KALD Kaldalon hf

Kaldalón hf.: Ársreikningur 2022

Kaldalón hf.: Ársreikningur 2022

Ársreikningur Kaldalóns hf. var samþykktur af stjórn félagsins 2. mars 2023.

Félagið skilar bestu afkomu frá upphafi, 2.611 m.kr. í hagnað fyrir skatta

Fjárfestingareignir félagsins aukast um 131% milli ára og tekjuvöxtur 639%

Félagið hefur gengið frá kaupum eða gert samkomulag um kaup á 90.700 m2 atvinnuhúsnæðis

Arðsemi eiginfjár var 16,2%  á ársgrundvelli

Metnaðarfull markmið félagsins um vöxt fjárfestingareigna og sölu eigna utan kjarnastarfsemi náðust á árinu

Félagið er með sterkt eiginfjárhlutfall, eða 45,5% og mun gefa út skuldabréfaramma árið 2023

Rekstrarhagnaðarhlutfall (NOI) var 74,2% og rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu fjárfestingareigna var hærri en fjármagnsgjöld árið 2022

Helstu atriði uppgjörs eru:

  • Heildarhagnaður ársins fyrir skatta: 2.611 m.kr.
  • Arðsemi eigin fjár: 16,2%
  • Rekstrartekjur: 1.722 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu: 1.306 m.kr.
  • Rekstrarhagnaðarhlutfall: 74,2%
  • Bókfært virði fjárfestingareigna í lok tímabils:  41.711 m.kr. Matsbreyting á árinu var 2.490 m.kr.
  • Handbært fé í lok árs: 2.277 m.kr.
  • Heildareignir: 45.482 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu: 19.836
  • Eiginfjárhlutfall í lok árs: 45,5%
  • Tekjuvegið útleiguhlutfall afhentra fasteigna: 98,9%
  • Eigið fé er 20.717 m.kr. samanborið við 8.359 m.kr. árslok 2022

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri:

Ég er mjög ánægður með rekstur og niðurstöðu ársins 2022. Kaldalón hefur á skömmum tíma orðið fasteignafélag og komið sér í ákjósanlega stöðu vaxtar. Félagið er vel fjármagnað og eiginfjárstaða þess er mjög sterk, eða 45,5%. Félagið er einkar vel í stakk búið til að takast á við þær breytingar í ytra umhverfi sem nú eiga sér stað. Við erum stolt af því að leysa þarfir íslensks atvinnulífs og munum halda áfram að stækka félagið, enda trúum við því að langtímahorfur í íslensku atvinnulífi séu mjög góðar.

Fasteignir í eigu félagsins rúmlega tvöfölduðust í fermetrum talið og jukust um 131% að markaðsvirði. Samkomulag hefur verið gert um kaup tekjuberandi fasteigna þannig að heildarstærð fasteignasafns verði 90.700 m2.

Þrátt fyrir að félagið hafi á árinu sinnt hefðbundnum rekstri, unnið ötullega að umbreytingu félagsins, tvöfaldað stærð sína og undirbúið skráningu á aðalmarkað hefur starfsmönnum félagsins náð að halda rekstrarkostnaði í lágmarki. Sá árangur leiðir af sér að hagnaður fyrir skatta er 2.611 m.kr. og hefur aldrei verið meiri. Þá er jákvætt sjóðsstreymi af rekstri félagsins sem þykir gott í eins mikilli verðbólgu og hækkun vaxta og verið hefur. Arðsemi eigin fjár var 16,2%. Lausafjárstaða félagsins er sterk og á félagið í dag fasteignir sem eru að fullu fjármagnaðar með eigin fé. Þá hefur félagið ekki dregið á skuldbindandi lánalínur banka. Við sjáum því tækifæri í því að endurfjármagna eignasafnið og nýta þá fjármuni til frekari stækkunar.

Kaldalón hefur jafnframt stigið skref að BREEAM vottun fasteigna og er langt komið með að ná markmiðum sínum fyrir skráningu á aðalmarkað Kauphallar Íslands.

Á árinu 2022 varð Kaldalón hf. að fasteignafélagi eftir árangursríkan umbreytingartíma.

Það ber að hafa í huga við lestur ársreikningsins að rekstrarreikningur er ekki að fullu sambærilegur milli ára þar sem félagið gerði upp sem fjárfestingafélag á fyrri hluta ársins 2021.

Ársreikningur 2022

Skýrsla stjórnar og forstjóra félagsins er að finna í ársreikningi félagsins. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við reikningsskilastaðla (IFRS). Ársreikningurinn er endurskoðaður af PricewaterhouseCoopers ehf. Áritun er án fyrirvara.

Kynning á félaginu

Samhliða uppgjörinu er boðað til kynningarfundar föstudaginn 3. mars kl. 08:30 að Fosshótel Reykjavík, Þórunnartúni 1. Á fundinum verður farið yfir starfsemina á árinu, ársuppgjör og framtíðarhorfur. Við upphaf fundar verður kynningarefnið aðgengilegt á vefsíðu Kaldalóns.

Hægt er nálgast ársreikninginn á vefsíðu félagsins.

Frekari upplýsingar

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri,

Viðhengi



EN
02/03/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kaldalon hf

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025 Kaldalón hf. will publish its financial results and trading updates as per the following schedule: 2024 Annual Financial Statement:March 7, 2025Annual General MeetingApril 3, 2025Q1 2025 Trading updateMay 22, 2025H1 2025 Half-year ResultsAugust 28, 2025Q3 2025 Trading updateNovember 20, 2025 All financial information will be released after market close. Please note that the dates are subject to change. For further information, please contact:Jón Þór Gunnarsson, CEO of Kaldalón hf.Email:

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025 Eftirfarandi dagsetningar eru áætlanir Kaldalóns hf. um birtingu uppgjöra, tilkynninga og aðalfund félagsins: Ársuppgjör 20247. mars 2025Aðalfundur 20253. apríl 2025Tilkynning 2025 1F22. maí 2025Hálfsársuppgjör 202528. ágúst 2025Tilkynning 2025 3F20. nóvember 2025 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.  Nánari upplýsingar veitir;Jón Þór Gunnarsson, forstjóri 

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024 Vísað er til tilkynningar félagsins frá 3. desember 2024. Í tilkynningunni kom fram að stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu.  Meðfylgjandi er tilkynning frá Kaldalón hf. vegna fyrstu níu mánaða ársins 2024.  Viðhe...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga Samkvæmt fjárhagsdagatali Kaldalóns birtir félagið hálfsárs- og ársuppgjör félagsins opinberlega. Stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu. Regluleg birting viðbótar upplýsinga er gerð með það að markmiði að veita hluthöfum og fjárf...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf.

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf. Vísað er til tilkynningar frá 22. október sl. þar sem tilkynnt var um kaup Kaldalóns  á öllu hlutafé í annars vegar IDEA ehf. („IDEA“) og hinsvegar K190 hf. („K190“). Fyrirvarar í kaupsamningum vegna beggja félaga hafa nú verið uppfylltir. Uppgjör og afhending IDEA hefur nú farið fram en aðilar komust að samkomulagi um að fasteignirnar Leirukrókur 2-3 yrðu undanskildar viðskiptunum. Uppgjör og afhending K190 verður þriðjudaginn 3. desember nk. Endanlegt heildarvirði ofangreindra félaga í viðskiptunum er 7.855 m.kr. Lei...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch