Marel: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 17 keypti Marel hf. 857.576 eigin hluti að kaupverði 517.789.248 kr. eins og nánar er tilgreint hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr) |
20.4.2020 | 09:40 | 20.000 | 600 | 12.000.000 |
20.4.2020 | 10:38 | 573 | 597 | 342.081 |
20.4.2020 | 10:49 | 50 | 597 | 29.850 |
20.4.2020 | 12:27 | 50 | 597 | 29.850 |
20.4.2020 | 12:54 | 39.327 | 597 | 23.478.219 |
20.4.2020 | 13:03 | 20.000 | 597 | 11.940.000 |
20.4.2020 | 13:05 | 10.000 | 596 | 5.960.000 |
20.4.2020 | 13:09 | 7.600 | 595 | 4.522.000 |
20.4.2020 | 13:12 | 833 | 595 | 495.635 |
20.4.2020 | 13:25 | 31.567 | 595 | 18.782.365 |
20.4.2020 | 13:30 | 250 | 590 | 147.500 |
20.4.2020 | 13:32 | 580 | 590 | 342.200 |
20.4.2020 | 14:41 | 4.205 | 590 | 2.480.950 |
20.4.2020 | 14:51 | 50.000 | 594,5 | 29.725.000 |
21.4.2020 | 09:30 | 40.000 | 588,0 | 23.520.000 |
21.4.2020 | 09:32 | 10.000 | 588,0 | 5.880.000 |
21.4.2020 | 09:36 | 50.000 | 588,0 | 29.400.000 |
21.4.2020 | 13:18 | 150 | 600,0 | 90.000 |
21.4.2020 | 14:14 | 1.000 | 598,0 | 598.000 |
21.4.2020 | 15:24 | 12.499 | 598,0 | 7.474.402 |
22.4.2020 | 10:29 | 50.000 | 609,0 | 30.450.000 |
22.4.2020 | 10:36 | 100.000 | 611,0 | 61.100.000 |
22.4.2020 | 10:39 | 10.000 | 610,0 | 6.100.000 |
22.4.2020 | 11:32 | 100.000 | 609,0 | 60.900.000 |
22.4.2020 | 12:42 | 11.235 | 608 | 6.830.880 |
22.4.2020 | 13:05 | 8.765 | 608 | 5.329.120 |
22.4.2020 | 13:05 | 4.044 | 607 | 2.454.708 |
22.4.2020 | 13:46 | 15.956 | 607 | 9.685.292 |
22.4.2020 | 13:52 | 13.752 | 608 | 8.361.216 |
24.4.2020 | 09:45 | 665 | 607 | 403.655 |
24.4.2020 | 10:48 | 100.000 | 608 | 60.800.000 |
24.4.2020 | 13:28 | 50.000 | 611 | 30.550.000 |
24.4.2020 | 14:23 | 50.000 | 610 | 30.500.000 |
24.4.2020 | 14:34 | 30.000 | 610 | 18.300.000 |
24.4.2020 | 14:35 | 14.300 | 607 | 8.680.100 |
24.4.2020 | 14:48 | 175 | 607 | 106.225 |
Samtals | 857.576 | 517.789.248 |
Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 10. mars 2020 og var gerð í samræmi við þágildandi heimild aðalfundar Marel hf. þann 6. mars 2019 til kaupa á eigin bréfum, sem endurnýjuð var á aðalfundi félagsins þann 18. mars 2020.
Marel hf. átti 16.730.252 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 17.587.828 eigin hluti eða sem nemur 2,28% af útgefnum hlutum í félaginu.
Marel hf. hefur keypt samtals 6.814.014 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,88% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 3.639.121.098 kr.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hlutum eða sem nemur 3,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 11. mars 2020 til og með 4. september 2020.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið: og í síma .
Um Marel
Marel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa um 6.300 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti um 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam í júní 2019.