FLY PLAY HF

Fly Play hf. - Hraustlegur vöxtur í sætanýtingu og PLAY opnar útibú í Litháen

Fly Play hf. - Hraustlegur vöxtur í sætanýtingu og PLAY opnar útibú í Litháen

 

Hraustlegur vöxtur í sætanýtingu og PLAY opnar útibú í Litháen

-Sætanýting var 67,7% í október og vex hraustlega á milli mánaða eða um 30% samanborið við september

-Jákvæðar horfur og vaxandi eftirspurn

-PLAY hefur flutt um 68 þúsund farþega frá upphafi

-Fjárhagsstaða er sterk, handbært fé mikið og engin vaxtaberandi bankalán

-PLAY gekk vel að lágmarka kostnað og rekstur er því í samræmi við væntingar. COVID-19 faraldurinn hafði þó neikvæð áhrif á tekjur og afkomu félagsins

-PLAY opnar útibú í Litháen í desember

-Nýjum áfangastöðum hefur verið bætt við leiðarkerfi PLAY og eru 16 talsins. Fleiri áfangastaðir verða kynntir á næstunni

Á þriðja ársfjórðungi einblíndi PLAY á uppbyggingu rekstrar með öryggi og velgengni að leiðarljósi. Í júlí var sætanýting 41,7% þegar PLAY flutti 9.899 farþega sinn fyrsta heila mánuð í háloftunum. Sætanýting batnaði í ágúst og mældist 46,6% og farþegarnir voru um 17,300. Í september flutti PLAY 15.223 farþega og sætanýtingin var 52,1%. Sætanýting óx hraustlega í október og var 67,7% og PLAY flutti tæplega 25.000 farþega.

Mannauður PLAY óx áfram á þriðja ársfjórðungi en 63 starfsmenn gengu til liðs við fyrirtækið, 41 flugliði, 12 flugmenn og 10 starfsmenn á skrifstofu. Í dag starfa 135 starfsmenn hjá PLAY.

Rekstur á þriðja ársfjórðungi var undir væntingum vegna áhrifa COVID-19 á tekjur félagsins. Allir aðrir fjárhagsliðir, þar á meðal rekstrarkostnaður, voru í samræmi við væntingar. Fjárhagsstaða PLAY er sterk og lausafé mikið sem gerir félaginu kleift að fylgja viðskiptaáætlun sinni á komandi mánuðum þegar innviðir eru undirbúnir fyrir flug til Norður-Ameríku. Eigið fé  þann 30. september var 77 milljónir bandaríkjadollara sem jafngildir 29,2% eiginfjárhlutfalli.



Flugáætlun PLAY mun vaxa með flugi til Norður-Ameríku næsta vor

Tap fyrstu níu mánuðina 2021 var 10,8 milljónir bandaríkjadollara samanborið við 2,5 milljónir dollara fyrir sama tímabil árið á undan.

Framundan er vöxtur í flugáætlun PLAY með nýjum áfangastöðum í Evrópu og í Bandaríkjunum. Áhersla verður á undirbúning fyrir tengiflugsleiðakerfi (e.hub-and-spoke) PLAY. 

Þrátt fyrir að hlutfall bólusettra hækki stöðugt á mörkuðum PLAY þá fjölgar einnig skráðum tilfellum COVID-19. Fyrir vikið ríkir enn óvissa um áhrif heimsfaraldursins á rekstur næstu mánuðina. PLAY er vel í stakk búið til að standa af sér óvissutímabilið með sveigjanlegum rekstri og sterkri eiginfjárstöðu. Nýlegur vöxtur í skráðum COVID-19 tilfellum hefur enn sem komið er ekki haft neikvæð áhrif á sölu. 



Nýtt útibú PLAY í Vilníus í Desember

PLAY mun opna nýtt útibú í Vilníus í Litháen í desember. Höfuðstöðvar PLAY verða áfram á Íslandi, auk allra áhafna og flugreksturs. PLAY stígur þetta skref snemma í vaxtarfasanum enda mun félagið vaxa samhliða nýju útibúi í Vilníus. Starfsmenn PLAY í Litháen munu sinna ýmsum stoð- og tæknihlutverkum. Þegar er búið að ráða stöðvarstjóra og framundan er að ráða í aðrar stöður á skrifstofunni. Reiknað er með að fimmtán til tuttugu manns muni starfa á skrifstofu PLAY í Vilníus innan fárra mánaða.  

Með því að staðsetja hluta verkefna í Vilníus fær PLAY gott aðgengi að sérfræðingum innan upplýsingatækni, stafrænnar þróunar, markaðsmála, fjármála og þjónustu. Til dæmis mun tengiflugsleiðakerfi PLAY krefjast þjónustumiðstöðvar sem getur starfað allan sólarhringinn sem ekki er nauðsynlegt að staðsetja á Íslandi enda stærsti hluti viðskiptavina erlendir ferðamenn. Þjónustumiðstöð fyrir íslenska viðskiptavini verður áfram á Íslandi. Nýja útibúið mun enn fremur ýta undir alþjóðlega menningu og skapa tengingar við nýja birgja, þjónustuveitendur og samstarfsaðila sem geta boðið hagkvæm og álitleg kjör.

PLAY verður nú alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi á meginlandi Evrópu og Norður-Ameríku auk Íslands. PLAY etur kappi við flugfélög sem hafa lágan kostnaðargrundvöll og aðgengi að sérþekkingu á alþjóðlegum markaði. Það er því nauðsynlegt fyrir PLAY að geta mætt þeim sem jafningjum. Hugsunin er sú að halda niðri kostnaði og lágmarka yfirbyggingu svo hægt sé að bjóða lág fargjöld í hörðu samkeppnisumhverfi. Opnun skrifstofunnar í Vilníus er mikilvægt skref í þá átt að tryggja lágan kostnaðargrundvöll PLAY á sama tíma og félagið hefur starfsemi beggja vegna Atlantshafsins og undirbýr framtíðarvöxt.

Frekari upplýsingar:

Streymi frá fjárfestakynningu, 5. nóvember 2021

PLAY mun kynna uppgjör sitt á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 15:30 þann 5. nóvember 2021. Þar munu Birgir Jónsson forstjóri og Þóra Eggertsdóttir, fjármálastjóri PLAY, kynna uppgjörið og svara spurningum að því loknu.

Kynningunni verður streymt hér: .

Viðhengi



EN
04/11/2021

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings Following PLAY’s announcement earlier today that the company had ceased operations, the company’s Board of Directors submitted a petition to the Reykjavik District Court earlier today for the company to be placed into bankruptcy proceedings. A ruling is expected to be issued tomorrow.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum Í framhaldi á tilkynningu PLAY frá því fyrr í dag um að félagið hefði hætt starfsemi þá lagði stjórn félagsins fram beiðni fyrr í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur um að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Þess er vænst að úrskurður verði kveðinn upp á morgun.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations The Board of Fly Play hf. has decided to cease operations. All of the company’s flights have been canceled. The company will work closely with authorities and employees to implement necessary measures to wind down operations. There are several reasons for this decision, including: the company’s performance has long been weaker than expected, ticket sales have been poor in recent weeks and months following negative media coverage of its operations, and there has been discontent among some employees due to changes in the company’s strategy. Great...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi Stjórn Fly Play hf. hefur tekið þá ákvörðun að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Unnið verður náið með yfirvöldum og starfsfólki við að innleiða þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að leggja niður starfsemi félagsins.Ástæður þessarar ákvörðunar eru margar, þ.m.t.; rekstur félagsins hefur lengi gengið verr en vonir stóðu til, flugmiðasala hefur ekki gengið vel síðustu vikur og mánuði í kjölfar neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um reksturinn og þá hefur ríkt ósætti á meðal hluta starfsmanna félagsins vegna breytinga ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August PLAY carried 124,286 passengers in August 2025, compared to 187,960 passengers in August 2024. The difference year-on-year is primarily driven by the airline’s strategic shift in fleet deployment, with fewer aircraft operating within PLAY’s own route network due to ACMI leasing agreements with other operators. Despite the reduced capacity, the load factor was 89.6%, compared to 91.6% in August 2024. This slight decrease is a natural reflection of PLAY’s transition from a VIA-focused network, which typically achieves higher load fa...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch