Kaldalón hf.: Sala á nýjum skuldabréfaflokki KALD 201228
Kaldalón hf. hefur lokið við sölu á skuldabréfaflokknum KALD 201228 sem gefinn er út undir 30.000 milljóna króna útgáfuramma félagsins.
Kaldalón hf. seldi 1.500 milljónir króna að nafnverði á 8,35% ávöxtunarkröfu.
Skuldabréfaflokkurinn KALD 201228 er óverðtryggður á föstum 8,30% ársvöxtum með einni afborgun höfuðstóls á lokagjalddaga en vextir greiðast tvisvar á ári. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi og verða bréfin tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins; /fjarfestar/.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta. Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagurinn 20. júní 2025.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf.,
