FLY PLAY HF

Fly Play hf.: PLAY hefur safnað áskriftarloforðum að andvirði 4 milljarða króna

Fly Play hf.: PLAY hefur safnað áskriftarloforðum að andvirði 4 milljarða króna

Fly Play hf. („PLAY“ eða „félagið“) hefur tryggt sér áskriftarloforð að andvirði 1.400 milljónir króna til viðbótar við áskriftir að upphæð 2.600 milljónir króna sem áður var tilkynnt um. Skilyrði áskrifta um lágmarksáskrift fyrir a.m.k. 4.000 milljónir króna hefur því verið uppfyllt og eru áskriftirnar nú eingöngu háðar því skilyrði að hluthafar PLAY samþykki að veita stjórn félagsins heimild til að auka hlutafé félagsins á aðalfundi þann 21. mars næstkomandi. Áskriftargengi á hvern hlut er 4,5 kr.

Til viðbótar við ofangreinda hlutafjáraukningu mun stjórn félagsins leggja til við hluthafa að stjórninni verði veitt umboð til að efna til almenns útboðs að jafnvirði allt að 8 milljónum evra í íslenskum krónum á genginu 4,5 kr. á hlut. Til að tryggja jafnfræði hluthafa munu núverandi hluthafar njóta forgangs ef til umframáskriftar kemur. Útboðið er undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020, um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði.

Ráðgert er að yfirfærsla PLAY yfir á Aðalmarkað Nasdaq Iceland geti átt sér stað fyrir lok annars ársfjórðungs og gengur sú vinna samkvæmt áætlun.

Birgir Jónsson, forstjóri PLAY:

„Það hefur verið virkilega ánægjulegt að verða vitni að þeim jákvæðu undirtektum sem fjárfestar hafa sýnt kynningu okkar á hlutafjáraukningunni. Með þeim skuldbindingum sem við höfum nú móttekið ásamt skuldbindingum okkar stærstu hluthafa, sem áður hafði verið tilkynnt um, hefur Play nú tryggt sér 4 milljarða eiginfjár innspýtingu. Sú tala kann að stækka í kjölfar útboðs sem áætlað er í kjölfar aðalfundar félagsins í mars.

Hlutafjáraukningin styrkir fjárhagsstöðu félagsins verulega og gerir því kleift að grípa spennandi tækifæri til vaxtar og/eða mæta óvæntum áföllum. Þetta er mikilvægur áfangi fyrir okkar góða félag og starfsfólk félagsins. Það er magnað að upplifa hvernig fagmennskan hjá starfsfólki félagsins heldur áfram að þróast. Metnaðurinn hjá hópnum er einstakur og það eru lífsgæði að starfa með jafn öflugu fólki og hér er að finna hjá PLAY“

Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu, útgáfu og töku hinna nýju hlutabréfa til viðskipta ásamt því að annast innheimtu og uppgjör viðskiptanna í tengslum við útboðið. Arctica Finance hf. og Fossar fjárfestingarbanki hf. eru sameiginlegir söluaðilar í útboðinu og hefur Greenhill (Mizuho) veitt félaginu ráðgjöf.

Arctica Finance hf. hefur umsjón með töku hlutabréfa PLAY til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.



EN
29/02/2024

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings Following PLAY’s announcement earlier today that the company had ceased operations, the company’s Board of Directors submitted a petition to the Reykjavik District Court earlier today for the company to be placed into bankruptcy proceedings. A ruling is expected to be issued tomorrow.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum Í framhaldi á tilkynningu PLAY frá því fyrr í dag um að félagið hefði hætt starfsemi þá lagði stjórn félagsins fram beiðni fyrr í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur um að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Þess er vænst að úrskurður verði kveðinn upp á morgun.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations The Board of Fly Play hf. has decided to cease operations. All of the company’s flights have been canceled. The company will work closely with authorities and employees to implement necessary measures to wind down operations. There are several reasons for this decision, including: the company’s performance has long been weaker than expected, ticket sales have been poor in recent weeks and months following negative media coverage of its operations, and there has been discontent among some employees due to changes in the company’s strategy. Great...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi Stjórn Fly Play hf. hefur tekið þá ákvörðun að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Unnið verður náið með yfirvöldum og starfsfólki við að innleiða þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að leggja niður starfsemi félagsins.Ástæður þessarar ákvörðunar eru margar, þ.m.t.; rekstur félagsins hefur lengi gengið verr en vonir stóðu til, flugmiðasala hefur ekki gengið vel síðustu vikur og mánuði í kjölfar neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um reksturinn og þá hefur ríkt ósætti á meðal hluta starfsmanna félagsins vegna breytinga ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August PLAY carried 124,286 passengers in August 2025, compared to 187,960 passengers in August 2024. The difference year-on-year is primarily driven by the airline’s strategic shift in fleet deployment, with fewer aircraft operating within PLAY’s own route network due to ACMI leasing agreements with other operators. Despite the reduced capacity, the load factor was 89.6%, compared to 91.6% in August 2024. This slight decrease is a natural reflection of PLAY’s transition from a VIA-focused network, which typically achieves higher load fa...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch