HAMP Hampidjan Ltd

Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf.

Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf.

Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 29. maí 2020, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2019 samþykkt samhljóða.

Sjálfkjörið var í félagsstjórn.

Formaður félagsstjórnar

Vilhjálmur Vilhjálmsson

Meðstjórnendur

Kristján Loftsson

Auður Kristín Árnadóttir

Guðmundur Ásgeirsson

Sigrún Þorleifsdóttir

Úrdráttur úr ræðu stjórnarformanns

Í ræðu sinni vék Vilhjálmur Vilhjálmsson stjórnarformaður að áhrifum Covid-19 á rekstur Hampiðjunnar og sagði eftirfarandi:

“Almennt má segja að sú röskun, sem við höfum orðið fyrir til þessa vegna vírussins, hafi verið minni en gera mátti ráð fyrir í upphafi. Sala okkar fyrstu fjóra mánuði þessa árs er óverulega minni en fyrstu fjóra mánuði síðasta árs eða tæp 2%. Þó er rétt að geta þess að sala Jackson í Skotlandi sem kom inn í samstæðuna um áramótin vegur tæp 4% og salan 5,5% minni þegar tillit er tekið til þess.  EBITDA afkoma samstæðu Hampiðjunnar er hins vegar betri fyrstu fjóra mánuði þessa árs en á sama tímabili síðasta ár.  Það er of snemmt að segja til um hvernig maí kemur út en væntanlega fer allt að færast í fyrra horf nú þegar faraldurinn er að ganga niður í okkar helstu starfslöndum.”

Einnig nefndi Vilhjálmur í ræðu sinni að eitt af dótturfyrirtækjum Hampiðjunnar á Íslandi hefði sótt um bætur fyrir nokkra starfsmenn sina en afþakkað þær fyrir mánuði síðan:

“Tólf starfsmenn dótturfélags Hampiðjunnar hf, Hampiðjan Ísland ehf., sóttu um hlutabætur vegna skerts starfshlutfalls í upphafi apríl mánaðar.  Umsóknin var sett fram þegar mikil óvissa ríkti og kórónuveirufaraldurinn hafði töluverð áhrif á rekstur starfstöðva félagsins.  Ekki var hægt að halda uppi starfsemi vegna fjarlægðarreglu og takmörkunum á fjölda starfsmanna í einu rými. Umsóknirnar voru dregnar til baka þann 28. apríl síðastliðinn og fengu allir starfsmenn félagsins laun sín greidd að að fullu frá félaginu um mánaðarmótin apríl-maí.  Þeir starfsmenn sem fengu greiddar bætur inn á sína reikninga, endurgreiddu bæturnar til Vinnumálastofnunar og var síðasta endurgreiðslan gerð þann 6. maí. Enginn kostnaður fellur því á ríkið vegna starfsmanna félagsins, hvorki vegna sóttkvíar eða hlutabóta. Eins og sjá má af dagsetningunum var ákveðið að draga umsóknirnar til baka mörgum dögum áður en umræða  um endurgreiðslur hófst.”

Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar: 

Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að á árinu 2020 vegna rekstrarársins 2019 verði greiddar 1,15 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 563 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 30. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 29. maí 2019, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 3. júní.  Arðleysisdagurinn er 2. júní.

Tillaga um þóknanir fyrir komandi starfsár

Þóknun til stjórnarmanna verði 210.000 kr. á mánuði, formaður fái þrefaldan hlut.

Tillaga um endurskoðunarfélag

Endurskoðunarfélag verði PricewaterhouseCoopers ehf. 

Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 29. maí 2020 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengið skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.

EN
29/05/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hampidjan Ltd

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. – Tilkynning á grundvelli 19. gr. MAR

Hampiðjan hf. – Tilkynning á grundvelli 19. gr. MAR Meðfylgjandi er tilkynning vegna móttöku stjórnarmanneskju í Hampiðjunni hf. á fyrirframgreiddum arfi, sbr. 19. gr. MAR reglugerðarinnar. Sjá nánar í viðhengdri tilkynningu. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf - Niðurstaða aðalfundar 20. mars 2026

Hampiðjan hf - Niðurstaða aðalfundar 20. mars 2026 Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 20. mars 2026, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2025 samþykkt samhljóða. Sjálfkjörið var í félagsstjórn. Formaður félagsstjórnarVilhjálmur Vilhjálmsson MeðstjórnendurAuður Kristín ÁrnadóttirKristján LoftssonLoftur Bjarni GíslasonSigrún Þorleifsdóttir Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar:   Tillaga um greiðslu arðsAðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að á árinu 2026 vegna rekstrarársins 2025 verði greiddar 0,44 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða um 275 ...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. - Tillögur fyrir aðalfund

Hampiðjan hf. - Tillögur fyrir aðalfund Hampiðjan hefur móttekið meðfylgjandi ályktunartillögu fyrir aðalfund Hampiðjunnar hf. frá hluthöfum. Um er að ræða tillögu undir liðnum önnur mál um að komið verði á fót tilnefningarnefnd. Þá hefur stjórn félagsins ákveðið að uppfæra tillögu sína um starfskjarastefnu félagsins með því að bæta við 8 grein starfskjarastefnunnar eftirfarandi setningu: "Kaupaukar til forstjóra og annarra æðstu stjórnenda Hampiðjunnar hf. skulu að hámarki nema 5 mánaða grunnlaunum fyrir viðkomandi rekstrarár." Meðfylgjandi er ályktunartillagan frá hluthöfum ásamt uppfærð...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. - Frambjóðendur til stjórnar

Hampiðjan hf. - Frambjóðendur til stjórnar Eftirtaldir aðilar hafa boðið sig fram til setu í stjórn og til stjórnarformennsku á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður 20. mars 2026. Stjórnarformaður:Vilhjálmur Vilhjálmsson Meðstjórnendur:Auður Kristín ÁrnadóttirKristján LoftssonLoftur Bjarni GíslasonSigrún Þorleifsdóttir Þar sem frambjóðendur eru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem á að kjósa á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll er sjálfkjörið í stjórnarsætin fimm. Nánari upplýsingar um frambjóðendur liggja frammi á skrifstofu...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. - Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er hal...

Hampiðjan hf. - Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 20. mars 2026 kl. 16:00 Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn föstudaginn 20. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum Hampiðjunnar að Skarfagörðum 4, Reykjavík, Dagskrá:   1.          Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2025.  2.          Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar reikningsársins 2025.  3.          Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar.  4.          Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins.  5.          Kosning stjórnar félagsins.           ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch