Kvika banki hf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs KVIKA 28 0703
Kvika banki hf. hélt í dag lokað útboð í skuldabréfaflokknum KVIKA 28 0703. Heildartilboð í útboðinu námu samtals 9.860 m.kr. á 0,89 - 1,50% álagi yfir 3M REIBOR og voru samþykkt tilboð fyrir samtals 5.000 m.kr. á 1,14% álagi yfir 3M REIBOR vöxtum. Skuldabréfin eru til 3 ára og bera fljótandi vexti sem greiddir eru ársfjórðungslega.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland í júlí 2025. Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN skuldabréfaramma Kviku.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu eða í síma 540 3200.
