MAREL Marel hf.

Marel: Nýtt 300 milljón dollara sambankalán undirritað

Marel: Nýtt 300 milljón dollara sambankalán undirritað

Þann 2. nóvember undirritaði Marel samning um nýtt 300 milljón dollara sambankalán til þriggja ára. Vaxtakjör í upphafi samsvara 250 punkta álagi á millibankavexti (e. Secured Overnight Financing Rate, SOFR) en álag mun taka mið af þróun skuldahlutfalls (nettó skuldir/EBITDA). Lánið er með vilyrði um allt að tveggja ára framlengingu að þremur árum liðnum.

Nýja lánið er sambankalán frá sömu leiðandi bönkum á alþjóðlega vísu og komu að félagsins í febrúar 2020, þ.e. ABN AMRO, BNP Paribas, Danske Bank, HSBC, ING, Rabobank, og UniCredit. Þessi breiði hópur fjármálastofnana fellur vel að alþjóðlegri starfsemi Marel og lánveiting þeirra nú endurspeglar vilja þeirra og stuðning við starfsemi félagsins til lengri tíma litið.

Marel uppfyllir öll fjárhagsleg skilyrði útistandandi lána. Samhliða nýju lántökunni nú var hins vegar samið um rýmkun á skilmálum 700 milljóna evra sambankalánalínu félagsins í þeim tilgangi að auka svigrúm til að mæta tímabundnum sveiflum gjaldmiðla og sjóðstreymis.

Hluta nýja lánsins verður ráðstafað til uppgreiðslu á 150 milljóna evra ádráttarheimild sem nýtt var samhliða fyrr á árinu.

Í lok þriðja ársfjórðungs var lausafjárstaða félagsins 170,3 milljónir evra. Nýja lánið mun auka lausafjárstöðuna í 326,6 milljónir evra að teknu tilliti til handbærs fjár.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger, sem tilkynnt voru 27. apríl, myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa yfir +7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Tekjur Marel námu um 1,4 milljarði evra árið 2021 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan  1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.



EN
02/11/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Marel hf.

Martijn Den Drijver
  • Martijn Den Drijver

MAREL HF : A solid quarter, 2024 guidance to be met, slight delay in J...

>Beats on order intake and EBIT (margin), sales a miss, ND/EBITDA down - MAREL beat css on order intake which is encouraging, also because order intake is up both QoQ and YoY (+3%). Sales of €387m missed css by 4%, primarily because of 1/ weak ad-hoc orders as order intake has been weak for a few quarters now and 2/weak sales in Poultry and Fish. Adjusted EBIT came in at €36.2m or a margin of 9.4% versus css of €33.4m or a margin of 8.3%. That is a beat of 8% on adj....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch