Marel: Úthlutun kauprétta
Stjórn Marel hf. ákvað þann 24. apríl 2020 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 6.115.000 hlutum í félaginu, þar af 2.420.000 til framkvæmdastjórnar. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdastjórnar og tilteknum starfsmönnum félagsins í lykilstöðum.
Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 6. mars 2019 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 18. mars 2020.
Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:
- Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 3,80 á hlut.1 Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
- Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu ársfjórðungsuppgjörs. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast eftir birtingu fyrsta ársfjórðungsuppgjörs árið 2023. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til annars ársfjórðungs ársins 2024, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
- Meðlimum framkvæmdastjórnar Marel ber að halda eftir hlutum sem nema fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum, þegar skattar hafa verið dregnir frá, þar til eftirfarandi fjárhæðarviðmiðum er náð, mælt í virði hlutafjáreignar í félaginu sem margfeldi af grunnárslaunum: forstjóri þrisvar sinnum árslaun; aðrir meðlimir framkvæmdastjórnar Marel tvisvar sinnum árslaun.
- Aðrir kaupréttarhafar þurfa ekki að halda eftir hlutum.
- Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga þess) á nýtingardegi.
Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 24,1 milljónum hluta, eða um 3,1% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 3,5 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.
Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:
Nafn | Staða | Nýr kaupréttur | Áður úthlutaður, ónýttur kaupréttur | Hlutafjáreign innherja | Hlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila |
Árni Oddur Þórðarson | Forstjóri | 580.000 | 2.260.000 | 64.634 | 67.235 |
Linda Jónsdóttir | Fjármálastjóri | 320.000 | 1.855.000 | 182.500 | 0 |
Árni Sigurðsson | Framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga | 320.000 | 1.855.000 | 0 | 100.000 |
Roger Claessens | Framkvæmdastjóri kjúklingaiðnaðar | 200.000 | 250.000 | 0 | 0 |
David Wilson | Framkvæmdastjóri kjötiðnaðar | 200.000 | 957.000 | 195.857 | 0 |
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir | Framkvæmdastjóri fiskiðnaðar | 200.000 | 40.000 | 0 | 0 |
Folkert Bölger | Framkvæmdastjóri framleiðslu- og aðfangastýringar | 200.000 | 500.000 | 17.862 | 0 |
Ulrika Lindberg | Framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða og þjónustu | 200.000 | 250.000 | 0 | 0 |
Anna Kristín Pálsdóttir | Framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar | 200.000 | 67.000 | 0 | 0 |
1 Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á Euronext Amsterdam þann 24. apríl 2020, þ.e. EUR 3,80 á hlut.