Kvika banki hf.: Moody‘s staðfestir lánshæfismat Kviku; horfur stöðugar
Moody's Investors Service („Moody‘s“) tilkynnti í dag staðfestingu á lánshæfismati Kviku banka hf. („Kvika“).
Staðfesting Moody's markar lok þess ferlis sem hófst 13. febrúar 2023 þegar Moody's tók til skoðunar að hækka lánshæfismat Kviku í tengslum við samrunaviðræður Kviku við Íslandsbanka hf. og staðfestir Moody‘s nú fyrra mat sitt á Kviku.
Moody‘s staðfestir Baa1 langtíma og Prime-2 skammtíma lánshæfismat Kviku á innlánum og Baa2 langtíma lánshæfismat Kviku sem útgefanda óveðtryggðra skuldabréfa. Moody‘s staðfestir einnig ýmsa undirþætti lánshæfismatsins. Horfum lánshæfismatsins hefur verið breytt í stöðugar úr skoðun til hækkunar.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu eða í síma 540 3200.
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á innherjaupplýsingum í samræmi við 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
