Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 21. maí 2025
Hagar hf. luku í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki HAGA251126.
Heildartilboð í flokkinn námu samtals 700 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,75% - 8,15%.
Tilboðum að fjárhæð 620 m.kr. var tekið á 8,05% flötum vöxtum.
Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 27. maí 2025. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar veita:
Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000,
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf.,
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf.,
