Kvika banki hf.: Birting sex mánaða uppgjörs fimmtudaginn 17. ágúst
Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2023 á stjórnarfundi fimmtudaginn 17. ágúst og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaða.
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 17. ágúst, kl. 16:15 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.
Á fundinum mun Marinó Tryggvason forstjóri Kviku fara yfir uppgjör félagsins og helstu þróun á liðnum mánuðum. Fundinum verður streymt á íslensku en upptaka með enskum texta verður einnig gerð aðgengileg síðar á vefsvæði Kviku.
Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á .
Fjárfestakynningin sem verður farið yfir á fundinum verður gerð aðgengileg fyrir fundinn.
