ICESEA Iceland Seafood International hf

Iceland Seafood International hf: Q1 2025 Uppgjör: Áframhaldandi rekstrarbati og endurfjármögnun nánast lokið

Iceland Seafood International hf: Q1 2025 Uppgjör: Áframhaldandi rekstrarbati og endurfjármögnun nánast lokið





Áframhaldandi rekstrarbati og endurfjármögnun nánast lokið 

  • Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi er 333 milljónir ISK (€2.3m) samanborinn við 275 milljónir ISK (€1.9m) Q1 2024 sem er aukning um 58 milljónir ISK (€0.4m) 
  • Rekstrartekjur á fyrsta ársfjórðungi 2025 námu 17,3 milljörðum ISK: (€119.3m), sem er aukning um 4,8% frá sama ársfjórðungi 2024 
  • Framlegð fyrir Q1 2025 er 1,8 milljarður ISK milli (€12.3m) samanborið við 1,5 milljarð (€10.5m) í Q1 2024 
  • EBITDA fyrir Q1 2025 hækkaði í 781 milljón (€5.4m) frá 463 milljónum(€3.2) í Q1 2024 
  • 12 mánaða rúllandi EBITDA hækkaði um 1 milljarð, í 2,7 milljarða (€18.5m) frá 1,7 milljarði(€11.8) á Q1 2024 
  • Hagnaður fjórðungsins eftir skatta er 145 milljónir ISK (€1.0m) samanborinn við 15 milljónir (€0.1m) fyrir sama tímabil 2024 
  • Hagnaður á hlut fyrir Q1 2025 er 5 ISK á hlut en 0,4 ISK fyrir Q1 2024. 
  • Heildareignir námu 37 milljörðum ISK (€256.2m) í lok mars 2025, sem er hækkun um 333 milljónir ISK (€2.3m) frá ársbyrjun 
  • Eiginfjárhlutfall er í 29.9% í lok fyrsta ársfjórðungs 2025 samanborið við 26.8% í lok Q1 2024 
  • Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi 2025 verður samkvæmt afkomuspá, 1,1 – 1,4 milljarðar ISK (€7.5m - €9.5m) 

Rekstrartekjur starfseminnar í Suður-Evrópu voru 8,3 milljarður ISK (€57.1m) á fyrsta ársfjórðungi, sem er 2,3% aukning miðað við sama tímabil árið 2024. Reglulegur hagnaður starfseminnar fyrir skatta nam 333 milljónum ISK (€2.3m), sem er aukning um 29 milljónir ISK (€0.2m) frá fyrsta ársfjórðungi 2024. Þetta var þrátt fyrir óhagstæð gengisáhrif tengd starfseminni í Argentínu, sem leiddu til gjaldmiðilstaps upp á 87 milljónir ISK (€0,6m) á tímabilinu, samanborið við 130 milljóna ISK (€0,9m) hagnað á sama tíma í fyrra.  Þetta eru góðar rekstrarniðurstöður, sérstaklega í ljósi þess að páskarnir, einn mesti neyslutími þorsks í Suður-Evrópu, voru í apríl.  Sala hjá Ahumados Domínguez dróst saman um um 7% á milli fjórðunganna en tap fyrir skatta var 7 milljónir ISK (€47k) samanborið við 101 milljón ISK(€700k) á sama fjórðungi 2024. Þessi fyrsti ársfjórðungur er ásættanlegur og besti fyrsti ársfjórðungur frá kaupum ISI hf á fyrirtækinu. 

Rekstrartekjur starfseminnar í Norður-Evrópu voru 2,1 milljarðar ISK (€14.4m), sem er 11% aukning frá fyrsta ársfjórðungi árið áður. Verð á laxi var lægra en reiknað var með í byrjun árs og framboð á laxi hefur verið gott. Verð á hvítfiski  hefur aftur á móti verið mjög hátt og framboð af skornum skammti.   Félagið á Írlandi skilaði 11 milljóna ISK (€76 k) hagnaði af reglulegri starfsemi sem er aukning um 16 milljónir ISK (€111k) frá fyrsta ársfjórðungi 2024.  Á sama tíma var tap af starfsemi Iceland Seafood Barraclough uppá 18,5 milljónir ISK (€128k) sem skilaði heildartapi uppá 7,5 milljónir ISK (€53k) sem er á pari við sama ársfjórðung 2024.  Samkvæmt spám um verð og framboð má reikna með að laxaverð verði stöðug út árið. 

Rekstrartekjur Sölu- og dreifingarhluta starfseminnar voru 7,4 milljarðar ISK (€51.1m) á fyrsta ársfjórðungi, sem er 4,7% aukning frá sama ársfjórðungi 2024. Hagnaður er á pari við sama tímabil 2024.  Mikil eftirspurn og hækkandi verð á þorski voru lykillinn að góðum árangri. 

Byggt á niðurstöðum fyrsta ársfjórðungs og núverandi viðskiptum verður afkomuspá óbreytt frá ársbyrjun eða  á bilinu 7,5 til 9,5 milljónir evra. Gert er ráð fyrir áframhaldandi háu þorskverði á árinu þar sem framboð er í sögulegu lágmarki.  Reiknað er með að laxaverð verði stöðugt út árið og lægri en spár sögðu til um.   Ástandið í alþjóðastjórnmálum hefur verið frekar óútreiknanlegt síðustu misseri en á sama tíma hefur efnhagsumhverfið verið í meira jafnvægi sem hefur skilað sér í lækkun vaxta.   Við gerum ráð fyrir að allar deildir fyrirtækisins muni standa við áætlanir og gerum ekki ráð fyrir miklum breytingum í sjávarútvegsgeiranum á næstu mánuðum 

Ægir Páll Friðbertsson, CEO 

“Eins og áður hefur komið varðandi árið 2025 er líkur á að aðfangakeðjan verði áskorun sökum minnkandi kvóta í þorski á heimsvísu sem gerir það að verkum að framboðið verður minna en verið hefur mörg undanfarin ár.  Einnig lá fyrir að endurfjármagna um helming af vaxtaberandi skuldum félagsins á öðrum ársfjórðungi og er sú vinna á lokametrunum. Báðir þessir þættir voru áskoranir í rekstri félagsins.  Helstu áherslur félagsins á næstu mánuðum verða því að treysta aðfangakeðjuna, efla fjárhagslegt skipulag enn frekar, draga úr vaxtakostnaði og áframhaldandi vinna við endurskoðun á stefnu félagsins með það eitt að markmiði að renna styrkari stoðum undir reksturinn og efla hann til framtíðar. 

Á fyrsta ársfjórðungi tryggðum við stöðugt framboð á þorski og héldum rekstrinum á réttum kili í afar krefjandi umhverfi. Allar deildir fyrirtækisins sýndu aukna sölu samanborið við sama tímabil árið 2024, sem veitir okkur traust og bjartsýni fyrir áframhaldandi starfsemi á árinu. Horfur fyrir næstu mánuði gera ráð fyrir að framboð á þorski verði takmarkað, á meðan laxamarkaðurinn mun líklega einkennast af verðnæmi, með stöðugra verði og góðu framboði. 

Endurfjármögnun félagsins er að verða lokið. Lánalínur við íslenska banka hafa verið framlengdar og auknar með ásættanlegum kjörum, bæði lánalína og fasteigna lán hjá Iceland Seafood Barraclough í Bretlandi sem voru við erlendan banka hafa verið greidd upp og endurfjármögnuð samhliða.  

Þann 7. apríl gaf ISI hf út skuldabréf fyrir ISK 4 milljarða til 3,5 ára en lánið er fest í €27.3m með vaxta og gjaldeyrissamning samhliða. Á sama tíma voru seld skuldabréf að nafnverði ISK 2.880 milljónir úr ICESEA 25 06 seríunni, sem lækkaði útistandandi eftirstöðvar skuldabréfsins sem fellur á gjalddaga 20. júní 2025 niður í ISK 520 milljónir (€3.5m). Þessi endurfjármögnun mun lækka vaxtaútgjöld verulega frá gjalddaga í júní 2025. Áframhaldandi áhersla verður á því að lækka vaxtaútgjöld, meðal annars með áframhaldandi áherslu á fjármagnsskipan félagsins. 



Á sviði stefnumótunar höfum við unnið að fjölmörgum verkefnum sem beinast að vexti, rekstrarhagræðingu, ásýnd og fyrirtækjamenningu. Við búumst við að þessi verkefni fari að skila jákvæðum árangri á næstu mánuðum.  

Ljóst er að við höfum verulegt svigrúm til vaxtar og betri nýtingar á fyrirtækjaneti okkar, öflugu sölu- og birgjaneti og hæfileikaríku starfsfólki í sjávarútvegsgeiranum. Markmiðið er að styrkja Iceland Seafood enn frekar til að bregðast við framtíðaráskorunum og nýta þau tækifæri sem fram undan eru – til hagsbóta fyrir fyrirtækið, eigendur þess og starfsfólk.” 

Fjárfestafundir 

Iceland Seafood mun ekki halda fjárfestafundi fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung. Fyrirtækið fagnar öllum fyrirspurnum um fjárhagslegar niðurstöður fjórðungsins, og má senda spurningar á netfangið   

Fyrirtækið mun hins vegar halda fjárfestafundi í kjölfar annars ársfjórðungs (hálfsársniðurstöður) og fjórða ársfjórðungs (árslokaniðurstöður), þar sem stjórnendur kynna og ræða helstu niðurstöður. Dagsetningar fyrir þá fundi má finna á vefsíðu félagsins  

Fyrirtækið býður alla velkomna í heimsókn sem vilja fræðast meira um starfsemina og annað henni tengt.  Sé áhugi fyrir hendi vinsamlegast hafið samband við Ægir Pál Friðbertsson eða Öldu Björk Óskarsdóttir   

Fyrirvari 

Allar yfirlýsingar varðandi framtíðarsýn í þessari tilkynningu endurspegla núverandi skoðanir stjórnenda á framtíðarviðburðum og niðurstöðu. Það að þessar skoðanir séu byggðar á afstöðu sem stjórnendur telja eðlilegar, er engin trygging fyrir því að atburðir og skoðanir verði að veruleika. Framtíðarsýn felur eðlilega í sér óvissu og áhættu;  Niðurstöður geta verið frábrugðnar fullyrðingum eða skoðunum sem setter eru fram. 

Frekari upplýsingar: 

Iceland Seafood International hf.                                                            

 

Ægir Páll Friðbertsson,  



Attachments



EN
27/05/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Iceland Seafood International hf

 PRESS RELEASE

Iceland Seafood International hf: Annual General Meeting 24 March 2026

Iceland Seafood International hf: Annual General Meeting 24 March 2026 The Annual General Meeting of Iceland Seafood International hf will be held on Thursday 24 March 2026 at 4pm at Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavik, Iceland.  The meeting will be in Icelandic. Enclosed is the notice to convene the Annual General Meeting and the proposed agenda for the Annual General Meeting.  Attachment

 PRESS RELEASE

Iceland Seafood International hf: Aðalfundur 24. mars 2026

Iceland Seafood International hf: Aðalfundur 24. mars 2026 Aðalfundur Iceland Seafood International hf. verður haldinn fimmtudaginn 24. mars 2026 kl. 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Fundurinn fer fram á íslensku. Meðfylgjandi er fundarboð til aðalfundarins ásamt dagskrá aðalfundarins. Attachment

 PRESS RELEASE

Iceland Seafood International hf: Correction to ZIP file sent 26.02.20...

Iceland Seafood International hf: Correction to ZIP file sent 26.02.2026 Reference is made to the company announcement published on 26 February 2026 regarding the submission of the Company’s financial statements. It has come to the Company’s attention that the ZIP file published in connection with that announcement was incorrect. The file contained the Company’s 2024 financial statements, tagged in accordance with Nasdaq requirements, instead of the intended 2025 financial statements. The correct ZIP file containing the Company’s 2025 financial statements, properly tagged in accordance wi...

 PRESS RELEASE

Iceland Seafood International hf: Consolidated Financial Statements 20...

Iceland Seafood International hf: Consolidated Financial Statements 2025 2025 Normalised PBT of €10.6 Million Exceeds Outlook  Sales for 2025: €484.3m, up 9% from 2024  Sales for Q4 2025: €136.7m up 6% from Q4 2024  Net Margin for 2025: €50.7 million, up €5.5 million  EBITDA for 2025 was €22.8m up from €18.0m 2024  Normalised Profit Before Tax: €10.6 million vs. €7.4 million in 2024  Net Profit: €7.4 million, improved from a €2.8 million profit in 2024  EPS for 2025: Positive €0.2313 cents per share, vs. positive €0.0866 in 2024  Total Assets: €279.4 million, up €25.5 million from t...

 PRESS RELEASE

Iceland Seafood International hf: Samstæðureikningur ársins 2025

Iceland Seafood International hf: Samstæðureikningur ársins 2025 Hagnaður yfir afkomuspá ársins.  Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi árið 2025 var 1,5 milljarður króna  Rekstrartekjur samstæðunnar námu rúmlega 70,1 milljarði ISK (€484.3m) fyrir árið 2025 sem er 9% aukning frá 2024  Rekstrartekjur á fjórða ársfjórðungi 2025 námu 19,8 milljörðum ISK: (€136.7m), sem er aukning um 6% frá sama ársfjórðungi 2024  Framlegð 2025 var 7,3 milljarðar (€50.7m) hækkar um 799 milljónir ISK milli ára (€5.5m)  EBITDA fyrir árið 2025 er 3,3 milljarðar ISK (€22.8m), en var 2,6 milljarður ISK (...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch