HAGA Hagar HF

Hagar hf.: Nýr samningur um viðskiptavakt við Fossa fjárfestingabanka

Hagar hf.: Nýr samningur um viðskiptavakt við Fossa fjárfestingabanka

Hagar hf. og Fossar fjárfestingabanki hf. hafa gert með sér samning um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Samningi Haga hf. um viðskiptavakt við Íslandsbanka hf. hefur verið sagt upp.

Fossar skuldbinda sig til að setja fram, á hverjum viðskiptadegi, bæði reglubundin og fyrirsjáanleg kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar, bæði áður en Kauphöllin opnar og á meðan viðskipti eiga sér stað.

Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera að lágmarki 200.000 kr. að nafnvirði á gengi sem Fossar  ákveða. Slíkt tilboð skal þó ekki hafa meira en 3,0% frávik frá síðasta viðskiptaverði hlutanna í Kauphöllinni. Verðbil kaup- og sölutilboða skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni, á þann veg að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki lægra en 1,45%. Þó skal Fossum vera heimilit að setja fram kaup- og sölutilboð með lægra verðbili en að framan greinir við sérstakar aðstæður, t.d. í tengslum við breytingar á verðskrefatöflu Kauphallarinnar.

Eigi Fossar viðskipti með hluti útgefanda innan sama viðskiptadags sem nema samtals 75.000.000 kr. að markaðsvirði eða meira, sem fram fara um veltubók Fossa (markaðsvakt bankans), falla niður framangreindar skyldur Fossa um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags. Ef verðbreyting á hlutabréfum útgefanda innan sama viðskiptadags er umfram 5,0% er Fossum heimilt að auka hámarksverðbil í 3,0%.

Samningurinn tekur gildi 15. júlí 2023 og er ótímabundinn með 14 daga uppsagnafresti.

Samningur félagsins um viðskiptavakt við Kviku banka hf. helst óbreyttur.



Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500.



EN
30/06/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hagar HF

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Hagar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 27. maí 2025 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlunin mun hefjast þann 12. ágúst 2025. Endurkaupin munu að hám...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Niðurstöður í endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsf...

Hagar hf.: Niðurstöður í endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi Hagar hf. ákváðu að taka tilboðum fyrir 1.000.000 hluti á genginu 103 í endurkaupum sem tilkynnt var um föstudaginn 27. júní 2025. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er miðvikudagurinn 2. júlí 2025. Endurkaupin eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tækn...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyr...

Hagar hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 27. maí 2025 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum, frá samþykkt, hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupin munu að hám...

 PRESS RELEASE

Hagar hf: Uppgjör Haga á 1. ársfjórðungi 2025/26

Hagar hf: Uppgjör Haga á 1. ársfjórðungi 2025/26 Bætt afkoma og sterk byrjun á rekstrarárinu Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2025/26 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 26. júní 2025. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2025. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf. Helstu lykiltölur* Vö...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 1. ársfjórðungs 2025/26

Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 1. ársfjórðungs 2025/26 Hagar hf. birta uppgjör 1. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2025, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 26. júní nk. Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn sama dag, þann 26. júní kl. 16:00 þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum. Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið og verður þeim svarað ein...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch