HAGA Hagar HF

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 29. viku 2022 keyptu Hagar hf. 1.500.000 eigin hluti fyrir kr. 109.687.500 eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.) Eigin hlutir eftir viðskipti
18.7.2022 09:45 375.000 73,25 27.468.750 2.250.000
19.7.2022 11:18 375.000 73,25 27.468.750 2.625.000
20.7.2022 10:33 375.000 73,25 27.468.750 3.000.000
22.7.2022 11:21 375.000 72,75 27.281.250 3.375.000
    1.500.000   109.687.500 3.375.000



Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd þann 5. júlí 2022, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 4. júlí 2022.

Hagar hafa keypt samtals 3.375.000 hluti í félaginu sem samsvarar 2,98% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 244.031.250 sem samsvarar 48,81% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 0,30% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.132.676.082.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 113.267.608 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 1. júní 2023, eða fram að aðalfundi félagsins 2022, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995,  5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.



EN
25/07/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hagar HF

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 1. ársfjórðungs 2025/26

Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 1. ársfjórðungs 2025/26 Hagar hf. birta uppgjör 1. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2025, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 26. júní nk. Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn sama dag, þann 26. júní kl. 16:00 þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum. Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið og verður þeim svarað ein...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Niðurstöður aðalfundar hf. 27. maí 2025

Hagar hf.: Niðurstöður aðalfundar hf. 27. maí 2025 Meðfylgjandi má sjá niðurstöður aðalfundar Haga hf. sem haldinn var á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík þann 27. maí 2025. Fundurinn hófst kl. 15:00. Tillögur fundarins voru samþykktar svohljóðandi: Ársreikningur (dagskrárliður 2) Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, var lagður fram og samþykktur samhljóða. Ráðstöfun hagnaðar (dagskrárliður 3) Tillaga stjórnar Haga hf. um greiðslu arðs sem nemur 50,0% hagnaðar ársins, án áhrifa matsbreytinga og afkomu hlutdeildarfélaga, eða 2,28 krónur á hlu...

 PRESS RELEASE

Leiðrétting: Hagar hf.: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2024/25 komin út

Leiðrétting: Hagar hf.: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2024/25 komin út Við birtingu upplýsinga um árs- og sjálfbærniskýrslu 2024/25 fyrr í dag reyndust undirliggjandi upplýsingar í link við skýrsluna ekki vera réttar og leiðréttist það því hér með. Árs- og sjálfbærniskýrsla 2024/25 Árs- og sjálfbærniskýrsla Haga fyrir árið 2024/25 er komin út. Skýrslan er aðgengileg á stafrænu formi og má nálgast hana hér:  eða á heimasíðu félagsins . Aðalfundur Haga 27. maí 2025 Aðalfundur Haga hf. verður haldinn þriðjudaginn 27. maí 2025 og hefst hann kl. 15:00 á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík....

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2024/25 komin út

Hagar hf.: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2024/25 komin út Árs- og sjálfbærniskýrsla 2024/25 Árs- og sjálfbærniskýrsla Haga fyrir árið 2024/25 er komin út. Skýrslan er aðgengileg á stafrænu formi og má nálgast hana hér:  eða á heimasíðu félagsins . Aðalfundur Haga 27. maí 2025 Aðalfundur Haga hf. verður haldinn þriðjudaginn 27. maí 2025 og hefst hann kl. 15:00 á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík. Nánari upplýsingar um dagskrá og tillögur stjórnar má finna á heimasíðu Haga . Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga,

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Framboð til stjórnar á aðalfundi 27. maí 2025

Hagar hf.: Framboð til stjórnar á aðalfundi 27. maí 2025 Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn þriðjudaginn 27. maí 2025 og hefst hann kl. 15:00 á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík. Framboðsfrestur til stjórnar Haga hf. rann út þann 22. maí sl. Alls bárust fimm framboð til stjórnar félagsins, þar af fjögur frá núverandi stjórnarmönnum. Eftirtaldir einstaklingar hafa því gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins. Einar Örn Einarsson (f. 1977), framkvæmdastjóri ZócaloEiríkur S. Jóhannsson (f. 1968), forstjóri Kaldbaks ehf.Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972), lögmaður h...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch