KALD Kaldalon hf

Kaldalón hf. Afkomutilkynning fyrir fyrri árshelming 2020

Kaldalón hf. Afkomutilkynning fyrir fyrri árshelming 2020

Kaldalón hf. : Afkomutilkynning fyrir fyrri árshelming 2020

Á stjórnarfundi þann 31. ágúst 2020 samþykktu stjórn og framkvæmdastjóri árshlutareikning Kaldalóns hf. fyrir tímabilið 1. janúar 2020 til 30. júní 2020.

Helstu niðurstöður eru:

  • Hagnaður nam 226 milljónum króna
  • Rekstrarkostnaður nam 63 milljónum króna
  • Heildareignir námu 5.929 milljónum króna
  • Heildarskuldir námu 1.489 milljónum króna
  • Eigið fé félagsins nam 4.440 milljónir króna
  • Eiginfjárhlutfall í lok tímabils var 74,9%
  • Innra virði félagsins var 1,23 á hvern útgefinn hlut

Uppbygging félagsins gengur vel

Hagnaður Kaldalóns á fyrstu sex mánuðum ársins 2020 nam 226 milljónum króna samanborið við 32 milljónir króna fyrir sama tímabil árið 2019. Heildareignir félagsins námu 5.929 milljónum króna og eigið fé þann 30.6.2020 var 4.440 milljónir króna.     

Á fyrri hluta ársins 2020 kom Kaldalón hf. að mikilli uppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu. Að Hafnarbraut 13-15 í Kópavogi var lokið við byggingu 54 íbúða sem nú eru í söluferli og stór hluti þeirra þegar seldar. Að Urriðaholtstræti 14-20 í Garðabæ lauk félagið við byggingu og afhendingu á 38 íbúðum sem afhentar voru í heild sinni sem gagngjald vegna kaupa þess á lóðum í Vogabyggð í Reykjavík. Loks stóð félagið byggingu 51 íbúðar að Urriðaholtsstræti 22-26 sem lokið var við að steypa upp og unnið er nú að fullnaðarfrágangi á sem ætla má að liggi fyrir upp úr  næstu áramótum.

Á tímabilinu var unnið að undirbúningi fjölmargra verkefna hjá félaginu. Þar ber hæst samþykkt aðaluppdrátta fyrir 71 íbúð að Stefnisvogi 2 í Vogabyggð í Reykjavík sem reiknað er með að komi til framkvæmda á síðari hluta ársins. Alls eru 324 íbúðir í Vogabyggð í þróun á vegum félagins.  Þá var hönnun 84 íbúða á Steindórsreit í Reykjavík á lokastigi og þess er vænst að framkvæmdir þar geti hafist öðru hvoru megin við næstu áramót.

Kaldalón á 50% hlut í Steinsteypunni ehf. og hefur rekstur og uppbygging fyrirtækisins gengið vel. Mikill og stígandi vöxtur hefur verið í sölu fyrirtækisins. Hefur vörum og þjónustu þess verði afar vel tekið og finna stjórnendur félagsins fyrir auknum áhuga á viðskiptum við Steinsteypuna.

Í upphafi ársins setti stjórn Kaldalóns fram afkomuspá til fjögurra ára sem miðast við uppbyggingu á núverandi verkefnum félagsins. Á núverandi lóðum félagsins er reiknað með uppbyggingu um það bil 1.000 íbúða.

Í ljósi þróunar og fyrirséðrar seinkunar á tilteknum verkefnum hefur stjórn félagsins uppfært afkomuspá félagins. Ástæða seinkunar má rekja að hluta til afleiðinga Covid-19 ástandsins þar sem sóttvarnatakmarkanir hafa haft áhrif á undirbúning verkefna sem ráðgert var að hefja á árinu. Þrátt fyrir það gera stjórnendur félagsins ráð fyrir að langtímaáhrif Covid-19 veirunnar verði óveruleg.  

Uppfærð afkomu spá gerir ráð fyrir að hagnaður félagsins fyrir skatta verði;

  • Árið 2020: 370-430 milljónir króna
  • Árið 2021: 1.560-1.820 milljónir króna
  • Árið 2022: 1.810-2.120 milljónir króna
  • Árið 2023: 1.940-2.260 milljónir króna

Að mati stjórnenda Kaldalóns eru markaðsaðstæður nú góðar fyrir félagið. Mikil eftirspurn eftir íbúðum og fyrirséð hóflegt framboð af nýju íbúðarhúsnæði gera það að verkum að líklegt er að markaðsaðstæður verði hagfelldar þegar vaxandi hluti íbúða Kaldalóns kemur á markað á næstu árum.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Þór Þorvaldsson síma 899-9705, .

Viðhengi

EN
31/08/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kaldalon hf

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025 Kaldalón hf. will publish its financial results and trading updates as per the following schedule: 2024 Annual Financial Statement:March 7, 2025Annual General MeetingApril 3, 2025Q1 2025 Trading updateMay 22, 2025H1 2025 Half-year ResultsAugust 28, 2025Q3 2025 Trading updateNovember 20, 2025 All financial information will be released after market close. Please note that the dates are subject to change. For further information, please contact:Jón Þór Gunnarsson, CEO of Kaldalón hf.Email:

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025 Eftirfarandi dagsetningar eru áætlanir Kaldalóns hf. um birtingu uppgjöra, tilkynninga og aðalfund félagsins: Ársuppgjör 20247. mars 2025Aðalfundur 20253. apríl 2025Tilkynning 2025 1F22. maí 2025Hálfsársuppgjör 202528. ágúst 2025Tilkynning 2025 3F20. nóvember 2025 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.  Nánari upplýsingar veitir;Jón Þór Gunnarsson, forstjóri 

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024 Vísað er til tilkynningar félagsins frá 3. desember 2024. Í tilkynningunni kom fram að stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu.  Meðfylgjandi er tilkynning frá Kaldalón hf. vegna fyrstu níu mánaða ársins 2024.  Viðhe...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga Samkvæmt fjárhagsdagatali Kaldalóns birtir félagið hálfsárs- og ársuppgjör félagsins opinberlega. Stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu. Regluleg birting viðbótar upplýsinga er gerð með það að markmiði að veita hluthöfum og fjárf...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf.

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf. Vísað er til tilkynningar frá 22. október sl. þar sem tilkynnt var um kaup Kaldalóns  á öllu hlutafé í annars vegar IDEA ehf. („IDEA“) og hinsvegar K190 hf. („K190“). Fyrirvarar í kaupsamningum vegna beggja félaga hafa nú verið uppfylltir. Uppgjör og afhending IDEA hefur nú farið fram en aðilar komust að samkomulagi um að fasteignirnar Leirukrókur 2-3 yrðu undanskildar viðskiptunum. Uppgjör og afhending K190 verður þriðjudaginn 3. desember nk. Endanlegt heildarvirði ofangreindra félaga í viðskiptunum er 7.855 m.kr. Lei...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch