KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Kaup Kviku á Netgíró frágengin

Kvika banki hf.: Kaup Kviku á Netgíró frágengin

Kvika banki hf. ("Kvika" eða "bankinn") hefur gengið frá kaupum á 80% hlut í Netgíró hf. ("Netgíró") af Alva Capital ehf., en greint var frá undirritun viljayfirlýsingar um kaupin í tilkynningu þann 16. júlí 2020. Bankinn átti fyrir um 20% hlut í Netgíró og verður nú eini eigandi félagsins.

Kaup á Netgíró eru í samræmi við stefnu bankans að nýta tæknilausnir til þess að nútímavæða fjármálaþjónustu. Netgíró hefur lagt áherslu á þróun á lánshæfismati ásamt því að bjóða raðgreiðslur með einföldum hætti. Áður hefur bankinn sett fjártækniþjónustuna Auði á laggirnar með góðum árangri.

Kvika hefur átt farsælt samstarf við Netgíró á undanförnum árum, meðal annars varðandi fjármögnun á kröfusafni félagsins. Kaupin gera bankanum kleift að efla enn frekar þetta samstarf sem leiðir til aukinnar skilvirkni og hagræðingar hjá báðum aðilum. Netgíró er nú á tæplega 3.000 sölustöðum á landinu og tæplega 50.000 einstaklingar eru í viðskiptum við fyrirtækið.

Bankinn mun birta afkomuspá fyrir árið 2021 þann 28. janúar næstkomandi. Í spánni er gert ráð fyrir að kaupin á Netgíró hafi jákvæð áhrif á afkomu ársins en stefnt er að því að þau áhrif aukist töluvert þegar horft er til næstu ára.

Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku:

„Fjármálakerfi landsins er að breytast og samkeppni að aukast. Kvika ætlar að vera fjármálafyrirtæki sem nýtir nýjustu tæknilausnir til þess að þjónusta viðskiptavini. Með kaupum á Netgíró er bankinn vel í stakk búinn til að auka umsvif sín í fjármögnun á vörukaupum. Jafnframt eru mikil tækifæri fólgin í að nýta innviði Netgíró til þess að útvíkka þjónustu félagsins.“

Skorri Rafn Rafnsson, stjórnarformaður Alva Capital ehf.:

„Þetta eru ánægjuleg tímamót fyrir Netgíró sem styrkist í sessi með þessum kaupum. Um leið eru kaup Kviku á Netgíró staðfesting á því góða starfi sem unnið hefur verið hjá fyrirtækinu frá stofnun af því afburða starfsfólki sem þar starfar. Ég óska Netgíró alls velfarnaðar á komandi árum.“



EN
22/01/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme In week 9 Kvika banki hf. („Kvika“ or „the bank“) purchased 11,400,000 of its own shares at the purchase price ISK 215,260,000. See further details below: DateTimeNo. of shares purchasedShare price (rate)Purchase price23.2.202615:16:34         2.000.000    18,45                 36.900.000    24.2.202613:28:56         1.000.000    18,7                 18.700.000    24.2.202615:07:28         1.700.000    18,7                 31.790.000    25.2.202614:37:14         1.700.000    19,1                 32.470.000    25.2.20261...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræ...

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í viku 9 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 11.400.000 eigin hluti að kaupverði 215.260.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð23.2.202615:16:34         2.000.000    18,45                 36.900.000    24.2.202613:28:56         1.000.000    18,7                 18.700.000    24.2.202615:07:28         1.700.000    18,7                 31.790.000    25.2.202614:37:14         1.700.000    19,1                 32.470.000  ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Meeting announcement for Annual General Meeting on 18...

Kvika banki hf.: Meeting announcement for Annual General Meeting on 18 March 2026 The Annual General Meeting of Kvika banki hf., Reg. No. 540502-2930 (“Kvika”), will be held on Wednesday, 18 March 2026, at 4:00 pm, at Iceland Parliament Hotel by Austurvöllur, Thorvaldsenstræti 2-6, 101 Reykjavík, in meeting room A. The Agenda for the meeting is as follows: Report from the Company's Board of Directors on its activities during the past operating year.The Company's annual financial statements for 2025 along with a decision on the treatment of the Company's profit during the financial year. ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Fundarboð á aðalfund 18. mars 2026

Kvika banki hf.: Fundarboð á aðalfund 18. mars 2026 Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930 („Kvika“), verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026, kl. 16:00, á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll, Thorvaldsenstræti 2-6, 101 Reykjavík, í fundarsal A.  Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál: Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.Ársreikningur félagsins fyrir árið 2025 ásamt ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu. Stjórn Kviku leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa bankans sem nemi kr. 0,36 á hlut. Tillaga um endurnýjun...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Execution of buyback programme

Kvika banki hf.: Execution of buyback programme At the Annual General Meeting of Kvika banki hf. (“Kvika” or the “bank”) on 21 March 2024, the shareholders approved to authorise the board of directors to buy up to 10% of issued shares in the bank, to among other things enable the board of directors to carry out a formal buyback programme.  The authorisation for the board of directors to engage in buyback of shares was renewed at the Annual General Meeting on 26 March 2025. Further with reference to notification on 23 December 2025 on buyback of shares. On the basis of above, the board of d...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch