Eimskip: Tilnefningarnefnd óskar eftir framboðum til stjórnar
Tilnefningarnefnd er undirnefnd stjórnar og hefur það hlutverk að aðstoða og upplýsa stjórn vegna ferils við framboð til stjórnar og varastjórnar, sem og öflun framboða/tilnefninga til stjórnar, varastjórnar og undirnefnda hennar.
Aðalfundur Eimskips verður haldinn 25. mars 2021 og óskar tilnefningarnefnd eftir framboðum til stjórnar.
Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem hægt er að nálgast á vefsvæði félagsins á slóðinni og skal skila á netfangið
Frestur til að skila inn framboðum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til klukkan 16:00 mánudaginn 22. febrúar 2021. Nefndin áskilur sér rétt eftir atvikum til að fjalla um framboð sem berast síðar.
Tillaga nefndarinnar að tilnefningu frambjóðenda til stjórnarsetu verður kynnt tveimur vikum fyrir aðalfund, með tillögum stjórnar eða 11. mars.
Almennum framboðsfresti til stjórnar lýkur tíu sólarhringum fyrir aðalfund eða kl. 16:00 þann 15. mars nk. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar fram að því tímamarki.