HAGA Hagar HF

Hagar hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi

Hagar hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi

Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 1. júní 2023 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum frá samþykkt hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Endurkaupin munu að hámarki nema 110.642.886 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 500 milljónir króna. Við endurkaup skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Samið hefur verið við Fossa fjárfestingarbanka hf. um að annast endurkaupin.  Kaupin hefjast með öfugu tilboðs fyrirkomulagi og samkvæmt hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæsta verði sem verður tekið. Ef ekki fæst þátttaka fyrir hámarksfjárhæð endurkaupanna munu regluleg endurkaup á markaði taka við. Allir hluthafar Haga hf. geta gert tilboð um að selja bréf sín til félagsins fyrir milligöngu Markaðsviðskipta Fossa fjárfestingarbanka hf. Hagar áskilja sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta.

Endurkaupin eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Tilboðum skal skila til Markaðsviðskipta Fossa fjárfestingarbanka hf., sem einnig svara fyrirspurnum, á netfangið  merkt „Hagar endurkaup“ fyrir kl. 08:30, miðvikudaginn 30. ágúst 2023.

Niðurstöður verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland fyrir kl. 9:30, miðvikudaginn 30. ágúst 2023. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er föstudagurinn 1. september 2023.

Hagar hf. eiga enga eigin hluti áður en endurkaupin samkvæmt tilboðsfyrirkomulaginu hefjast.



Nánari upplýsingar veita:

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á 

Markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka í gegnum netfangið 



EN
29/08/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hagar HF

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Breyting á viðskiptavakt

Hagar hf.: Breyting á viðskiptavakt Hagar hf. og Arion banki hf. hafa gert með sér samning um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Samningi Haga hf. um viðskiptavakt við Kviku banka hf. hefur samhliða verið sagt upp. Arion banki skuldbindur sig til að leggja fram, á hverjum viðskiptadegi Kauphallarinnar, bæði reglubundin og fyrirsjáanleg kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar, bæði áður en aðalmarkaður opnar og á meðan viðskipti eiga sér stað. Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera að lágmarki 200.000 hlutir í félaginu á gengi sem Arion banki...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: – Information on the publication of Q2 2025/26 results

Hagar hf.: – Information on the publication of Q2 2025/26 results Hagar hf. will publish its financial results for Q2 2025/26, covering the period 1 June to 31 August 2025, after market close on Thursday, 16 October 2025. A presentation meeting for investors and market participants will be held at Nauthóll, Nauthólsvegur 106, Reykjavík, on Friday, 17 October 2025, at 8:30 a.m. At the meeting, Finnur Oddsson, CEO, and Guðrún Eva Gunnarsdóttir, CFO, will present the company’s operations and financial performance and answer questions. The meeting will also be live-streamed, and registration...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 2. ársfjórðungs 2025/26

Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 2. ársfjórðungs 2025/26 Hagar hf. birta uppgjör 2. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. júní til 31. ágúst 2025, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 16. október nk. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík, föstudaginn 17. október kl. 08:30. Þar munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum. Fundinum verður auk þess streymt og er skráning á streymið hér: . Kynningargögn ver...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Uppfærð afkomuspá fyrir rekstrarárið 2025/26

Hagar hf.: Uppfærð afkomuspá fyrir rekstrarárið 2025/26 Uppgjör annars ársfjórðungs Haga hf., þ.e. tímabilið 1. júní til 31. ágúst 2025, verður birt þann 16. október nk. Samkvæmt drögum að uppgjörinu verður EBITDA afkoma félagsins umfram áætlanir en gert er ráð fyrir að EBITDA afkoma á öðrum ársfjórðungi verði á bilinu 5.450-5.550 millj. kr. Sterka afkomu á öðrum ársfjórðungi má einkum rekja til þriggja þátta. Rekstur Olís hefur verið vel umfram áætlanir, m.a. vegna góðs árangurs í eldsneytishluta félagsins, mikillar þurrvörusölu og hagræðingar í rekstri þjónustustöðva. Á sama tíma hefur r...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við...

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun (vika 37) og lok endurkaupaáætlunar Í viku 37 keyptu Hagar hf. 849.806 eigin hluti að kaupverði kr. 89.964.936 eins og hér segir:       DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti09/09/202510:50229.000106,00024.274.00013.177.36710/09/202511:24229.000105,00024.045.00013.406.36711/09/202509:43229.000106,50024.388.50013.635.36712/09/202511:14162.806106,00017.257.43613.798.173  849.806105,86589.964.93613.798.173 Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch