Leiðrétting: Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í tilkynningu sem birt var sunnudaginn 11.9.2022 kom fram að Kvika hefði keypt 1.000.000 eigin hluti þann 7.9.2022 kl.10:10:50. Hið rétta er að viðskiptin áttu sér stað þann 6.9.2022. Leiðrétt tilkynning er því sem hér segir:
Í viku 36 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 210.150.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
5.9.2022 | 14:45:01 | 2.000.000 | 20,4 | 40.800.000 |
6.9.2022 | 09:53:17 | 1.000.000 | 20,85 | 20.850.000 |
6.9.2022 | 10:10:50 | 1.000.000 | 20,9 | 20.900.000 |
7.9.2022 | 11:34:02 | 2.000.000 | 21 | 42.000.000 |
8.9.2022 | 10:20:21 | 2.000.000 | 21,25 | 42.500.000 |
9.9.2022 | 10:16:16 | 2.000.000 | 21,55 | 43.100.000 |
Samtals | 10.000.000 | 210.150.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 31. mars 2022.
Kvika átti 120.100.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 130.100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,680% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.640.540.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 3.000.000.000 að kaupverði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. maí 2022 til aðalfundar Kviku á árinu 2023, nema hámarks kaupverði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu
