 15.609.000 |
Samtals | 165.000 | 78.606.000 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í kauphöll þann 10. október 2023.
Eimskip átti 1.824.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 1.989.483 hluti sem nemur 1,19% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip hefur nú keypt samtals 264.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 12,28% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð er samtals kr. 125.911.500 sem nemur 12,59% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en kr. 1.000.000.000. Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang:
