FLY PLAY HF

Fly Play hf.: Betri nýting með breyttri stefnu

Fly Play hf.: Betri nýting með breyttri stefnu



Flugfélagið Play flutti 116.023 farþega í júní 2025, samanborið við 173.109 í júní 2024. Þessi munur endurspeglar ákvörðun félagsins að leggja áherslu á áætlunarflug frá Íslandi og leiguverkefni fyrir aðra flugrekendur. 

 

Sætanýtingin hækkaði á milli ára, úr 86,0% árið júní 2024 í 86,8% í júní 2025. Þetta er sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að Play hefur beint sjónum sínum að sólarlandaáfangastöðum í Suður-Evrópu, sem skila gjarnan hærri tekjum en lægri sætanýtingu vegna minni tengifarþegafjölda.  

Hærri sætanýting endurspeglar agaðri og markvissari rekstur, sem er afrakstur ákvörðunar Play að breyta viðskiptalíkandi félagsins. Af þeim farþegum sem flugu með Play í júní 2025 voru 41,9% á leið frá Íslandi, 33,0% að koma til landsins og 25,1% tengifarþegar (VIA) 

 

Stundvísi Play í júní var 88,8%. 



Aftur flogið til Álaborgar og 4 ár frá fyrsta flugi 

Í júní hóf Play aftur flug til Álaborgar í Danmörku. Félagið mun fljúga tvisvar í viku til Álaborgar í júlí og fram í miðjan ágúst. PLAY flýgur nú til þriggja áfangastaða í Danmörku: Kaupmannahafnar, Álaborgar og Billund. 

 

Play með viðburði í áætlunarferðum sínum og sértilboð fyrir viðskiptavini, til að minnast fyrsta flugs Play sem var 24. júní árið 2021. Það eru því meira en fjögur ár síðan félagið hóf sig á loft. 



Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play: 

„Frammistaða okkar í júní endurspeglar jákvæð áhrif stefnubreytingarinnar sem við höfum ráðist í. Með því að draga úr framboði og beina áætlun okkar í meira mæli að vinsælum sólarlandaáfangastöðum, náum við betri nýtingu og hærri tekjum á hvert sæti. Þetta er skýr vísbending um þann árangur sem breytt leiðakerfi og agaðri rekstur færir félaginu. Hærri sætanýting sýnir að hagræðingin er að skila árangri — reksturinn er nú markvissari, hagkvæmari og betur í takt við eftirspurn. Ég er sérstaklega stoltur af teyminu okkar hjá PLAY fyrir öflugt starf, þar á meðal glæsilega stundvísi upp á 88,8% í júní. Þetta er jákvæð þróun sem endurspeglar þá vegferð sem við erum á.” 



 

Viðhengi



EN
07/07/2025

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: PLAY’s Strategic Shift Drives Improved load

Fly Play hf.: PLAY’s Strategic Shift Drives Improved load   PLAY airlines carried 116,023 passengers in June 2025, compared to 173,109 in June 2024. This reduction reflects the company's decision to change its business model and split it between scheduled operations in Iceland and leasing operations.Despite the decrease in total passengers and available seat kilometers (ASK), the load factor rose to 86.8% in June 2025, up from 86.0% in June 2024. This is particularly notable given PLAY’s shift toward leisure destinations in Southern Europe, which historically yield higher fares but often ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Betri nýting með breyttri stefnu

Fly Play hf.: Betri nýting með breyttri stefnu Flugfélagið Play flutti 116.023 farþega í júní 2025, samanborið við 173.109 í júní 2024. Þessi munur endurspeglar ákvörðun félagsins að leggja áherslu á áætlunarflug frá Íslandi og leiguverkefni fyrir aðra flugrekendur.  Sætanýtingin hækkaði á milli ára, úr 86,0% árið júní 2024 í 86,8% í júní 2025. Þetta er sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að Play hefur beint sjónum sínum að sólarlandaáfangastöðum í Suður-Evrópu, sem skila gjarnan hærri tekjum en lægri sætanýtingu vegna minni tengifarþegafjölda.  Hærri sætanýting endurspeglar agaðri og mar...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Impact of Potential Takeover on Company Operations

Fly Play hf.: Impact of Potential Takeover on Company Operations See the attached announcement from Fly Play hf. Attachment

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Áhrif mögulegrar yfirtöku á rekstur félagsins

Fly Play hf.: Áhrif mögulegrar yfirtöku á rekstur félagsins Sjá meðfylgjandi tilkynningu frá Fly Play hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Two of PLAY’s Largest Shareholders Seek to Acquire the C...

Fly Play hf.: Two of PLAY’s Largest Shareholders Seek to Acquire the Company Fly Play hf. has received a notification from the company BBL 212 hf. regarding a proposed voluntary takeover offer by BBL 212 hf. for all shares in Fly Play hf. The leading parties behind BBL 212 hf. are Einar Örn Ólafsson, investor and CEO of Fly Play hf., and Elías Skúli Skúlason, investor and Vice Chairman of the Board of Fly Play hf. The following documents are attached: Notification from BBL 212 hf. (in English)Press release about the plans of BBL 212 hf. (in Icelandic)Investor presentatio...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch