ICESEA Iceland Seafood International hf

Iceland Seafood International hf: Dótturfélag ISI undirritar kaupsamning um kaup á tveimur frystitogurum ásamt veiðiheimildum

Iceland Seafood International hf: Dótturfélag ISI undirritar kaupsamning um kaup á tveimur frystitogurum ásamt veiðiheimildum

THORPESCA S.A.S., nýstofnað argentínskt dótturfélag Iceland Seafood Ibérica, hefur undirritað kaupsamning við FOOD ARTS S.A. um kaup á tveimur frystitogurum, ENTRENA UNO og ENTRENA DOS, ásamt tilheyrandi veiðileyfum og sögulegum veiðiréttindum. Heildarkaupverð nemur 5,8 milljónum bandaríkjadala.

Iceland Seafood Ibérica starfar nú þegar í Argentínu í gegnum dótturfélagið Achernar, sem var stofnað árið 2012 og er sjávarafurðafyrirtæki með áherslu á vinnslu og afurðasölu. Eftir kaup Iceland Seafood Ibérica á félaginu árið 2017 hefur það verið stórlega eflt og nútímavætt, sérstaklega vinnslustöðin í Puerto Madryn. Achernar er þekkt fyrir framleiðslu á villtri  rækju, sem nýtur mikillar eftirspurnar vegna lits, áferðar og bragðs. Rækjan er veidd í Suður-Atlantshafi og Achernar er eitt fárra fyrirtækja með MSC-vottun (Marine Stewardship Council) fyrir sjálfbærar veiðar á rækju veiddri á Rawson veiðitímabilinu.

Kaupin eru liður í stefnumótun félagsins

Kaupin á þessum tveimur togurum styðja við langtímamarkmið Iceland Seafood Ibérica, einkum með því að styrkja starfsemi félagsins í Argentínu og auka breidd í framboði á argentínskri rækju. Með þessum fjárfestingum nýtir félagið yfirgripsmikla reynslu sína af landfrystri villtri rækju og eykur aðgang að sjófrystri rækju, hágæðavöru með hærra markaðsvirði.

Eignarhald á togurunum veitir beint aðgengi að hráefni og stuðlar að lóðréttri samþættingu í virðiskeðju villtrar rækju. Það styrkir aðfangakeðjuna, styður við núverandi landvinnslu og opnar nýjar leiðir til sölu á verðmætari sjófrystum afurðum.

Þessi kaup eru hluti af stefnumótunarverkefnum Iceland Seafood International (ISI) sem samþykkt voru árið 2024, þar sem áhersla er lögð á markvissar fjárfestingar í Argentínu til að styrkja stöðu samstæðunnar og núverandi starfsemi á svæðinu.

Kaupin marka mikilvægt skref í að efla rekstrargetu Iceland Seafood Ibérica, samþættingu í aðfangakeðju og samkeppnisstöðu félagsins á alþjóðlegum rækjumarkaði.

Frekari upplýsingar:

Iceland Seafood International hf.

Ægir Páll Friðbertsson



EN
18/07/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Iceland Seafood International hf

 PRESS RELEASE

Iceland Seafood International hf: Consolidated Financial Statements 20...

Iceland Seafood International hf: Consolidated Financial Statements 2025 2025 Normalised PBT of €10.6 Million Exceeds Outlook  Sales for 2025: €484.3m, up 9% from 2024  Sales for Q4 2025: €136.7m up 6% from Q4 2024  Net Margin for 2025: €50.7 million, up €5.5 million  EBITDA for 2025 was €22.8m up from €18.0m 2024  Normalised Profit Before Tax: €10.6 million vs. €7.4 million in 2024  Net Profit: €7.4 million, improved from a €2.8 million profit in 2024  EPS for 2025: Positive €0.2313 cents per share, vs. positive €0.0866 in 2024  Total Assets: €279.4 million, up €25.5 million from t...

 PRESS RELEASE

Iceland Seafood International hf: Samstæðureikningur ársins 2025

Iceland Seafood International hf: Samstæðureikningur ársins 2025 Hagnaður yfir afkomuspá ársins.  Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi árið 2025 var 1,5 milljarður króna  Rekstrartekjur samstæðunnar námu rúmlega 70,1 milljarði ISK (€484.3m) fyrir árið 2025 sem er 9% aukning frá 2024  Rekstrartekjur á fjórða ársfjórðungi 2025 námu 19,8 milljörðum ISK: (€136.7m), sem er aukning um 6% frá sama ársfjórðungi 2024  Framlegð 2025 var 7,3 milljarðar (€50.7m) hækkar um 799 milljónir ISK milli ára (€5.5m)  EBITDA fyrir árið 2025 er 3,3 milljarðar ISK (€22.8m), en var 2,6 milljarður ISK (...

 PRESS RELEASE

Iceland Seafood International hf: Q4 and 2025 full year results

Iceland Seafood International hf: Q4 and 2025 full year results Iceland Seafood will publish its interim consolidated financial statements for Q4 and 2025 full-year results after the markets close on February 26th, 2026. On the same day, at 4:30 pm, the company will host an online meeting for investors and market participants, where management will present and discuss the results. The meeting will only be streamed online. Participants in the online meeting can send questions in writing before and during the meeting to the email .    A link to the webcast and the investor presentation is h...

 PRESS RELEASE

Iceland Seafood International hf:Leiðrétting á birtingardegi ársuppgjö...

Iceland Seafood International hf:Leiðrétting á birtingardegi ársuppgjörs 2025 Iceland Seafood International hf. óskar að leiðrétta fyrri tilkynningu varðandi birtingardag ársfjórðungs- og árshlutauppgjörs fyrir árið 2025.Félagið mun birta samstæðureikning fyrir árið 2025 eftir lokun markaða þann 26. febrúar 2026.Sama dag, kl. 16:30 (GMT), mun Iceland Seafood halda rafrænan kynningarfund fyrir fjárfesta og aðra markaðsaðila þar sem stjórnendur munu kynna og fara yfir afkomu félagsins. Fundurinn verður eingöngu á netinu og verður í beinni útsendingu á íslensku á vefsíðum okkar. Frekari upplýs...

 PRESS RELEASE

Iceland Seafood International hf: Corrected Publication Date for 2025 ...

Iceland Seafood International hf: Corrected Publication Date for 2025 Financial Results Iceland Seafood International hf. wishes to correct an earlier communication regarding the publication date of its Q4 and full-year 2025 results.The company will publish its consolidated financial statement for the year 2025 after the closing of markets on February 26th, 2026.On the same day, at 16:30 (GMT), Iceland Seafood will host an online meeting for investors and market participants, where management will present and discuss the results.  The meeting is online only and will be webcast live in Icela...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch