Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 32 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 9.000.000 eigin hluti að kaupverði 195.850.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
8.8.2022 | 09:47:43 | 1.000.000 | 20,9 | 20.900.000 |
8.8.2022 | 14:35:57 | 1.000.000 | 21,1 | 21.100.000 |
9.8.2022 | 12:33:45 | 1.000.000 | 21,6 | 21.600.000 |
9.8.2022 | 15:25:04 | 1.000.000 | 21,6 | 21.600.000 |
10.8.2022 | 10:10:08 | 1.000.000 | 21,85 | 21.850.000 |
11.8.2022 | 14:54:08 | 2.000.000 | 22,1 | 44.200.000 |
12.8.2022 | 10:14:38 | 1.000.000 | 22,3 | 22.300.000 |
12.8.2022 | 10:26:10 | 1.000.000 | 22,3 | 22.300.000 |
Samtals | 9.000.000 | 195.850.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.
Kvika átti 83.100.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 92.100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,906% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.844.440.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu
