Festi hf.: Birting uppgjörs 4F og 12M 2025 þann 5. febrúar 2026 og afkomufundur þann 6. febrúar
Festi birtir uppgjör sitt fyrir 4F og 12M 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 5. febrúar næstkomandi.
Afkomufundur með markaðsaðilum 6. febrúar kl. 8:30.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 6. febrúar 2026 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: . Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið . Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: .
