KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Sameiginleg tilkynning frá Kviku og Arion

Kvika banki hf.: Sameiginleg tilkynning frá Kviku og Arion

Næstu skref í samrunaferli

Kvika banki og Arion banki tilkynntu 6. júlí sl. að stjórnir félaganna hefðu ákveðið að hefja viðræður um sameiningu félaganna og hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis. Markmiðið með samruna er að sameina krafta félaganna og búa til sterkt fjármálafyrirtæki sem býður heildstæða þjónustu fyrir viðskiptavini.

Einn stærsti samruni á íslenskum fjármálamarkaði

Þetta er einn umfangsmesti samruni sem ráðist hefur verið í á íslenskum fjármálamarkaði og má gera ráð fyrir að ferlið taki þó nokkurn tíma. Reglulega verður greint frá stöðu mála og framvindu viðræðna eftir því sem við á og ástæða er til.

Fyrstu skrefin eru áreiðanleikakannanir og samrunaviðræður milli félaganna, og er sú vinna þegar hafin. Stefnt er að því að óska eftir forviðræðum við Samkeppniseftirlitið í ágúst, þar sem kynnt verða markmið með samrunanum og sá ávinningur sem mun hljótast af honum, bæði fyrir viðskiptavini og íslenskan fjármálamarkað. Vonast er til að forviðræður, samningagerð og áreiðanleikakannanir klárist á næstu mánuðum. Að því gefnu að forviðræður við Samkeppniseftirlitið gangi vel, verður samruninn tilkynntur formlega til eftirlitsaðila og síðar lagður fyrir hluthafafundi beggja félaga. 

Öflugri bankaþjónusta

Ef af samruna Kviku og Arion verður mun það styrkja og efla bankaþjónustu við viðskiptavini sameinaðs félags – einstaklinga, fyrirtæki og fjárfesta. Við samrunann skapast tækifæri til áhættudreifingar og breiðari tekjumyndunar en hann leiðir ekki síður til aukins hagræðis í starfsemi sameinaðs félags og þar með á íslenskum fjármálamarkaði.

Kvika hefur síðustu ár verið virkur keppinautur á mörkuðum, meðal annars með vörumerkið Auði sem hefur haft mikil áhrif á innlánamarkað og nýlega farið inn á húsnæðislánamarkað með góðum árangri. Eftir sameiningu munu vörumerki félaganna halda áfram að gegna mikilvægu hlutverki fyrir viðskiptavini.



EN
21/07/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Meeting announcement for Annual General Meeting on 18...

Kvika banki hf.: Meeting announcement for Annual General Meeting on 18 March 2026 The Annual General Meeting of Kvika banki hf., Reg. No. 540502-2930 (“Kvika”), will be held on Wednesday, 18 March 2026, at 4:00 pm, at Iceland Parliament Hotel by Austurvöllur, Thorvaldsenstræti 2-6, 101 Reykjavík, in meeting room A. The Agenda for the meeting is as follows: Report from the Company's Board of Directors on its activities during the past operating year.The Company's annual financial statements for 2025 along with a decision on the treatment of the Company's profit during the financial year. ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Fundarboð á aðalfund 18. mars 2026

Kvika banki hf.: Fundarboð á aðalfund 18. mars 2026 Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930 („Kvika“), verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026, kl. 16:00, á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll, Thorvaldsenstræti 2-6, 101 Reykjavík, í fundarsal A.  Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál: Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.Ársreikningur félagsins fyrir árið 2025 ásamt ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu. Stjórn Kviku leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa bankans sem nemi kr. 0,36 á hlut. Tillaga um endurnýjun...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Execution of buyback programme

Kvika banki hf.: Execution of buyback programme At the Annual General Meeting of Kvika banki hf. (“Kvika” or the “bank”) on 21 March 2024, the shareholders approved to authorise the board of directors to buy up to 10% of issued shares in the bank, to among other things enable the board of directors to carry out a formal buyback programme.  The authorisation for the board of directors to engage in buyback of shares was renewed at the Annual General Meeting on 26 March 2025. Further with reference to notification on 23 December 2025 on buyback of shares. On the basis of above, the board of d...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar

Kvika banki hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) þann 21. mars 2024 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa allt að 10% af útgefnum hlutum í félaginu, m.a. í þeim tilgangi að stjórn gæti komið á formlegri endurkaupaáætlun. Heimild stjórnar Kviku til endurkaupa var endurnýjuð á aðalfundi Kviku þann 26. mars 2025. Þá er vísað til tilkynningar frá 23. desember 2025 vegna fyrirhugaðra endurkaupa bankans. Á grundvelli framangreinds ákvað stjórn Kviku þann 11. febrúar 2026 að nýta hluta heimildar og koma á endurkaupaáætlun um framkvæmd k...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme...

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme - buy back is completed In week 8 Kvika banki hf. („Kvika“ or „the bank“) purchased 7,856,970 of its own shares at the purchase price ISK 141,953,748. See further details below: DateTimeNo. of shares purchasedShare price (rate)Purchase price16.2.202610:40:001,000,00017.8317,825,00017.2.202610:37:001,000,00018.2018,200,00017.2.202614:00:411,000,00018.2518,250,00017.2.202614:56:35600,00018.2010,920,00018.2.202609:58:451,000,00018.1018,100,00018.2.202614:35:46679,87718.0012,237,78619.2.202612:47:551,000,00018.0018,000,00019...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch