Hagar hf: Uppgjör Haga á 1. ársfjórðungi 2025/26
Bætt afkoma og sterk byrjun á rekstrarárinu
Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2025/26 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 26. júní 2025. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2025. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.
Helstu lykiltölur*
- Vörusala 1F nam 48.115 m.kr. (9,2% vöxtur frá 1F 2024/25). [1F 2024/25: 44.067 m.kr.]
- Framlegð 1F nam 11.619 m.kr. (24,1%). [1F 2024/25: 9.537 m.kr. (21,6%)]
- Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 1F nam 4.046 m.kr. eða 8,4% af veltu. [1F 2024/25: 3.214 m.kr. (7,3%)]
- Hagnaður 1F nam 1.165 m.kr. eða 2,4% af veltu. [1F 2024/25: 850 m.kr. (1,9%)]
- Heildarafkoma 1F nam 1.189 m.kr., en endurmat vegna fasteigna, fært á eigið fé, nam 69 m.kr. og neikvæður þýðingarmunur var 45 m.kr. [1F 2024/25: 850 m.kr.]
- Grunnhagnaður á hlut 1F var 1,06 kr. [1F 2024/25: 0,78 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 1F var 1,06 kr. [1F 2024/25: 0,77 kr.]
- Eigið fé nam 39.673 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 36,7%. [Árslok 2024/25: 38.489 m.kr. og 36,6%]
- Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2025/26 gerir ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 16.000-16.500 m.kr.
*SMS varð hluti af samstæðu Haga á 4. ársfjórðungi 2024/25 og gætir áhrifa þeirra því ekki í samanburðartölum fyrra árs
Helstu fréttir af starfsemi
- Rekstur á fyrsta ársfjórðungi gekk vel og var í samræmi við áætlanir stjórnenda - bætt afkoma einkum vegna áhrifa af rekstri SMS auk þess sem afkoma stærstu rekstrareininga styrkist milli ára.
- Heimsóknum viðskiptavina í dagvöruverslanir (á Íslandi) fjölgaði um tæp 6%. Seldum stykkjum fjölgaði einnig eða um tæpt 1%.
- Seldum eldsneytislítrum fækkaði um 17% á fyrsta ársfjórðungi - aukin sala í smásölu en samdráttur í heildarmagni, einkum vegna minni einskiptisviðskipta hjá erlendum stórnotendum.
- Gott gengi í þróun á stafrænum lausnum og þjónustum – nýrri netverslun Banana hleypt af stokkunum í apríl
- Aukin áhersla á vöruval og þægindi fyrir fjölskyldur - Barnabónus kynnt til sögunnar sem er stuðningur Bónus við ungar barnafjölskyldur á fyrstu mánuðum eftir fæðingu.
- Í samstarfi við Latabæ var stóru heilsuátaki ýtt úr vör sem miðar að því að auka neyslu barna á ferskum ávöxtum og grænmeti - íþróttanammi selt í verslunum Bónus, Hagkaups og Olís sem framleitt er af Bönunum.
Finnur Oddsson, forstjóri:
Rekstur Haga á rekstrarárinu 2025/26 fer vel af stað og staðfestir niðurstaða fyrsta fjórðungs sterka stöðu félagsins. Vörusala samstæðunnar nam 48,1 ma. kr. og jókst um 9,2% miðað við sama tímabil í fyrra. EBITDA nam 4.046 m.kr. og hagnaður var 1.165 m.kr., sem er töluverð bæting á milli ára. Starfsemi gekk vel á öllum sviðum, bæði á Íslandi og í Færeyjum, en samanburður við árið á undan litast af innkomu SMS í samstæðu Haga og umtalsverðri lækkun olíuverðs á milli ára.
Það er meðbyr í rekstri verslana og vöruhúsa á Íslandi, þar sem tekjur voru 33,6 ma. kr., jukust um 7% og afkoma styrktist. Seldum stykkjum og heimsóknum viðskiptavina í dagvöruverslanir fjölgaði, bæði í Bónus og Hagkaup. Sem fyrr þá dregur lágt vöruverð að í Bónus, en félagið hefur lagt sérstaka áherslu á að auðvelda viðskiptavinum enn ódýrari innkaup, m.a. með hagkvæmum pakkningum og vikulegum tilboðum undir yfirskriftinni „ódýrast vikunnar í Bónus“. Þá hafa nýtt vöruval og þægindi fyrir barnafjölskyldur mælst vel fyrir, allt frá íþróttanammi í samstarfi við Latabæ yfir í Barnabónus boxin, sem yfir 1000 fjölskyldur hafa sótt í tilefni af viðbót í fjölskylduna á árinu. Áherslur á borð við þessar hafa m.a. stuðlað að því að viðskiptavinum Bónus fjölgaði um tæp 7% á fjórðungnum.
Töluverð tekjuaukning var hjá Hagkaup á fjórðungnum og sýnir aukinn fjöldi heimsókna að viðskiptavinir kunna vel að meta fjölbreytt úrval og stöðugar nýjungar í vöruframboði. Fyrir utan einstakt úrval í matvöru til heimila, þá var Evrópumet sett í sölu á böngsum frá Build-A-Bear, veisluréttir Hagkaups nutu einstakra vinsælda í fermingar- og útskriftarveislum vorsins og ný snyrtivörudeild vakti lukku í Garðabæ.
Tekjur og afkoma Aðfanga og Banana endurspegla ágætan rekstur í dagvöruverslunum. Hjá Zara skilaði sterk vörulína tekjum og afkomu vel yfir áætlunum. Stórkaup vex áfram fiskur um hrygg, með töluverðri tekjuaukningu í sölu á rekstrar-, heilbrigðis- og matvöru til stórnotenda og nýjungar hjá Eldum rétt, m.a. skyndiréttir til sölu í Bónus, fara vel af stað. Stöðugt fleiri nýta sér þjónustu Veigar.is, netverslunar með áfengi.
Olís átti sterkan fjórðung þar sem tekjur voru 11,4 ma. kr. og afkoma batnaði. Tekjur drógust saman um 13%, sem stafar annars vegar af mikilli lækkun á heimsmarkaðsverði olíu miðað við fyrra ár og hins vegar af fækkun á seldum lítrum, aðallega vegna einskiptisviðskipta til erlendra stórnotenda. Eftirspurn á smásölumarkaði jókst töluvert, í eldsneyti, þurrvöru og veitingum. Samhliða aukinni sölu hefur skilvirkni í rekstri þjónustustöðva aukist sem stuðlar að áframhaldandi bættri afkomu. Söluferli á hlut Olís í Olíudreifingu var slitið í lok apríl, en rekstur félagsins hefur gengið vel.
Rekstur verslana og veitingastaða SMS í Færeyjum gengur vel. Tekjur voru ríflega 3,8 ma. kr. og var afkoma umfram áætlanir.
Það er ánægjulegt hvað starfsemi Haga fer vel af stað á árinu, nú með liðsinni frá nýjum samstarfsfélögum og frábærum viðskiptavinum í Færeyjum. Við búum að traustum fjárhag Haga, öflugum rekstri allra helstu eininga, fjölda viðskiptavina sem treysta okkur á hverjum degi og frábæru teymi starfsfólks sem kappkostar að bæta lífskjör viðskiptavina með því að gera verslun hagkvæma og skemmtilega. Varnarlína gegn hækkun aðfanga og verðbólgu verður áfram í forgrunni hjá okkur samhliða áherslu á að auka skilvirkni rekstrar og nýta tækifæri til arðbærs vaxtar. Horfur í rekstri Haga eru góðar.
Rafrænn kynningarfundur í dag, fimmtudaginn 26. júní 2025
Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn í dag, fimmtudaginn 26. júní kl. 16:00, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.
Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan útsendingu stendur á netfangið og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.
Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: .
Kynningargögn eru hér meðfylgjandi og eru auk þess aðgengileg á heimasíðu Haga, , við upphaf fundar.
Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins (), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs (), í síma 530-5500 eða tölvupósti.
Viðhengi
