A1KBCM Eimskipafelag Islands hf

Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu annars ársfjórðungs og uppfærð afkomuspá

Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu annars ársfjórðungs og uppfærð afkomuspá

Samkvæmt stjórnendauppgjöri fyrir apríl og maí sem nú liggur fyrir, ásamt áætlun fyrir júní,  lítur út fyrir að EBITDA af rekstri á öðrum ársfjórðungi 2021 verði umtalsvert betri en afkoma sama ársfjórðungs síðasta árs og jafnframt betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hins vegar hefur nýgerð sátt við Samkeppniseftirlitið sem tilkynnt var um fyrr í dag neikvæð áhrif á afkomuna.

Það sem af er öðrum ársfjórðungi hefur reksturinn almennt gengið mjög vel þrátt fyrir krefjandi aðstæður á þeim mörkuðum sem félagið starfar á. Magn í áætlunarsiglingum hefur verið sterkt, góð nýting í gámasiglingakerfinu og þá hefur verið góður gangur í alþjóðlegri flutningsmiðlun félagsins. Jafnframt eru tekjustýringarverkefni sem ráðist hefur verið í ásamt hagræðingaraðgerðum síðustu missera að bæta afkomuna.

Áætlað er að aðlöguð EBITDA (án áhrifa sáttarinnar) á öðrum ársfjórðungi verði á bilinu 26 til 29 milljónir evra samanborið við 16,0 milljónir evra á sama ársfjórðungi síðasta árs. Aðlagað EBIT fjórðungsins er áætlað á bilinu 14 til 17 milljónir evra samanborið við 5,0 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi síðasta árs. Að teknu tilliti til sáttar við Samkeppniseftirlitið, að fjárhæð um 10 milljónir evra er áætlað að raun EBITDA á öðrum ársfjórðungi verði á bilinu 16 til 19 milljónir evra og EBIT á bilinu 4 til 7 milljónir evra.

Gangi spá um afkomu annars ársfjórðungs eftir má gera ráð fyrir að aðlöguð EBITDA á fyrri árshelmingi verði 42 til 45 milljónir evra samanborið við 25.3 milljónir evra á fyrri helmingi síðasta árs og að aðlöguð EBIT verði á bilinu 18 til 21 milljónir evra samanborið við 3.4 milljónir á fyrstu 6 mánuðum síðasta árs.

Til að auðvelda samanburð á rauntölum úr rekstri mun Eimskip það sem eftir er árs birta afkomuspá sína miðað við aðlagaða EBITDA án áhrifa sáttarinnar. Í ljósi afkomu fyrsta ársfjórðungs og væntrar afkomu af öðrum ársfjórðungi er aðlöguð EBITDA afkomuspá fyrir árið 2021 nú á bilinu 77 til 86 milljónir evra samanborið við 68 til 77 milljónir evra sem upphaflega var birt í desember 2020. Ný afkomuspá er líkt og áður háð fjölda áhættu- og óvissuþátta sem geta þýtt að afkoman verði umtalsvert frábrugðin því sem greint er frá í þessari spá.

Öðrum ársfjórðungi er ólokið og getur afkoman tekið breytingum af þeim sökum sem og í uppgjörsferlinu.

Eimskip birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða fimmtudaginn 19. ágúst.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á .



EN
16/06/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eimskipafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

Results of Eimskip's 2026 Annual General Meeting

Results of Eimskip's 2026 Annual General Meeting Enclosed are the results of the Annual General Meeting of Eimskipafélag Íslands hf. held today, Thursday 26 March 2026, and updated Articles of Association of the Company. Shareholders presenting 83,2% of the company's voting share participated in the meeting. The Company will now request the Icelandic Register of Enterprises to grant the Company an exemption from the duty to issue a call to creditors, cf. Article 53.2 of the Act no. 2/1995 respecting Public Limited Companies, regarding reduction of own shares. Attachments ...

 PRESS RELEASE

Niðurstöður aðalfundar Eimskips 2026

Niðurstöður aðalfundar Eimskips 2026 Meðfylgjandi eru niðurstöður aðalfundar Eimskipafélags Íslands hf. sem haldinn var í dag, fimmtudaginn 26. mars 2026, ásamt uppfærðum samþykktum félagsins. Hluthafar sem ráða yfir 83,2% af virku hlutafé tóku þátt í fundinum.  Mun félagið nú óska eftir því við Fyrirtækjaskrá Skattsins að hún veiti félaginu undanþágu frá innköllunarskyldu, sbr. 2. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög, vegna lækkunar eigin bréfa. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Correction: Eimskip: Candidates to the Board of Directors and 2026 AGM...

Correction: Eimskip: Candidates to the Board of Directors and 2026 AGM’s final agenda Attachment that was missing in original release has now been added.  Enclosed is information on candidates to the Board of Directors of Eimskipafélag Íslands hf. to be elected at the Annual General Meeting 26 March 2026. Deadline for declaring candidacy has passed. According to the Company's Articles of Association the Annual General Meeting elects five members and two alternate members for the Board of Directors and therefore the candidates will be elected to the Board of Directors without ballot at the ...

 PRESS RELEASE

Leiðrétting: Eimskip: Frambjóðendur til stjórnar og endanleg dagskrá a...

Leiðrétting: Eimskip: Frambjóðendur til stjórnar og endanleg dagskrá aðalfundar 2026 Fyrra viðhengi vantaði í fyrri frétt. Bæði viðhengi eru nú hjálagt.  Meðfylgjandi eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins sem kosnir verða á aðalfundinum 26. mars 2026. Framboðsfrestur er útrunninn. Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur fimm menn í stjórn og tvo til vara og verður því sjálfkjörið. Upplýsingar um frambjóðendur eru hjálagt. Engar breytingar urðu frá áður birtri dagskrá og tillögum fundarins. Endanleg dagskrá og tillögur fundarins eru hjálagt. Aðalfundur Eimskipafélag...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Candidates to the Board of Directors and 2026 AGM’s final age...

Eimskip: Candidates to the Board of Directors and 2026 AGM’s final agenda Enclosed is information on candidates to the Board of Directors of Eimskipafélag Íslands hf. to be elected at the Annual General Meeting 26 March 2026. Deadline for declaring candidacy has passed. According to the Company's Articles of Association the Annual General Meeting elects five members and two alternate members for the Board of Directors and therefore the candidates will be elected to the Board of Directors without ballot at the meeting. Information on the candidates is attached. No changes were made from the...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch