KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Úthlutun kauprétta

Kvika banki hf.: Úthlutun kauprétta

Á grundvelli heimildar aðalfundar Kviku banka hf., sem haldinn var þann 31. mars sl., hefur stjórn bankans samþykkt að veita tilteknum starfsmönnum samstæðu bankans kauprétti að samtals 39.932.524 hlutum í félaginu og hefur nú verið gengið frá samningum þar að lútandi.

Fyrir kaupréttina greiða starfsmenn með frestuðum hluta kaupauka sem veittir voru m.a. vegna ársins 2021 en kaupréttirnir eru veittir í því skyni að samtvinna hagsmuni félagsins og viðkomandi starfsmanna til lengri tíma. Fyrir kaupréttina greiða starfsmenn alls 94.461.347 kr. með þegar gjaldfærðum frestuðum kaupaukum. Skilmálar kaupréttarsamninganna eru í samræmi við starfskjarastefnu og kaupaukakerfi félagsins, lög um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 sem og reglur Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands nr. 388/2016 um kaupaukakerfi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.

Meginefni kaupréttarsamninganna er sem hér segir:

  • Innlausnarverð kaupréttanna er kr. 22,495 á hlut sem jafngildir vegnu meðalgengi í viðskiptum með hluti í félaginu á Nasdaq OMX Iceland síðustu tíu viðskiptadaga fyrir undirritun kaupréttarsamninga, ávaxtað með 7,5% ársvöxtum yfir tímabilið, og skal kaupverðið m.a. leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að vera ákveðnar á ávinnslutíma kaupréttanna.
  • Ávinnslutími kaupréttanna er 27 mánuðir frá útgáfudegi kaupaukana. Að þeim tíma loknum er á næstu þremur mánuðum heimilt að nýta kaupréttina. Komi hins vegar til samruna þar sem félaginu er slitið eða þess að breyting verði á yfirráðum félagsins, sbr. 100. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, ávinnast allir útistandandi kaupréttir þegar við þær aðstæður.
  • Almennt skulu kaupréttir falla niður ef ráðningarsambandi kaupréttarhafa við félagið er slitið fyrir lok ávinnslutíma.
  • Forstjóri, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjórar samstæðunnar skuldbinda sig til þess að halda, allt til starfsloka, hlutum sem að markaðsverði samsvara hagnaði eftir skatta af nýttum kauprétti þar til verðmæti hluta í eigu kaupréttarhafa samsvarar sem nemur 12 mánaða launum í tilviki forstjóra og aðstoðarforstjóra og sex mánaða launum í tilviki framkvæmdastjóra.
  • Virði kaupréttanna var ákvarðað af óháðum sérfræðingi og rúmast verðmætin innan þeirra laga og reglna sem um kaupauka fjármálafyrirtækja gilda.
  • Í ákveðnum tilfellum er félaginu heimilt að afturkalla kauprétti í heild eða að hluta í samræmi við reglur Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.

Heildarkostnaður vegna kaupréttarsamninga sem hér er tilkynnt um er áætlaður 94.461.347 kr. byggt á reiknilíkani Black-Scholes en á móti falla niður áður gjaldfærðir kaupaukar. Heildarfjöldi útgefinna kauprétta samkvæmt framangreindri útgáfu nemur um 0,84% hlutafjár í félaginu.

Upplýsingar um viðskipti stjórnenda með framangreinda kauprétti eru í viðhengi.

Viðhengi



EN
14/11/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme In week 9 Kvika banki hf. („Kvika“ or „the bank“) purchased 11,400,000 of its own shares at the purchase price ISK 215,260,000. See further details below: DateTimeNo. of shares purchasedShare price (rate)Purchase price23.2.202615:16:34         2.000.000    18,45                 36.900.000    24.2.202613:28:56         1.000.000    18,7                 18.700.000    24.2.202615:07:28         1.700.000    18,7                 31.790.000    25.2.202614:37:14         1.700.000    19,1                 32.470.000    25.2.20261...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræ...

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í viku 9 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 11.400.000 eigin hluti að kaupverði 215.260.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð23.2.202615:16:34         2.000.000    18,45                 36.900.000    24.2.202613:28:56         1.000.000    18,7                 18.700.000    24.2.202615:07:28         1.700.000    18,7                 31.790.000    25.2.202614:37:14         1.700.000    19,1                 32.470.000  ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Meeting announcement for Annual General Meeting on 18...

Kvika banki hf.: Meeting announcement for Annual General Meeting on 18 March 2026 The Annual General Meeting of Kvika banki hf., Reg. No. 540502-2930 (“Kvika”), will be held on Wednesday, 18 March 2026, at 4:00 pm, at Iceland Parliament Hotel by Austurvöllur, Thorvaldsenstræti 2-6, 101 Reykjavík, in meeting room A. The Agenda for the meeting is as follows: Report from the Company's Board of Directors on its activities during the past operating year.The Company's annual financial statements for 2025 along with a decision on the treatment of the Company's profit during the financial year. ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Fundarboð á aðalfund 18. mars 2026

Kvika banki hf.: Fundarboð á aðalfund 18. mars 2026 Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930 („Kvika“), verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026, kl. 16:00, á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll, Thorvaldsenstræti 2-6, 101 Reykjavík, í fundarsal A.  Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál: Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.Ársreikningur félagsins fyrir árið 2025 ásamt ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu. Stjórn Kviku leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa bankans sem nemi kr. 0,36 á hlut. Tillaga um endurnýjun...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Execution of buyback programme

Kvika banki hf.: Execution of buyback programme At the Annual General Meeting of Kvika banki hf. (“Kvika” or the “bank”) on 21 March 2024, the shareholders approved to authorise the board of directors to buy up to 10% of issued shares in the bank, to among other things enable the board of directors to carry out a formal buyback programme.  The authorisation for the board of directors to engage in buyback of shares was renewed at the Annual General Meeting on 26 March 2025. Further with reference to notification on 23 December 2025 on buyback of shares. On the basis of above, the board of d...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch