KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Kvika banki hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) þann 21. mars 2024 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa allt að 10% af útgefnum hlutum í félaginu, m.a. í þeim tilgangi að stjórn gæti komið á formlegri endurkaupaáætlun. 

Á grundvelli þeirrar samþykktar ákvað stjórn Kviku þann 27. febrúar 2025 að nýta hluta framangreindrar heimildar og koma á endurkaupaáætlun um framkvæmd kaupa á hlutum fyrir allt að 5.000.000.000 kr. að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 400.000.000, í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans. Í dag á Kvika 61.893.341 eigin hluti. 

Íslandsbanki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd fyrsta hluta endurkaupaáætlunarinnar fyrir fjárhæð allt að kr 2.500.000.000 og taka allar ákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð Kviku. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021. Þegar ákvarðanir eru teknar, og í framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar, skal fara eftir framangreindum ákvæðum, eins og við á, og gagnsæi tryggt í viðskiptum með eigin bréf tryggt við framkvæmd áætlunarinnar. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er þannig að kaup að nafnvirði hvers dags verða að hámarki 25% af meðaldagsveltu með hlutabréf Kviku á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup eru framkvæmd og skal hámarksverð í kaupum vera verð síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í Kauphöll Nasdaq Iceland. Íslandsbanki hefur samkvæmt samningi aðila heimild til að hefja endurkaup þann 3 mars nk. og endurkaupaáætlunin er í gildi til aðalfundar Kviku á árinu 2026 eða þar til endurkaupum að kaupvirði 2.500.000.000 kr. er lokið, hvort sem gerist fyrr. 

Viðskipti bankans með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglur. 

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu  





EN
28/02/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Major shareholder announcement

Kvika banki hf.: Major shareholder announcement Attached is a major shareholder announcement. Attachment

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Flöggun eigin hlutir

Kvika banki hf.: Flöggun eigin hlutir Sjá meðfylgjandi flöggun vegna eigin hluta.  Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr. 20/2021 upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Correction: Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-ba...

Correction: Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme On Monday 2.6.2025 Kvika announced that post week 22 buy-back Kvika held 157,410,410 of own shares which corresponds to 2.902% of issued shares. However, 157,410,410 of own shares corresponds to 3.34% of issued shares. The revised announcement is as follows: In week 22 Kvika banki hf. („Kvika“ or „the bank“) purchased 23,000,000 of its own shares at the purchase price ISK 380,150,000. See further details below: DateTimeNo. of shares purchasedShare price (rate)Purchase price26.5.202510:12:071,500,00015.80023...

 PRESS RELEASE

Leiðrétting: Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin b...

Leiðrétting: Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í tilkynningu sem birt var mánudaginn 2.6.2025 kom fram að eftir endurkaup vikunnar væru eigin hlutir Kviku samtals 157.410.410 hlutir eða sem nemur 2,902% af útgefnum hlutum í félaginu. Hið rétta er að eigin hlutir Kviku, samtals 157.410.410 hlutir, nema 3,34% af útgefnum hlutum í félaginu. Leiðrétt tilkynning er því sem hér segir: Í viku 22 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 23.000.000 eigin hluti að kaupverði 380.150.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dag...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme In week 22 Kvika banki hf. („Kvika“ or „the bank“) purchased 23,000,000 of its own shares at the purchase price ISK 380,150,000. See further details below: DateTimeNo. of shares purchasedShare price (rate)Purchase price26.5.202510:12:071,500,00015.80023,700,00026.5.202510:53:381,000,00015.92515,925,00026.5.202511:11:521,000,00015.87515,875,00026.5.202513:15:321,500,00015.80023,700,00026.5.202514:17:221,000,00015.80015,800,00026.5.202515:19:12750,00015.80011,850,00027.5.202510:18:082,000,00015.97531,950,00027.5.202511:02...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch