A1KBCM Eimskipafelag Islands hf

Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu þriðja ársfjórðungs

Eimskip: Upplýsingar varðandi afkomu þriðja ársfjórðungs

Samkvæmt stjórnendauppgjöri fyrir júlí og ágúst sem nú liggur fyrir, ásamt áætlun fyrir september, lítur út fyrir að EBITDA af rekstri á þriðja ársfjórðungi 2021 verði umtalsvert betri en á sama ársfjórðungi síðasta árs.

Áætlað er að EBITDA á þriðja ársfjórðungi verði á bilinu 33,2 til 36,2 milljónir evra samanborið við 21,4 milljónir evra á sama ársfjórðungi síðasta árs.  Að teknu tilliti til væntra afskrifta má gera ráð fyrir að EBIT fjórðungsins verði á bilinu 20,1 til 23,1 milljónir evra samanborið við 10,4 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi síðasta árs.

Gangi þetta eftir verður um umtalsverða hækkun á rauntölum úr rekstri milli tímabila að ræða og má þá gera ráð fyrir að afkoma félagsins á árinu 2021 verði nær efri mörkum uppfærðrar afkomuspár sem gefin var út 19. ágúst sl. Framangreint byggir á rauntölum úr rekstri fyrstu sex mánaða 2021, stjórnendauppgjörum fyrir júlí og ágúst sem nú liggja fyrir, núverandi áætlun fyrir september og rekstrarspá fyrir það sem eftir lifir ársins.

Þriðja ársfjórðungi er ólokið og geta niðurstöður tekið breytingum af þeim sökum sem og í uppgjörsferlinu.

Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða þriðjudaginn 9. nóvember.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á .



EN
20/09/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eimskipafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

Publishing of Eimskip's third quarter 2025 results

Publishing of Eimskip's third quarter 2025 results Eimskipafélag Íslands hf. will publish its third quarter 2025 results after market closing on Tuesday 11 November.  Investor meeting on 12 November 2025 Eimskip invites investors and market participants to a meeting where Vilhelm Thorsteinsson, CEO and Rósa Guðmundsdóttir, CFO, will present the results. The meeting will be held on Wednesday 12 November at 8:30 GMT at the Company’s headquarters, Sundabakki 2, second floor. The meeting will also be webcasted live in Icelandic on /investors. Investors can send questions before the meeting t...

 PRESS RELEASE

Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2025

Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2025 Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudaginn 11. nóvember  2025.  Kynningarfundur 12. nóvember 2025 Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og Rósa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 12. nóvember nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð. Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins /investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en f...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Transaction in relation to a share buy-back program

Eimskip: Transaction in relation to a share buy-back program In week 44 2025 Eimskip purchased 175,000 of its own shares, at a purchase price of ISK 54,005,000 as further stipulated below: DateTimeNo. of sharesShare pricePurchase price27.10.202511:1135,00030910,815,00028.10.202509:4835,00030910,815,00029.10.202510:1435,00030910,815,00030.10.202509:4135,00030810,780,00031.10.202509:4735,00030810,780,000      The trade is in accordance with Eimskip‘s buy-back program as published on Nasdaq Iceland on 29 September 2025. The number of shares to be acquired under the buy-back program will be up ...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við e...

Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í 44. viku 2025 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 175.000 eigin hluti fyrir ISK 54.005.000 eins og hér segir: DagsetningTímiMagnVerðKaupverð27.10.202511:1135.00030910.815.00028.10.202509:4835.00030910.815.00029.10.202510:1435.00030910.815.00030.10.202509:4135.00030810.780.00031.10.202509:4735.00030810.780.000 Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 29. September 2025. Endurkaupin munu að hámarki nema 2.250.000 hlutum í félagin...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Transaction in relation to a share buy-back program

Eimskip: Transaction in relation to a share buy-back program In week 43 2025 Eimskip purchased 175,000 of its own shares, at a purchase price of ISK 58,135,000 as further stipulated below: DateTimeNo. of sharesShare pricePurchase price20.10.202510:23              35,000 363  12,705,000 21.10.202510:33              35,000 343  12,005,000 22.10.202509:41              35,000 338  11,830,000 23.10.202514:16              35,000 309  10,815,000 24.10.202509:49              35,000 308  10,780,000       The trade is in accordance with Eimskip‘s buy-back program as published on Nasdaq Iceland on 29 ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch