Marel: 2020 Fjárfestakynning
Marel hf. birti ársuppgjör 2020 eftir lokun markaðar þann 3. febrúar 2021.
Meðfylgjandi má finna 2020 fjárfestakynninguna sem farið verður yfir á rafrænum afkomufundi með markaðsaðilum í dag, fimmtudaginn 4. febrúar 2020 kl. 8:30.
Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild sinni.
Fundinum er vefvarpað beint á og upptaka verður aðgengileg á eftir fundinn.
Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:
- IS:
- NL:
- UK: 2
- US:
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 6.800 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1.238 milljónum evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam í júní 2019.
Viðhengi