Hagar hf.: Stjórnendauppgjör Haga 2025/26 og uppgjör 4. ársfjórðungs
Gott rekstrarár að baki - nýtt innkaupasamstarf lækkar vöruverð
Stjórnendauppgjör Haga hf. fyrir rekstrarárið 2025/26 hefur verið yfirfarið af stjórn félagsins. Í því er m.a. að finna helstu upplýsingar um rekstur, efnahag og sjóðstreymi samstæðunnar. Stjórnendauppgjörið er ekki endurskoðað af endurskoðendum samstæðunnar og inniheldur ekki ófjárhagslegar upplýsingar. Endurskoðaður ársreikningur, ásamt ófjárhagslegum upplýsingum, verður birtur þann 29. apríl nk. og kann uppgjörið því að taka breytingum fram að þeim tíma. Gerð verður grein fyrir frávikum, ef einhver eru, við birtingu ársreiknings. Samanburðarfjárhæðum, í efnahagsreikningi 28. febrúar 2025, hefur verið breytt til að endurspegla gangvirði kaupverðs SMS á yfirtökudegi vegna upplýsinga sem komu fram innan árs frá kaupum.
Helstu lykiltölur*
- Vörusala 4F nam 48.043 m.kr. (4,4% vöxtur frá 4F 2024/25). Vörusala 12M nam 197.043 m.kr. (9,3% vöxtur frá 12M 2024/25). [4F 2024/25: 46.037 m.kr., 12M 2024/25: 180.342 m.kr.]
- Framlegð 4F nam 12.296 m.kr. (25,6%) og 49.124 m.kr. (24,9%) fyrir 12M. [4F 2024/25: 11.508 m.kr. (25,0%), 12M 2024/25: 41.104 m.kr. (22,8%)]
- Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 4F nam 4.032 m.kr. eða 8,4% af veltu. EBITDA 12M nam 18.129 m.kr. eða 9,2% af veltu. [4F 2024/25: 3.857 m.kr. (8,4%), 12M 2024/25: 14.738 m.kr. (8,2%)]
- Hagnaður 4F nam 1.981 m.kr. eða 4,1% af veltu. Hagnaður 12M nam 7.394 m.kr. eða 3,8% af veltu. [4F 2024/25: 3.066 m.kr. (6,7%), 12M 2024/25: 7.030 m.kr. (3,9%)]
- Heildarafkoma 4F nam 1.836 m.kr. og 7.741 m.kr. fyrir 12M. [4F 2024/25: 6.735 m.kr., 12M 2024/25: 10.699]
- Grunnhagnaður á hlut 4F var 1,81 kr. og 6,75 kr. fyrir 12M. [4F 2024/25: 2,81 kr., 12M 2024/25: 6,47 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 4F var 1,66 kr. og 5,94 kr. fyrir 12M. [4F 2024/25: 2,71 kr., 12M 2024/25: 6,30 kr.]
- Eigið fé nam 42.779 m.kr. í lok árs og eiginfjárhlutfall 37,1%. [Árslok 2024/25: 38.489 m.kr. og 36,5%]
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2025/26 gerði ráð fyrir að EBITDA yrði á bilinu 17.600-18.100 m.kr.
*SMS varð hluti af samstæðu Haga á 4. ársfjórðungi 2024/25 og gætir áhrifa þeirra því aðeins á síðasta ársfjórðungi í samanburðartölum fyrra árs.
Helstu fréttir af starfsemi
- Góður ársfjórðungur að baki með ágætri veltuaukningu og góðri afkomu af öllum starfsþáttum – SMS nú á 4F í fyrsta sinn í samanburðartölum fyrra árs.
- Afnám olíugjalds um áramót hefur áhrif á veltu samstæðunnar en söluvöxtur hefði verið um 6,4% með óbreyttu olíugjaldi – framlegð í krónum óbreytt en framlegðarhlutfall hækkar.
- Heimsóknum viðskiptavina í dagvöruverslanir félagsins á Íslandi fjölgaði um 6,8% á 4F - seldum stykkjum fjölgaði um 3,2%.
- Seldum eldsneytislítrum fjölgaði um 1,2% á fjórðungnum – aukning bæði í smásölu og sölu til stórnotenda.
- Heimsóknum viðskiptavina hjá SMS í Færeyjum fjölgaði um 2,2% á fjórðungnum.
- Matsbreyting fjárfestingarfasteigna var neikvæð á 4F um 189 m.kr. en til samanburðar nam jákvæð matsbreyting síðasta árs 1.042 m.kr., þar af 922 m.kr. vegna einskiptisáhrifa fasteigna í rekstrarleigu hjá SMS.
- Hagar og Salling Group hefja innkaupasamstarf sem gerir Högum – Bónus og Hagkaup - kleift að lækka verð á hundruðum vara.
- Vinna við nýja miðlæga rekstrareiningu, Haga miðla, á lokametrunum en kynningarviðburður verður haldinn fyrir samstarfsaðila þann 17. apríl.
- Nýtt vildarkerfi Haga, Takk, sem gefið var út þann 14. janúar hefur fengið góðar viðtökur og „Takkarar“ eru nú orðnir tæplega 60 þúsund talsins.
- Framkvæmdir hafnar við standsetningu á aðstöðu fyrir Eldum rétt og Ferskar kjötvörur við Álfabakka 2 – gjaldfærður kostnaður vegna leigu 133 m.kr. á 4F.
- Hlutdeild Haga í hagnaði Klasa fasteignarþróunarfélags nam 828 m.kr. á 4F.
Finnur Oddsson, forstjóri:
Starfsemi Haga á síðasta ársfjórðungi rekstrarársins 2025/26 gekk vel á öllum sviðum og var afkoma umfram áætlanir. Vörusala nam 48.043 m.kr., sem er 4,4% aukning á milli ára, en litast af niðurfellingu olíugjalda frá áramótum, til lækkunar í samanburði við fyrra ár. EBITDA nam 4.032 m.kr. og hækkaði um 4,5% á milli ára og hagnaður nam 1.981 og lækkaði á milli ára. Ef tekið er tillit til einskiptistekjufærslna og matsbreytinga á fjárfestingarfasteignum á fyrra ári, þá styrktist EBITDA heldur meira á milli ára og hagnaður frá rekstri jókst.
Fjórðungurinn innsiglar gott rekstrarár samstæðu Haga þar sem nýrrar stoðar í rekstri félagsins, SMS í Færeyjum, gætir nú að fullu. Vörusala ársins nam 197.043 m.kr. og jókst um 9,3%, EBITDA var 18.129 m.kr., eða 9,2% af veltu og hagnaður ársins var 7.394 m.kr. Niðurstöður ársins endurspegla sterka stöðu allra rekstrareininga samstæðunnar og ágæta eftirspurn á þeim mörkuðum sem við störfum, bæði á Íslandi og í Færeyjum. Við erum ánægð með starfsemi félagsins á árinu og að samhliða góðum árangri í rekstri hafi verið stigin markviss skref í frekari útvíkkun á tekjugrunni og leiðum til arðbærs vaxtar.
Á fjórðungnum jukust tekjur Verslana og vöruhúsa á Íslandi um 8,1% frá sama tímabili og í fyrra, námu 35.687 m.kr., og afkoma starfsþáttar styrktist. Aukning í veltu, fjölda seldra stykkja og heimsókna staðfestir aukinn meðbyr með verslunum Haga. Metfjöldi viðskiptavina heimsótti Bónus á fjórðungum, sem skilaði sér í 9% tekjuaukningu og 4% aukningu í seldu magni. Viðskiptavinir hafa tekið uppfærðum áherslum í verslunum Bónus vel og stöðugri viðleitni til að tryggja viðskiptavinum hagkvæmustu kaupin á dagvöru í aðgengilegum verslunum um allt land. Úrval af ávöxtum, grænmeti, heilsuvörum og tilbúnum réttum hefur verið aukið og m.a. stutt við heilsuátak barna með sölu á 43 tonnum af Íþróttanammi í samstarfi við Latabæ. Þá fengu 95% barna sem fæddust á Íslandi á síðasta ári Barnabónus að gjöf, stuðningur sem léttir undir fjárhag meðal barnafjölskyldna. Með öflugu innkaupastarfi og nánu samstarfi við birgja hefur Bónus náð að lækka verð á um 850 vörum og haldið verði á um 1600 vörum til viðbótar óbreyttu á milli ára. Því til viðbótar spara viðskiptavinir sér tugi milljóna í hverjum mánuði á góðum tilboðum, m.a. tengt Ódýrast vikunnar í Bónus og Takk.
Jólaverslun í Hagkaup gekk vel og setti tóninn fyrir sterkan rekstur á fjórðungnum. Viðskiptavinir hafa ekki áður verið fleiri, en stöðugar nýjungar í þjónustu og fjölbreyttasta vöruúrval landsins í matvöru, snyrtivörum og leikföngum mælast vel fyrir. Vægi netverslunar Hagkaups með sérvöru og veislurétti fer vaxandi og viðskiptavinir hafa tekið nýrri netverslun með dagvöru í samstarfi við Wolt opnum örmum. Umsvif hjá Aðföngum og Banönum jukust í samræmi við gott gengi dagvöruverslana Haga á fjórðungnum. Heildsala Stórkaups með rekstrar- og heilbrigðisvöru gengur vel, en vöxtur í matvöru félagsins var sérstaklega sterkur. Þægilegar, einfaldar og gómsætar lausnir frá Eldum rétt njóta áfram mikilla vinsælda hjá landsmönnum og endurspeglast það í rekstri. Rekstur Zara gekk sömuleiðis vel og afkoma umfram áætlanir og fyrra ár.
Starfsemi Olís á fjórðungnum gekk heilt yfir vel. Tekjur námu 8.974 m.kr. og lækkuðu um 10% frá fyrra ári, eingöngu vegna niðurfellingar olíugjalds um áramót. Afkoma var umfram áætlanir en dróst heldur saman á milli ára. Seldum lítrum fjölgaði bæði í smásölu og til stórnotenda og áframhaldandi aukning var í sölu á þurrvöru, veitingum og öðrum þjónustuþáttum. Fimmta bílaþvottastöð Glans opnaði við Skúlagötu í febrúar. Rekstrarárið var með þeim sterkari í sögu félagsins, knúið áfram af góðri sölu eldsneytis á smásölumarkaði, hagræðingu í rekstrarkostnaði á undanförnum misserum og aukinni sölu á þjónustu og vörum annarri en eldsneyti, svo sem veitingum, bílaþvotti hjá Glans, heimsendingu með Wolt og afhending pakkasendinga.
Það er áfram góður gangur í starfsemi SMS í Færeyjum, tekjur voru 3.965 m.kr. og jukust um tæplega 9% á milli ára og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði. Afkoma reyndist aðeins undir síðasta ári og áætlunum, sem annars vegar má rekja til einskiptistekjufærslna á fyrra ári og hins vegar sölutaps á þessu ári í tengslum við hnökra á afhendingu aðfanga frá flutningsaðila um miðjan desember, skömmu fyrir jól. Heilt yfir gekk SMS vel á árinu og var afkoma vel umfram áætlanir.
Takk, vildarkerfi Haga samstæðunnar, sem hleypt var af stokkunum í janúar, hefur fengið góðar viðtökur; meðlimir sem nýta sér betri kjör, áhugaverð fríðindi og nýja þjónustuþætti eru nú um 60 þúsund, töluvert umfram það sem gert var ráð fyrir á fyrstu mánuðunum. Takk vildarkerfi gerir verslunum Haga kleift að sníða vöruframboð og þjónustu betur að þörfum viðskiptavina. Önnur spennandi nýjung, Hagar miðlar, hefur formlega starfsemi þann 17. apríl, þar sem samstarfsaðilum er gert kleift að miðla efni á sölustað á markvissari og áhrifaríkari hátt en í hefðbundnum auglýsingamiðlum. Fyrstu prófanir á virkni auglýsinga í Hagar miðlar lofa góðu og við hlökkum til að kynna þjónustuna betur fyrir góðum samstarfsaðilum á stórum opnunarviðburði á morgun.
Með Bónus í broddi fylkingar hafa Hagar alla tíð lagt áherslu á að halda vöruverði til viðskiptavina sem lægstu. Í þeim tilgangi er stöðugt unnið að því að lágmarka rekstrarkostnað og leita allra leiða til að halda niðri innkaupsverði á aðföngum til dagvöruverslunar, en þannig hefur félagið lagt sitt af mörkum í baráttu við verðbólgu. Því tengt er óumdeilt að rekstur Bónus hefur frá stofnun orðið til þess að halda aftur af hækkunum matvöruverðs á Íslandi. Nú eru hins vegar ákveðnar blikur á lofti því mikil hækkun olíuverðs vegna stríðs í Mið-Austurlöndum skapar þrýsting á aðfangaverð í dagvöruverslun um allan heim, enda framleiðslu- og flutningskostnaðar nátengdur olíuverði.
Í því ljósi er það sérstakt ánægjuefni að Hagar hafa byrjað nýtt innkaupasamstarf við danska smásölufyrirtækið Salling Group. Salling Group er stærsta fyrirtækið á sínu sviði í Danmörku og rekur yfir 2.100 verslanir undir nöfnum Netto, føtex, Bilka og Rimi í Danmörku, Þýskalandi, Póllandi og Eystrasaltslöndunum. Salling er þekkt fyrir mjög góð verð á fjölbreyttum vörulínum sem margar hverjar bera viðurkenndar skandinavískar gæðamerkingar á borð við Svaninn og Lykilinn. Samstarfið markar tímamót í dagvöruverslun á Íslandi, en með því nýtist verulegur innkaupakraftur Salling Group til þess að lækka verð á hundruðum vara í verslunum Haga á næstu misserum. Fyrstu vörurnar eru þegar komnar í hillur verslana Bónus og Hagkaups og mun þeim fjölga ört á næstu mánuðum. Við gerum ráð fyrir að verðlækkanir í verslunum Haga muni hafa jákvæð áhrif á verðþróun á dagvörumarkaði á næstu mánuðum og dragi þannig úr verðbólguþrýsting vegna matvöru.
Við erum ánægð með þróun samstæðu Haga á liðnu ári, en þar fór saman góð afkoma af rekstri og framgangur mikilvægra stefnumótandi áherslna. Ný stoð er orðin til með kröftugum rekstri SMS í Færeyjum, vildarkerfi Takk leit dagsins ljós og Hagar miðlar skapa ný tækifæri til samstarfs við birgja og aukna þjónustu við viðskiptavini. Þá var Glans bílaþvottur settur á laggirnar, en stöðvum fjölgaði hratt á árinu og eru þær nú á fimm staðsetningum á landinu. Á sama tíma höfum við nýtt árið til að undirbúa samstarf við Salling Group sem við trúum að muni skila viðskiptavinum Haga og félaginu sjálfu áþreifanlegum ávinningi til bæði skemmri og lengri tíma. Árangur þessarar vinnu endurspeglast í auknu virði fyrir hluthafa, en arðsemi eiginfjár hefur verið í samræmi við markmið og uppsafnaður hagnaður á hlut hefur aukist um 21% á síðasta ári og meira en þrefaldast á síðustu fimm árum. Verð hlutabréfa, leiðrétt fyrir arðgreiðslu, hækkaði um ríflega 21% á rekstrarárinu.
Gott gengi Haga á undangengnu ári má annars vegar þakka viðskiptavinum sem sýna okkur traust sitt í verki með því að beina til okkar viðskiptum og hins vegar frábærum hópi starfsfólks sem leggur sig á hverjum degi fram um að gera verslun skemmtilega, einfalda og hagkvæma. Þrátt fyrir ögrandi aðstæður sem við blasa í íslensku efnahagslífi og á alþjóðlegum mörkuðum fyrir olíu og aðföng, þá erum við bjartsýn á horfur í rekstri Haga. Staða Haga og rekstrareininga samstæðunnar er sterk og margvísleg tækifæri framundan til arðbærs vaxtar.
Afkomuspá fyrir rekstrarárið 2026/27 gerir ráð fyrir því að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 18.800 – 19.300 m.kr.
Kynningarfundur föstudaginn 17. apríl 2026
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík, föstudaginn 17. apríl kl. 08:30. Þar munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.
Fundinum verður auk þess streymt og er skráning á streymið hér: . Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á netfangið og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.
Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, , við upphaf fundar.
Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins (), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs (), í síma 530-5500 eða tölvupósti.
Viðhengi
