KALD Kaldalon hf

Kaldalón hf. Árshlutareikningur fyrstu 9 mánuði ársins 2019

Kaldalón hf. Árshlutareikningur fyrstu 9 mánuði ársins 2019

Kaldalón hf.  Árshlutareikningur fyrstu 9 mánuði ársins 2019

Kaldalón hf. hefur birt árshlutareikning sinn fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2019 sem samþykktur var af stjórn félagsins í dag, 12. desember 2019.

Hagnaður Kaldalóns hf. á tímabilinu nam 72,3 milljónum króna. Heildareignir félagsins námu 5,2 milljörðum króna og skuldir félagsins voru tæplega 1,2 milljarðar króna. Eigið fé félagsins var 4,06 milljarðar króna í lok tímabilsins.  Eiginfjárhlutfall Kaldalóns var 77,8% í lok tímabilsins. 

Kaldalón á eignarhluti í tíu félögum þar sem fer fram fasteignaþróun og byggingastarfsemi að undanskyldri Steinsteypunni sér um rekstur steypustöðvar.

Verkefni Kaldalóns á framkvæmdastigi eru metin miðað við framvindu og vænta framlegð að teknu tilliti til sérstakrar varúðarfærslu sem nemur 100 milljónum króna þann 30.9.2019.  Aðrar eignir eru metnar út frá upprunalegu kaupverði eða hlutdeild í eigin fé viðkomandi félags.

Hlutafé félagsins var aukið um tæpar 800 milljónir króna á tímabilinu og undirbúningsvinna vegna skráningar í kauphöll lauk þann 30. ágúst með skráningu á hlutabréfum félagsins á First North markaðinn.

Á tímabilinu var ráðinn nýr framkvæmdastjóri, Jónas Þór Þorvaldsson. Framkvæmdir hófust á þremur lóðum og góður gangur er í byggingverkefnum félagsins.

Á tímabilinu stóðu yfir framkvæmdir við byggingu íbúða á fimm af lóðum félagsins, en það eru Urriðaholtsstræti 14-20, Urriðaholtsstræti 22, 24 og 26  í Garðabæ auk Hafnarbrautar 9-15 í Kópavogi sem félagið á með Íslenskri fjárfestingu. Þessi verkefni eru því farin að skila framlagi til afkomu félagsins. Kaldalón stendur nú að uppbyggingu yfir eitt hundrað og fjörtíu íbúða á höfuðborgarsvæðinu.  Framkvæmdir við Urriðaholtsstræti 14-20 og Hafnarbraut 13-15 eru á lokastigi og framkvæmdum við Hafnarbraut 9 er lokið. 

Búið er að selja allar íbúðir í Urriðaholtsstræti 14-20 og Urriðaholtsstræti 22.  Þá er búið að selja allar íbúðir í Hafnarbraut 9 og sala er hafin á Hafnarbraut 13-15.   

Framkvæmdir á lóðum Kaldalóns í Vogabyggð eru nú í undirbúningi og aðalhönnun á byggingu á fyrstu lóð félagsins af fjórum langt komin. Þar er um að ræða byggingu á 71 íbúð að Stefnisvogi 2 þar sem gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist fyrri hluta árs 2020.

Þá gekk Kaldalón frá kaupum á Steindórsreit við Grandatorg í Reykavík í apríl síðastliðnum og seldi samhliða því íbúðir félagsins sem nú eru í smíðum að Urriðaholtsstræti 22. Þar hefur verið samþykkt til auglýsingar deiliskipulagsbreyting þar sem fallið er frá áður samþykktum hóteláformum á reitnum en þess í stað gert ráð fyrir byggingu allt að 84 íbúða.

Kaldalón á 50% hlut í steypustöðinni Steinsteypunni ehf.  Rekstur hennar gekk vel á tímabilinu og varð umtalsverður vöxtur í rekstri fyrirtækisins þrátt fyrir almennan samdrátt í steypusölu. Hefur vörum og þjónustu Steinsteypunnar verið vel tekið af viðskiptavinum.

Uppbygging félagsins hefur gengið vel. Framleiðsla félagsins á íbúðarhúsnæði er komin vel af stað og fleiri verkefni að bætast við á næstu misserum þannig að búast má við að aukin framlegð skapist á næsta ári, þegar meiri þungi kemst í framkvæmdir félagsins. Markaðssetning á fullbyggðum íbúðum félagsins á almennan markað hefst fyrst að ráði á miðju ári 2021 en kemur svo fram af meiri þunga 2022 og síðar. 

Frekari upplýsingar veitir Jónas Þorvaldsson framkvæmdastjóri Kaldalóns í síma 899-9705,            



Attachment

EN
12/12/2019

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kaldalon hf

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025 Kaldalón hf. will publish its financial results and trading updates as per the following schedule: 2024 Annual Financial Statement:March 7, 2025Annual General MeetingApril 3, 2025Q1 2025 Trading updateMay 22, 2025H1 2025 Half-year ResultsAugust 28, 2025Q3 2025 Trading updateNovember 20, 2025 All financial information will be released after market close. Please note that the dates are subject to change. For further information, please contact:Jón Þór Gunnarsson, CEO of Kaldalón hf.Email:

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025 Eftirfarandi dagsetningar eru áætlanir Kaldalóns hf. um birtingu uppgjöra, tilkynninga og aðalfund félagsins: Ársuppgjör 20247. mars 2025Aðalfundur 20253. apríl 2025Tilkynning 2025 1F22. maí 2025Hálfsársuppgjör 202528. ágúst 2025Tilkynning 2025 3F20. nóvember 2025 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.  Nánari upplýsingar veitir;Jón Þór Gunnarsson, forstjóri 

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024 Vísað er til tilkynningar félagsins frá 3. desember 2024. Í tilkynningunni kom fram að stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu.  Meðfylgjandi er tilkynning frá Kaldalón hf. vegna fyrstu níu mánaða ársins 2024.  Viðhe...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga Samkvæmt fjárhagsdagatali Kaldalóns birtir félagið hálfsárs- og ársuppgjör félagsins opinberlega. Stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu. Regluleg birting viðbótar upplýsinga er gerð með það að markmiði að veita hluthöfum og fjárf...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf.

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf. Vísað er til tilkynningar frá 22. október sl. þar sem tilkynnt var um kaup Kaldalóns  á öllu hlutafé í annars vegar IDEA ehf. („IDEA“) og hinsvegar K190 hf. („K190“). Fyrirvarar í kaupsamningum vegna beggja félaga hafa nú verið uppfylltir. Uppgjör og afhending IDEA hefur nú farið fram en aðilar komust að samkomulagi um að fasteignirnar Leirukrókur 2-3 yrðu undanskildar viðskiptunum. Uppgjör og afhending K190 verður þriðjudaginn 3. desember nk. Endanlegt heildarvirði ofangreindra félaga í viðskiptunum er 7.855 m.kr. Lei...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch