HAGA Hagar HF

Hagar hf.: Hagnaður á 2. ársfjórðungi 1.709 millj. kr.

Hagar hf.: Hagnaður á 2. ársfjórðungi 1.709 millj. kr.

Uppgjör Haga hf. á 2. ársfjórðungi 2021/22

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2021/22 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 19. október 2021. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2021 til 31. ágúst 2021. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.



Helstu lykiltölur

  • Vörusala 2F nam 34.885 millj. kr. (2020/21: 30.924 millj. kr.). Vörusala 6M nam 66.919 millj. kr. (2020/21: 59.165 millj. kr.).
  • Framlegðarhlutfall 2F var 21,2% (2020/21: 23,5%). Framlegðarhlutfall 6M var 21,3% (2020/21: 22,1%).
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 2F nam 3.263 millj. kr. (2020/21: 3.019 millj. kr.). EBITDA fyrstu 6M nam 5.541 millj. kr. (2020/21: 4.316 millj. kr.).
  • Hagnaður 2F nam 1.709 millj. kr. eða 4,9% af veltu (2020/21: 1.321 millj. kr. og 4,3% af veltu). Hagnaður 6M nam 2.436 millj. kr. eða 3,6% af veltu (2020/21: 1.225 millj. kr. og 2,1% af veltu).
  • Grunnhagnaður á hlut 2F var 1,48 kr. (2020/21: 1,12 kr.). Grunnhagnaður á hlut 6M var 2,11 kr. (2020/21: 1,04 kr.). Þynntur hagnaður á hlut 2F var 1,47 kr. (2020/21: 1,12 kr.). Þynntur hagnaður á hlut 6M var 2,10 kr. (2020/21: 1,04 kr.).
  • Eigið fé nam 26.161 millj. kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 40,7% (Árslok 2020/21: 25.187 millj. kr. og 40,9%).
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2021/22 gerir ráð fyrir að EBITDA verði 9.300-9.800 millj. kr.



Helstu fréttir af starfseminni

  • Góður ársfjórðungur að baki með aukinni veltu en framlegðarhlutfall heldur undir áætlunum.
  • Áhrif COVID-19 faraldursins fara minnkandi á rekstur samstæðunnar nú þegar landsmenn eru farnir að ferðast á ný og fleiri ferðamenn koma til landsins.
  • Uppgjör vegna sölu eigna Útilífs er lokið og var félagið afhent í lok 2F. Söluhagnaður sem fram kemur í rekstrarreikningi 2F er um 273 millj. kr.
  • Fyrirvörum vegna kaupa Haga á Djús ehf. aflétt og fjárhagsleg áhrif af rekstri félagsins koma fram, í formi hlutdeildartekna, frá og með 2. júlí 2021.
  • Í samræmi við samþykkt aðalfundar var gengið frá samningum um kauprétti við lykilstarfsmenn félagsins. Alls voru veittir 11,8 millj. hlutir eða um 1,0% hlutafjár í félaginu.
  • Í júní skrifuðu Hagar og Olís undir samkomulag við Reykjavíkurborg vegna fækkunar eldsneytisstöðva innan borgarmarkanna, sem og framtíðaruppbyggingu Haga á lóðum í Mjóddinni.
  • Í september undirrituðu Hagar, Reginn, Klasi og KLS eignarhaldsfélag viljayfirlýsingu um uppbyggingu og rekstur öflugs fasteignaþróunar­félags.



Finnur Oddsson, forstjóri: 

Rekstur Haga á öðrum fjórðungi rekstrarársins 2021/2022 gekk vel. Tekjur námu 34.885 millj. kr. og jukust um 13% miðað við sama tímabil í fyrra. Afkoma á fjórðungnum batnaði á milli ára, en EBITDA nam 3.263 millj. kr. og hagnaður 1.709 millj. kr., sem er um 30% aukning. Við erum ánægð með starfsemi félagsins á fyrri helming rekstrarárs, sérstaklega töluverða tekjuaukningu og aukinn hagnað, sem nam 2.436 millj. kr. á tímabilinu í samanburði við 1.225 millj. kr. í fyrra.

Þessi viðsnúningur í rekstri Haga á fyrri helmingi árs skýrist af bættri afkomu hjá öllum helstu rekstrareiningum félagsins, þ.e. Bónus, Hagkaup og Olís. Afkoma af rekstri Olís er mun betri en var í fyrra, en eftirspurn hefur aukist samhliða meiri umsvifum í samfélaginu og fjölgun ferðamanna í vor og sumar. Að auki hefur markviss aðlögun í rekstri þjónustustöðva skilað umtalsverðu hagræði í rekstrarkostnaði. Tekjur í dagvöruverslun hafa haldið áfram að aukast og framlegð heldur styrkst,  sem skilar bættri rekstrarafkomu hjá verslunum og vöruhúsum. 

Aðlögun starfsemi Haga að nýjum stefnumótandi áherslum gengur ágætlega, en þær miða m.a. að því að auka fókus á kjarnastarfsemi félagsins, efla tengingu við viðskiptavini og treysta sérstöðu vörumerkja dótturfélaga. Sölu og uppgjöri vegna rekstrareininga, Útilíf og Reykjavíkur Apóteki, er lokið. Áfram er unnið að því að aðlaga og styrkja vöruframboð þjónustustöðva og verslana, m.a. með skýrari afmörkun þjónustuframboðs, stuðningi við nýsköpun og nýja aðila í matvælaframleiðslu, og kaupum á Djús ehf. sem rekur Lemon veitingastaðina. Vinnu við uppbyggingu netverslunar Haga og dótturfélaga miðar vel, en þar er horft til uppbyggingar yfir lengri tíma og samhliða verður lagður grunnur að frekari nýtingu upplýsingatækni við ákvörðunartöku og til að bæta þjónustu við viðskiptavini. Það er svo ánægjulegt að við höfum fengið nýja liðsmenn til að taka þátt í þessari vegferð Haga, en í síðasta mánuði tóku Jóhanna Jónsdóttir við sem framkvæmdastjóri Banana og Frosti Ólafsson við sem framkvæmdastjóri Olís.

Í lok september var gengið frá viljayfirlýsingu á milli Haga, Klasa og Regins um uppbyggingu og rekstur öflugs fasteignafélags, þar sem Hagar greiða fyrir eignarhlut í félaginu með þróunareignum. Þetta er í samræmi við markaða stefnu þar sem gert er ráð fyrir aðkomu sérhæfðra aðila til að styðja við uppbyggingu og verðmætasköpun í tengslum við lóðir og fasteignir Haga. Gert er ráð fyrir að eignarhlutur hvers eiganda um sig, þ.e. Haga, Regins og KLS eignarhaldsfélags, núverandi eiganda Klasa, verði um 1/3 af útgefnu hlutafé og að verðmæti undirliggjandi fjárfestingareigna verði um 15 ma. kr. Við gerum ráð fyrir að fyrirhugað samstarf stuðli að bæði hraðari og hagkvæmari uppbyggingu á þróunarreitum Haga og treysti þannig verðmætasköpun fyrir hluthafa félagsins.

Horfur í rekstri Haga eru áfram góðar. Heldur hefur dregið úr neikvæðum áhrifum vegna COVID-19 og gert er ráð fyrir að eftirspurn á eldsneytismarkaði muni halda áfram að aukast með auknum umsvifum og ferðamannastraumi. Þá er gert ráð fyrir að eftirspurn eftir dagvöru verði nokkuð stöðug, en þó má búast við að fleiri Íslendingar fari utan á næstunni, í samanburði við fyrra ár, sem gæti hægt á tekjuvexti. Einnig er ástæða til að draga athygli að væntanlegum verðhækkunum á hrá- og neytendavöru sem til komnar eru vegna hnökra á aðfangakeðjum og aukinni eftirspurn í heimshagkerfinu. 

Spá stjórnenda um afkomu gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðu á rekstrarárinu verði á bilinu 9.300-9.800 millj. kr. Fjárhagsleg staða er sterk og félagið því vel í stakk búið að fylgja eftir nýjum stefnumótandi áherslum og takast á við ögrandi aðstæður í íslensku efnahagslífi. Sem fyrr er það markmið okkar að efla hag viðskiptavina með því að gera verslun hagkvæma, þægilega og skemmtilega.



Kynningarfundur miðvikudaginn 20. október 2021

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík, miðvikudaginn 20. október kl. 08:30. Þar mun Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á vefslóðinni:

Kynningargögn verða aðgengileg við upphaf fundar á heimasíðu Haga, .

Frekari upplýsingar um uppgjörið má finna í meðfylgjandi fréttatilkynningu og árshlutareikningi.



Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins () og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs (), í síma 530-5500 eða tölvupósti.

Viðhengi



EN
19/10/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hagar HF

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 19. febrúar 2026

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 19. febrúar 2026 Hagar hf. luku í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki HAGA260826. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.100 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,65% - 7,90%. Tilboðum að fjárhæð 840 m.kr. var tekið á 7,75% flötum vöxtum. Útgáfudagur og uppgjör viðskipta er 26. febrúar 2026. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Nánari upplýsingar veita: Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf.,...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við...

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun (vika 8) og lok endurkaupaáætlunar Í viku 8 keyptu Hagar hf. 1.928.991 eigin hluti að kaupverði kr. 231.793.683 eins og hér segir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti16.2.202609:31200.000120,00024.000.00016.110.02316.2.202614:11250.000120,00030.000.00016.360.02316.2.202614:43219.940120,00026.392.80016.579.96317.2.202613:43500.000120,00060.000.00017.079.96318.2.202611:35500.000120,50060.250.00017.579.96319.2.202615:24259.051120,25031.150.88317.839.014  1.928...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við...

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - vika 7 Í viku 7 keyptu Hagar hf. 2.209.820, eigin hluti að kaupverði kr. 268.206.229, eins og hér segir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti10.2.202609:42300.000122,00036.600.00014.000.20310.2.202612:28250.000122,00030.500.00014.250.20310.2.202615:06119.940122,00014.632.68014.370.14311.2.202610:19148.069122,00018.064.41814.518.21211.2.202610:47200.000122,00024.400.00014.718.21211.2.202615:16321.871121,00038.946.39115.040.08312.2.202609:37200.000121,00024....

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Útboð á víxlum 19. febrúar 2026

Hagar hf.: Útboð á víxlum 19. febrúar 2026 Hagar hf. efna til útboðs á víxlum fimmtudaginn 19. febrúar 2026. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki HAGA260826. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboð...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Hagar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 27. maí 2025 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlunin mun hefjast þann 10. febrúar 2026. Endurkaupin munu að h...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch