FLY PLAY HF

Fly Play hf.: Metmánuður hjá PLAY sem flutti 110.000 farþega með 87,9% sætanýtingu

Fly Play hf.: Metmánuður hjá PLAY sem flutti 110.000 farþega með 87,9% sætanýtingu

Metmánuður hjá PLAY sem flutti 110.000 farþega með 87,9% sætanýtingu

PLAY flutti 109.937 farþega í júlí, sem er 25 prósenta aukning frá mánuðinum áður þegar 87.932 farþegar flugu með PLAY. Fjöldi farþega í júlí 2022 er meiri en samanlagður fjöldi allra farþega sem PLAY flutti á árinu 2021. Sætanýting nam 87,9 prósentum í júlí samanborið við 78,2 prósent í júní og 69,6 prósent í maí.

Þessi hagfellda þróun helgast að mestu leyti af tengiflugi PLAY yfir Atlantshafið á milli stórborga í Evrópu og Bandaríkjunum. Félagið hefur rutt sér til rúms á nýjum mörkuðum með afgerandi hætti í vor og í sumar og styrkt stöðu sína enn frekar þar sem starfsemi var hafin. Júlímánuður markaði þau tímamót að hann var fyrsti mánuðurinn þar sem PLAY flaug á alla áfangastaði sem höfðu verið boðaðir í ár. Flogið var á sex Airbus-þotum til að þjónusta þessa 25 staði beggja vegna Atlantshafs.

PLAY var með 79 prósenta stundvísi í júlí sem telst mjög ásættanlegt sé litið til þess hve mörgum nýjum mörkuðum hefur verið bætt við og vegna krefjandi aðstæðna sem víða eru uppi vegna manneklu á flugvöllum erlendis.

Sex þotur í rekstri og tíu á næsta ári

Sjötta þota PLAY, Airbus A320neo, kom til Íslands um síðustu mánaðamót og flutti sína fyrstu farþega í júlí. PLAY er nú með þrjár Airbus A321neo og þrjár Airbus A320neo í rekstri, sem er í samræmi við rekstraráætlun og flotastefnu félagsins. PLAY fær fjórar A320/321 til viðbótar næsta vetur, sem mun gera fjölda Airbus-þota hjá félaginu tíu talsins vorið 2023.

„Það er frábært að sjá svona marga nýja áfangastaði og tengiflugið okkar yfir Atlantshafið á fullum afköstum. Leiðakerfið okkar er komið á fullan skrið og flytur sögulegan fjölda ánægðra viðskiptavina í hverjum mánuði. Í júlí vorum við á mjög góðri leið með stundvísina þrátt fyrir bagalegar aðstæður á flugvöllum. Við lítum á það sem afrek. Hver kostnaðareining (án eldsneytis) er enn undir fjórum bandarískum sentum, eldsneytisverð fer lækkandi, tekjueiningin fer hækkandi og bókunarstaðan er afar góð. Það hefur verið virkilega hvetjandi að fá að taka þátt í þessu ferli og verða vitni að þeim mikla liðsanda og fagmennsku sem einkennir alla mína samstarfsmenn. Allt þetta fyllir mig af eldmóði og eftirvæntingu fyrir komandi mánuðum og framtíð PLAY. Hún er björt,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY."



Viðhengi



EN
08/08/2022

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings Following PLAY’s announcement earlier today that the company had ceased operations, the company’s Board of Directors submitted a petition to the Reykjavik District Court earlier today for the company to be placed into bankruptcy proceedings. A ruling is expected to be issued tomorrow.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum Í framhaldi á tilkynningu PLAY frá því fyrr í dag um að félagið hefði hætt starfsemi þá lagði stjórn félagsins fram beiðni fyrr í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur um að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Þess er vænst að úrskurður verði kveðinn upp á morgun.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations The Board of Fly Play hf. has decided to cease operations. All of the company’s flights have been canceled. The company will work closely with authorities and employees to implement necessary measures to wind down operations. There are several reasons for this decision, including: the company’s performance has long been weaker than expected, ticket sales have been poor in recent weeks and months following negative media coverage of its operations, and there has been discontent among some employees due to changes in the company’s strategy. Great...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi Stjórn Fly Play hf. hefur tekið þá ákvörðun að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Unnið verður náið með yfirvöldum og starfsfólki við að innleiða þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að leggja niður starfsemi félagsins.Ástæður þessarar ákvörðunar eru margar, þ.m.t.; rekstur félagsins hefur lengi gengið verr en vonir stóðu til, flugmiðasala hefur ekki gengið vel síðustu vikur og mánuði í kjölfar neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um reksturinn og þá hefur ríkt ósætti á meðal hluta starfsmanna félagsins vegna breytinga ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August PLAY carried 124,286 passengers in August 2025, compared to 187,960 passengers in August 2024. The difference year-on-year is primarily driven by the airline’s strategic shift in fleet deployment, with fewer aircraft operating within PLAY’s own route network due to ACMI leasing agreements with other operators. Despite the reduced capacity, the load factor was 89.6%, compared to 91.6% in August 2024. This slight decrease is a natural reflection of PLAY’s transition from a VIA-focused network, which typically achieves higher load fa...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch