FLY PLAY HF

Breytingar á stórnendateymi PLAY samhliða auknum umsvifum

Breytingar á stórnendateymi PLAY samhliða auknum umsvifum



Breytingar á stórnendateymi PLAY samhliða auknum umsvifum

Sonja Arnórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs PLAY. Sonja tekur við sem framkvæmdastjóri sviðsins af Georgi Haraldssyni sem verður framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs. Sonja er með BS-gráðu í fjármálaverkfræði og hefur starfað við tekjustýringu hjá flugfélögum síðastliðin tíu ár. Hún starfaði sem sérfræðingur í tekjustýringu hjá WOW air þar sem hún leiddi tíu manna teymi og þá hefur hún starfað sem forstöðumaður tekjustýringar- og sölu hjá PLAY frá 2019.

Sonja mun nú bera ábyrgð á öllum sölu- og markaðsmálum hjá PLAY.

„Ég er virkilega spennt og ánægð með það tækifæri að fá að stýra öflugu sölu- og markaðsteymi PLAY. Síðustu tíu ár hef ég komið að uppbyggingu tveggja flugfélaga á Íslandi og tekist á við margvísleg krefjandi verkefni sem fylgja þessum geira. Að vinna við tekjustýringu hefur gefið mér góða innsýn og skilning á flestum deildum flugfélaga og þá sérstaklega í sölu- og markaðsmálum. Þá er ég með brennandi áhuga á þeim málum og reynslan mun nýtast vel við að byggja sviðið upp. PLAY hefur vaxið mikið á síðustu mánuðum og það er nóg fram undan,“ segir Sonja Arnórsdóttir.

„Það gleður mig mikið að bjóða Sonju velkomna í framkvæmdastjórn PLAY. Sonja hefur verið sannkölluð rokkstjarna innan PLAY sem forstöðumaður tekjustýringar- og sölu og tímabært að hún fái meiri ábyrgð enda frábær leiðtogi hér á ferð. Ég hlakka til að sjá hana leiða sölu-markaðsstarf PLAY á sama tíma og það er virkilega ánægjulegt að Georg geti tekið upplýsingatæknimálin fastari tökum með alla sína reynslu og þekkingu á því sviði. Það er síðan annar gleðilegur áfangi að nú séu jöfn kynjahlutföll í framkvæmdastjórn PLAY, þrjár konur og þrír karlar með mér,“ segir Birgir Jónsson.

Georg Haraldsson verður nú framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs PLAY en áður var hann framkvæmdastjóri sölu- og markaðssvið, auk upplýsingatæknisviðs. Vegna aukinna umsvifa PLAY mun félagið setja enn meiri áherslu á upplýsingatækni og stafræna þjónustu. Leitast verður við að hámarka sjálfvirknivæðingu, sjálfsafgreiðslu og ánægju viðskiptavina að þessu leyti. Georg mun leiða þá þróun áfram fyrir félagið en nú með meiri fókus en áður. Georg hefur starfað um árabil í störfum tengdum upplýsingatækni og stafrænni þróun, meðal annars hjá Völku, Iceland Express, Dohop og  Póstinum. Georg er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og er einnig með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá sama skóla og IE Business School.



Attachment



EN
24/06/2022

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings Following PLAY’s announcement earlier today that the company had ceased operations, the company’s Board of Directors submitted a petition to the Reykjavik District Court earlier today for the company to be placed into bankruptcy proceedings. A ruling is expected to be issued tomorrow.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum Í framhaldi á tilkynningu PLAY frá því fyrr í dag um að félagið hefði hætt starfsemi þá lagði stjórn félagsins fram beiðni fyrr í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur um að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Þess er vænst að úrskurður verði kveðinn upp á morgun.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations The Board of Fly Play hf. has decided to cease operations. All of the company’s flights have been canceled. The company will work closely with authorities and employees to implement necessary measures to wind down operations. There are several reasons for this decision, including: the company’s performance has long been weaker than expected, ticket sales have been poor in recent weeks and months following negative media coverage of its operations, and there has been discontent among some employees due to changes in the company’s strategy. Great...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi Stjórn Fly Play hf. hefur tekið þá ákvörðun að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Unnið verður náið með yfirvöldum og starfsfólki við að innleiða þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að leggja niður starfsemi félagsins.Ástæður þessarar ákvörðunar eru margar, þ.m.t.; rekstur félagsins hefur lengi gengið verr en vonir stóðu til, flugmiðasala hefur ekki gengið vel síðustu vikur og mánuði í kjölfar neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um reksturinn og þá hefur ríkt ósætti á meðal hluta starfsmanna félagsins vegna breytinga ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August PLAY carried 124,286 passengers in August 2025, compared to 187,960 passengers in August 2024. The difference year-on-year is primarily driven by the airline’s strategic shift in fleet deployment, with fewer aircraft operating within PLAY’s own route network due to ACMI leasing agreements with other operators. Despite the reduced capacity, the load factor was 89.6%, compared to 91.6% in August 2024. This slight decrease is a natural reflection of PLAY’s transition from a VIA-focused network, which typically achieves higher load fa...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch