KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár

Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár

Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hefur síðan á síðasta stjórnarfundi tekið fyrir 17 tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 25.256.665 kr., um nýtingu réttindanna.

Allar tilkynningarnar eru vegna áskriftarréttinda sem gefin voru út og seld á árunum 2017, 2018 og 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæða II og IV í samþykktum félagsins. Af framangreindum tilkynningum voru fjórar tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda sem seld voru á árinu 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II, þ.e. að 4.750.000 nýjum hlutum, og 13 tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda sem seld voru á árunum 2017 og 2018 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV, þ.e. 20.506.665 nýjum hlutum. Framangreint felur í sér nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 25.256.665 nýjum hlutum. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 211.943.154 og því er reiknað meðalgengi 8,3915730.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði II og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 25.256.665 og mun eftir hækkun standa í kr. 2.166.259.162 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta.

Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV mun í kjölfar hækkunar vera 329.276.712 kr. að nafnvirði og á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II 95.250.000 kr. að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september 2019.



EN
28/01/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Joint press release from Kvika and Arion

Kvika banki hf.: Joint press release from Kvika and Arion Next steps in the merger process Kvika banki and Arion Bank announced on 6 July that the boards of directors of the companies had decided to initiate discussions on merging the companies and have signed a letter of intent to that effect. The aim of the merger is to combine the companies’ strengths and to create a robust financial institution which offers comprehensive services for its customers. One of the largest mergers on the Icelandic financial market This represents one of the largest mergers undertaken on the Icelandic fina...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Sameiginleg tilkynning frá Kviku og Arion

Kvika banki hf.: Sameiginleg tilkynning frá Kviku og Arion Næstu skref í samrunaferli Kvika banki og Arion banki tilkynntu 6. júlí sl. að stjórnir félaganna hefðu ákveðið að hefja viðræður um sameiningu félaganna og hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis. Markmiðið með samruna er að sameina krafta félaganna og búa til sterkt fjármálafyrirtæki sem býður heildstæða þjónustu fyrir viðskiptavini. Einn stærsti samruni á íslenskum fjármálamarkaði Þetta er einn umfangsmesti samruni sem ráðist hefur verið í á íslenskum fjármálamarkaði og má gera ráð fyrir að ferlið taki þó nokkurn tíma. Reg...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme In week 27 Kvika banki hf. („Kvika“ or „the bank“) purchased 7,000,000 of its own shares at the purchase price ISK 125,525,000. See further details below: DateTimeNo. of shares purchasedShare price (rate)Purchase price30.6.202513:11:471,000,00017.32517,325,0001.7.202513:32:401,000,00017.75017,750,0001.7.202515:08:331,000,00017.75017,750,0002.7.202513:31:431,000,00018.10018,100,0002.7.202515:10:201,000,00018.10018,100,0003.7.202511:33:591,000,00018.25018,250,0003.7.202514:31:581,000,00018.25018,250,000Total 7,000,000 125...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræ...

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í viku 27 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 7.000.000 eigin hluti að kaupverði 125.525.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð30.6.202513:11:471.000.00017,32517.325.0001.7.202513:32:401.000.00017,75017.750.0001.7.202515:08:331.000.00017,75017.750.0002.7.202513:31:431.000.00018,10018.100.0002.7.202515:10:201.000.00018,10018.100.0003.7.202511:33:591.000.00018,25018.250.0003.7.202514:31:581.000.00018,25018.250.000Samt...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Hlé gert á endurkaupaáætlun

Kvika banki hf.: Hlé gert á endurkaupaáætlun Vísað er til tilkynningar Kviku banka hf. frá 06.07.2025 um að stjórn Kviku hafi samþykkt að hefja samrunaviðræður við Arion banka hf.  Það tilkynnist hér með að ekki verða framkvæmd frekari endurkaup á hlutabréfum Kviku samkvæmt gildandi endurkaupaáætlun á meðan samrunaviðræðum á milli Kviku og Arion banka stendur.  Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu  

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch