KALD KALDALON HF.

Kaldalón hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Kaldalón hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Vísað er til hluthafafundar Kaldalóns hf. („Kaldalón“ eða „félagið“) sem haldinn var þann 2. júlí 2024 þar sem samþykkt var að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að félagið, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, eigi allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 1.119.568.483 eða 111.956.848 hluti (hver að nafnvirði tíu krónur),  í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Kaldalón nýtti árið 2024 kr. 613.868.947 til kaupa á 33.700.150 hlutum af fyrrgreindri heimild. Í dag á Kaldalón hf. enga hluti í félaginu eftir lækkun hlutafjár sem tilkynnt var um 30. maí 2025.

Á grundvelli framangreindrar samþykktar ákvað stjórn Kaldalóns þann 30. júní 2025 að nýta hluta framangreindrar heimildar og koma á endurkaupaáætlun um framkvæmd kaupa á hlutum. Markmið áætlunarinnar er að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlað er nú að kaupa allt að 15.000.000 hluti, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri kr. 350.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hefst þriðjudaginn 1. júlí 2025 og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 31. desember 2025.

Íslandsbanki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. 

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf Kaldalóns í Kauphöll Íslands á síðustu 20 viðskiptadögum fyrir kaupdag, sbr. 3. mgr. 3 gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnar (EBS) nr. 2016/1052. Íslandsbanki mun annast útreikning á meðaltali daglegra viðskipta og bera ábyrgð á að framkvæmd endurkaupanna fari ekki yfir leyfilegt hámark.  

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Nánari upplýsingar veitir

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri





EN
30/06/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on KALDALON HF.

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Auction result of Bills

Kaldalón hf.: Auction result of Bills Kaldalón hf. has completed the sale of unsecured six-month bills in series KALD 26 0901. Offers were received totaling ISK 1,340 million, with flat interest rates ranging from 7,95% to 8.58% per annum. Bills with a nominal value of ISK 1,040 million were sold at an interest rate of 8.04%. The payment and settlement date is Monday, 1 March 2026. An application will be submitted for the bills to be admitted to trading on the Nasdaq Iceland Main Market, and the first trading day will be announced with at least one day’s notice. Landsbankinn hf. managed t...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Útgáfa á víxlum - niðurstaða útboðs

Kaldalón hf.: Útgáfa á víxlum - niðurstaða útboðs Kaldalón hf. hefur lokið sölu á óveðtryggðum sex mánaða víxlum í flokki KALD 26 0901. Tilboð bárust fyrir 1.340 milljónir kr. með flötum vöxtum á bilinu 7,95% til 8,58% p.a. Seldir voru víxlar að nafnvirði 1.040 milljónir kr. á 8,04% vöxtum. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 2. mars 2026. Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og verður fyrsti viðskiptadagur tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara. Landsbankinn hf. hafði umsjón með sölu víxlanna. Nánari upplýsingar veita:  Sigurbjörg Ólafs...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Routine Announcement Regarding Share Buybacks Pursuant t...

Kaldalón hf.: Routine Announcement Regarding Share Buybacks Pursuant to Buyback Program In week 8 of 2026, Kaldalón hf. purchased 600,000 of its own shares for a total consideration of ISK 16,300,000 as detailed below:  DateTimePurchased sharesShare pricePurchase priceOwn shares after transaction 16.2.202610:13:12250,00027.06,750,00023,741,81819.2.202610:44:07150,00027.44,110,00023,891,81819.2.202610:44:07200,00027.25,440,00024,091,818  600,000 16,300,000  The transactions are carried out under Kaldalón hf.’s share repurchase programme, which was announced on Nasdaq Iceland on 6 January 202...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi ...

Kaldalón hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í viku 8 árið 2026 keypti Kaldalón hf. 600.000 eigin hluti að kaupvirði kr. 16.300.000  skv. sundurliðun hér á eftir: DagsetningTímiMagnVerðKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti16.2.202610:13:12250.00027,06.750.00023.741.81819.2.202610:44:07150.00027,44.110.00023.891.81819.2.202610:44:07200.00027,25.440.00024.091.818  600.000 16.300.000  Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Kaldalóns hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. janúar 2026. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámar...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Bill Auction Announcement

Kaldalón hf.: Bill Auction Announcement On Tuesday, 24 February, Kaldalón hf. will auction six-month bills in a new series, KALD 26 0901 bills. The auction is held in line with the company’s policy to be a regular issuer of bills and bonds.The auction will be conducted using the Dutch method, i.e. all accepted bids will be sold to investors at the highest accepted flat yield. The bills will be issued in nominal value units of ISK 20 million. The company reserves the right to accept all bids, reject all bids, or accept bids in part. The results of the auction and allocation to investors will...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch