Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 34 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 210.950.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
22.8.2022 | 11:19:34 | 2.000.000 | 21,5 | 43.000.000 |
23.8.2022 | 10:13:30 | 2.000.000 | 21,4 | 42.800.000 |
24.8.2022 | 09:32:00 | 2.000.000 | 21 | 42.000.000 |
25.8.2022 | 09:34:59 | 1.000.000 | 20,6 | 20.600.000 |
25.8.2022 | 14:41:07 | 1.000.000 | 20,85 | 20.850.000 |
26.8.2022 | 09:45:54 | 2.000.000 | 20,85 | 41.700.000 |
Samtals | 10.000.000 | 210.950.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.
Kvika átti 100.100.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 110.100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,268% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.229.190.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu
