HAGA Hagar HF

Hagar hf.: Jóhanna Þ. Jónsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Banana ehf.

Hagar hf.: Jóhanna Þ. Jónsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Banana ehf.

Jóhanna Þ. Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Banana ehf., dótturfélags Haga hf., en líkt og fram kom í tilkynningu þann 2. júlí sl. hefur Kjartan Már Friðsteinsson beðist lausnar úr starfi eftir langan og farsælan feril. Jóhanna hefur víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun, einkum á sviði aðfangastýringar, rekstri vöruhúsa og innkaupa. Hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri aðfangakeðju Innnes ehf. sem er ein af stærstu matvöruheildverslunum landsins.  Áður vann hún hjá Distica, Bláa Lóninu og Össuri. Jóhanna er með B.Sc. gráðu frá Tækniháskóla Íslands og hefur lokið MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Jóhanna mun hefja störf á næstu vikum.



Finnur Oddsson, forstjóri Haga:

„Það er sérlega ánægjulegt og fengur fyrir Banana og Haga að fá Jóhönnu til liðs við afar sterkan hóp sem þar starfar fyrir.  Jóhanna býr að víðtækri reynslu á sviðum sem skipta sköpum í okkar rekstri, sérstaklega tengt stjórnun aðfangakeðju, gæðamálum og uppbyggingu framúrskarandi þjónustuframboðs. Þá hefur Jóhanna mikla reynslu í bættri nýtingu í aðfangastýringu með tæknilausnum og mun sú reynsla nýtast félaginu vel í komandi verkefnum. Eftirspurn eftir ferskvöru á borð við grænmeti og ávexti hefur aukist verulega undanfarin ár og svo verður áfram.  Við sjáum mikil tækifæri í að efla enn frekar þjónustuframboð Banana en með því höldum við áfram að uppfylla þarfir viðskiptavina, sem og að stuðla að sjálfbærni og betri lýðheilsu.  Við bjóðum Jóhönnu sérstaklega velkomna í teymið."



Jóhanna Þ. Jónsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Banana:

„Ég er full tilhlökkunar að verða hluti af því öfluga teymi sem starfar hjá Banönum. Bananar eru glæsilegt fyrirtæki sem með sérlega góðu framboði af ávöxtum og grænmeti af bestu gæðum gegnir mikilvægu hlutverki í lýðheilsu landsmanna.  Áhugi neytenda og almenn neysla á grænmeti og ávöxtum hefur verið að aukast undanfarin ár og mun sú þróun að öllum líkindum halda áfram. Ég er því afar spennt fyrir verkefninu og þakklát fyrir traustið sem mér er sýnt til þess að leiða fyrirtækið inn í framtíðina, en byggja um leið á þeim trausta grunni sem til staðar er. Ég hlakka mikið til þess að hefja störf á næstu vikum."



Bananar ehf. eru stærsta innflutnings- og dreifingarfyrirtæki landsins í ávöxtum og grænmeti og þjóna stórum og kröfuhörðum hópi viðskiptavina, meðal annars verslunum, veitingahúsum, sjúkrahúsum, skólum og mötuneytum.  Bananar eru dótturfélaga Haga hf.



Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, forstjóri Haga ( ).



EN
20/08/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hagar HF

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Fjárfestakynning vegna stjórnendauppgjörs 2025/26 og uppgjö...

Hagar hf.: Fjárfestakynning vegna stjórnendauppgjörs 2025/26 og uppgjörs 4. ársfjórðungs Meðfylgjandi er fjárfestakynning Haga á stjórnendauppgjöri ársins 2025/26 og uppgjöri 4. ársfjórðungs sem haldin verður fyrir markaðsaðila og hluthafa kl. 8:30 í dag, föstudaginn 17. apríl 2026, á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík. Á fundinum munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum. Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið  og ver...

 PRESS RELEASE

Hagar hf: Management accounts for 2025/26 and Q4 results

Hagar hf: Management accounts for 2025/26 and Q4 results Strong operating year - new procurement partnership lowers prices The management accounts of Hagar hf. for the financial year 2025/26 have been reviewed by the Company’s Board of Directors. The report includes, among other things, key information on the Group’s operations, financial position and cash flows. The management accounts have not been audited by the Group’s auditors and do not include non-financial information. The audited annual financial statements, together with non-financial disclosures, will be published on 29 April. A...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Stjórnendauppgjör Haga 2025/26 og uppgjör 4. ársfjórðungs

Hagar hf.: Stjórnendauppgjör Haga 2025/26 og uppgjör 4. ársfjórðungs Gott rekstrarár að baki - nýtt innkaupasamstarf lækkar vöruverð Stjórnendauppgjör Haga hf. fyrir rekstrarárið 2025/26 hefur verið yfirfarið af stjórn félagsins. Í því er m.a. að finna helstu upplýsingar um rekstur, efnahag og sjóðstreymi samstæðunnar. Stjórnendauppgjörið er ekki endurskoðað af endurskoðendum samstæðunnar og inniheldur ekki ófjárhagslegar upplýsingar. Endurskoðaður ársreikningur, ásamt ófjárhagslegum upplýsingum, verður birtur þann 29. apríl nk. og kann uppgjörið því að taka breytingum fram að þeim tíma. G...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Information on the publication of Management‘s report for 2...

Hagar hf.: Information on the publication of Management‘s report for 2025/26 and Q4 results Hagar hf. will publish the management‘s report for the 2025/26 financial year and the results for Q4, covering the period from 1 December to 28 February, after market close on Thursday, 16 April 2026. The audited annual financial statements for 2025/26 will be published on April 29 2026. A presentation meeting for investors and market participants will be held at Nauthóll, Nauthólsvegur 106, Reykjavík, on Friday, 17 April 2026, at 8:30 a.m. At the meeting, Finnur Oddsson, CEO, and Guðrún Eva Gunnar...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu stjórnendauppgjörs 2025/26 og uppgj...

Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu stjórnendauppgjörs 2025/26 og uppgjörs 4. ársfjórðungs Hagar hf. birta stjórnendauppgjör rekstrarársins 2025/26 og uppgjör 4. ársfjórðungs, þ.e. tímabilið 1. desember til 28. febrúar, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 16. apríl nk. Endurskoðaður ársreikningur félagsins 2025/26 verður birtur þann 29. apríl nk. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík, föstudaginn 17. apríl kl. 08:30. Þar munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch